Morgunn - 01.12.1952, Page 55
Fyrirbrigðin í Ryefield.
Myra Warrand safnaSi og skráSi.
★
Ryefield House í Ross-shire, þar sem eftirgreind fyrir-
brigði gerðust, er eða réttara sagt var (því að meiri hl'uti
hússins brann fyrir nokkurum árum) gamalt hús, fremur
óskipulega byggt, en um tíma bjó þar lávarðurinn nafn-
kunni, President Forbes of Culloden. Upprunalega var aðal-
byggingin fremur lítil, en tveim allstórum hliðarálmum
hafði verið bætt við hana. Þegar Warren ofursti settist
bar að, var húsið stækkað, aðalbyggingin, og aukið við
bakhlið hennar um 1880, var húsið þá orðið allstórt. Þegar
verið var að grafa fyrir viðaukabyggingunum, fundust
uiannabein þar og meðal annars tóbakskvörn undir gamla
stiganum. Þegar húsið var endurbyggt eftir brunann, kom
gamli vegurinn til Dingwall í Ijós, sem einu sinni hafði
verið notaður, en á þessum slóðum sást dularfulli vagninn,
sem nú verður sagt frá.
DULARFULLI VAGNINN.
Ég var aðeins fimm ára gömul og Duncan tveggja ára,
er þetta gerðist. Herbergi Connie’s var í vesturálmunni
°g glugginn á herbergi hennar vissi gegnt vestri, svo að
hún sá ekki eða heyrði neitt af því, er gerðist þessa óvenju-
legu nótt. Herbergi okkar var í bakhlið aðalbyggingarinn-
ar- Tvíburarnir sváfu í vesturálmunni, þar sem eldhúsið
Var, en þar voru einnig herbergi þjónustustúlknanna, en
engin þeirra varð hið minnsta vör við hina dularfullu at-
burði, er gerðust um nóttina. Alls voru þau fimm, sem urðu