Morgunn - 01.12.1952, Síða 53
Tveir draumar.
★
Friörik Bjarnason, kennari og kunnur sönglagahöfundur í
Hafnarfiröi, hefur sent mér þessa drauma. — J. A.
VlSBENDING ?
Fyrir allmörgum árum bar það við hér í bæ, að dreng-
ur, sjö ára gamall, villtist frá fjárrétt, er stendur utan
við bæinn, á leið heim til sín, í rigningu og kalsa veðri.
Þetta var að vori til. Drengsins var lengi og víða leitað
og fannst ekki.
Nokkuru síðar dreymdi mig, að tveir menn kæmu til
ttún, en ég þóttist staddur á aðalleitarsvæðinu, fyrir sunn-
an bæinn Ás. Menn þessir sögðu mér, að drengurinn lægi
nokkuð langt þar frá, og skuli þeir koma með mér þangað.
Við göngum nú eftir hrauninu, og benda þeir mér á,
hvar það sé, sem drengurinn liggi, en segja, að við verðum
að ganga drjúgan spöl ennþá, til þess að komast þangað.
Við héldum í áttina, en í þeim svifum vaknaði ég við það,
að barið var hastarlega að dyrum, og var þá klukkan
fjögur um morguninn. Ég gekk fram að glugganum og
varð þess þá var, að maður stendur utan dyra.
Mörgum árum síðar fundust bein drengsins, einmitt á
Því svæði og í sömu átt, er mennirnir í drauminum bentu
mér á.
HVERNIG LEIT SÉRA HALLGRlMUR ÚT?
Veturinn 1917 dreymdi mig, að ég væri staddur í brekku
einni ofan við Keflavíkurkaupstað. Kom þá til mín maður,