Morgunn


Morgunn - 01.12.1952, Page 74

Morgunn - 01.12.1952, Page 74
152 MORGUNN að hefja vetrarstarfið að þessu sinni. Að því eigum vér að vinna, að þekkingin og trúin haldist í hendur og hjálp- ist að að brúa djúpið dimma, sem kynslóðirnar hafa óttast og grátið við sínum beiskustu tárum. Jón AuSuns. Sérðu ekki hann afa? ★ Madame Anne E. Carrére, sem heima átti í Algeirs, skrifaði Flammarion á þessa leið, en hann birti það í bók sinni Aprés la Mort, bls. 265: „Maðurinn minn, einhver réttsýnasti, göfugasti og bezti maðurinn, sem hefur lifað, hafði heitið mér því að láta mig vita, ef hann lifði eftir dauðann, væri sér það unnt. Hann dó 10. október 1898. Heimilisfólkið vorum við hjónin og dóttir mín, sem hafði misst mann sinn eftir stutta sam- búð við hann. Hún átti þrjá drengi, sem allir voru hjá okkur auk hennar. Elzti drengurinn var fimm ára, sá næsti hálfs fjórða árs og sá yngsti hálfs þriðja árs. Meðan maður minn lá banaleguna, voru drengirnir hennar hjá vina- og frændfólki okkar, en dauða afa þeirra var haldið leyndum fyrir þeim. Yngsti drengurinn sat við borðið hjá fólki því, er hann var hjá, en skyndilega lyfti Guy (svo hét drengurinn) sér í stólnum, og hrópaði upp: „Nei, þarna er hann afi okkar fyrir utan gluggann. Sjáðu!“ Hann þaut niður af stólnum og fram að dyrunum, til þess að fagna honum, en á þessari stundu fór útför hans fram. Ég endur- tek, að hann var aðeins hálfs þriðja árs, og hann vissi

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.