Morgunn


Morgunn - 01.12.1952, Page 42

Morgunn - 01.12.1952, Page 42
120 MORGUNN sig engu varða andúð eða samúð þeirra, sem þátt taka í tilraununum eða stofna til þeirra. Hins vegar höfum vér sannfærzt betur og betur um það í sambandi við athug- anir og rannsóknir á sálrænum fyrirbrigðum, að árangur af þeim tilraunum veltur mjög á persónulegum viðhorf- um þeirra, sem þátt taka í þeim. Reynslan staðfestir hér sem annars staðar, að „líkur sækir líkan heim“. Persónu- leg áhrif verða ekki mæld með mælitækjum vísindanna enn sem komið er, en þeir, sem mesta og víðtækasta reynslu eiga í þessum efnum, fá ekki komizt hjá að taka fullt tillit til þessa. Við framkvæmd visindalegra rann- sókna gerir tilraunamaðurinn sér far um að útiloka per- sónuleg áhrif sín, en á sviði sálarrannsóknanna eru þau mikilvægt atriði til hagnýts árangurs. Ég tel rétt að skýra þetta örlítið nánar. Mér þykir margt benda til þess að nýr áfangi sé nú að hefjast í sögu mannkynsins. Hægt og hægt virðast menn vera að öðlast fyllri skilning og sannari þekkingu á eðli alheimsins, og nú þegar virðast hinar nýju uppgötvanir á þessu sviði vera að færa oss heim sanninn um æðaslátt lífs og anda í alheimi víðum, og snertiskynjun við lífrænan alheim virðist nú gerast tíðar en áður. Margir í hópi vorum eru nú haldnir sterkri þrá eftir að hljóta meiri fræðslu og þekkingu frá æðri vitundarsviðum hans. Sannleiksleit margra beinist nú einkum að þessum þætti sálarrannsókn- anna, en vér getum heldur ekki lokað augum fyrir því, er torveldar hagnýtan árangur í þeirri viðleitni. Hjá sumum virðist kenna nokkurrar óánægju yfir því, að tilraunir til fræðslu um þetta handan yfir handamærin séu lítt í sam- ræmi við þrár og vonir leitendanna. Það, er þeim sé sagt, sé iðulega svo hversdagslegt og smávægilegt, að lítið sé á því að græða. En þrá þeirra beinist eigi að síður að þessu, og mörgum er það nú umhugsunarefni, hvernig ráða megi bót á þessu. Vér horfumst þá í augu við eitt vandamálið enn, sem liggur fjær vettvangi vísindalegra rannsókna en nokkurt

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.