Fréttablaðið - 04.11.2010, Qupperneq 12
12 4. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR
Á DEGI HINNA DAUÐU Víða um hinn
kaþólska heim héldu menn allra-
sálnamessu hátíðlega á mánudaginn.
Margir heimsóttu grafir ástvina sinna
eða klæddu sig í dauðabúninga. Á
Filippseyjum gat fólk prófað að vera
inni í þessari bleiku líkkistu í svolitla
stund. NORDICPHOTOS/AFP
Fjölbreytt og gott
veganesti fyrir lífið
Kjarngóð næring
Ósaltað
Ósykrað
Engin aukaefni
www.barnamatur.is
Lífrænn
barnamatu
r
BANDARÍKIN, AP Barack Obama
Bandaríkjaforseti segist vonast
til þess að geta starfað með nýjum
meirihluta Repúblikanaflokksins í
fulltrúadeild, einkum á sviði orku-
mála og menntamála.
Hann viðurkenndi að úrslit þing-
kosninganna á þriðjudag sýndu
megna óánægju kjósenda með það
hve hægt hefði miðað í efnahags-
málum. Jafnframt sagðist hann
bera fulla ábyrgð á því hve hægt
hefði gengið. Hins vegar sagði hann
ekkert um það hvort hann ætlaði
að breyta um stefnu í efnahags-
málum, eins og andstæðingar hans
krefjast.
Demókrataflokkurinn missti
meirihluta sinn í fulltrúadeild
þingsins, en hélt honum í öldunga-
deildinni, eins og skoðanakannanir
höfðu bent til.
Erfið staða í efnahagsmálum
virðist hafa ráðið mestu um þessi
úrslit, ásamt verulegu fylgi við
Teboðshreyfingu Repúblikana-
flokksins, eftir því sem fram kom í
útgöngukönnunum.
Teboðshreyfingin náði tölu-
verðum árangri í kosningunum,
en Sharron Angle tókst þó ekki að
fella Harry Reid, öldungadeildar-
þingmann Nevada-ríkis, sem verð-
ur því áfram leiðtogi meirihlutans
í öldungadeild.
Öðrum áberandi fulltrúa Teboðs-
hreyfingarinnar, Christine O’Donn-
ell, tókst heldur ekki að komast á
þing fyrir Delaware.
Repúblikaninn John Boehner
tekur hins vegar við af Nancy
Pelosi sem forseti fulltrúadeildar.
Hann hefur krafist þess að Obama
skipti nú algerlega um stefnu í efna-
hagsmálum. Úrslit kosninganna
sýni að kjósendur krefjist þess.
„Við vonum að Obama forseti
muni nú virða vilja fólksins, breyta
um stefnu og skuldbinda sig til þess
að gera þær breytingar sem það
krefst,“ sagði Boehner í gær. „Að
svo miklu leyti sem hann er viljug-
ur til þess, þá erum við reiðubúin
til að starfa með honum.“
Þegar úrslitin voru orðin nokk-
uð ljós hringdi Obama í Boehner,
sem sagði forsetanum að hann
væri reiðubúinn í samstarf um
þau mál sem skiptu bandarísku
þjóðina mestu. Boehner segist líta
svo á að mestu skipti að draga úr
ríkisútgjöldum og fjölga atvinnu-
tækifærum.
Margir búast við harðvítugri
togstreitu nýja meirihlutans við
forsetann næstu tvö árin, þannig
að forsetinn eigi mjög erfitt með
að koma málum í gegnum þingið.
Erfiðast gæti þó reynst fyrir
repúblikana að standa hart gegn
ráðstöfunum í efnahagsmálum,
sem ekki mega bíða vegna þess
hve ástandið er enn erfitt.
gudsteinn@frettabladid.is
Kjósendur hafa sett
Obama skorður
Nýr meirihluti repúblikana í fulltrúadeild Bandaríkjaþings boðar samstarf við
Barack Obama forseta, svo fremi sem hann fari að vilja þeirra í einu og öllu.
Almennt er reiknað með harðvítugri togstreitu í deildinni næstu tvö árin.
LEIÐTOGAR REPÚBLIKANA Í FULLTRÚADEILD Repúblikanarnir Eric Cantor, agameistari
nýja meirihlutans í fulltrúadeild, og John Boehner, nýr forseti fulltrúadeildar, kölluðu
fjölmiðla á sinn fund í gærmorgun. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SJÁVARÚTVEGUR Hafrannsóknastofnunin leggur
til að heildaraflamark í íslenskri sumargotssíld
fari ekki yfir 40 þúsund tonn á komandi vertíð.
Hrygningarstofninn er metinn vera 370 þúsund
tonn, sem er um helmingur þess sem stofninn var
metinn vera árið 2006. Vísbendingar eru um að
sýkingarfaraldurinn sem herjað hefur á stofninn
undanfarin tvö ár sé í rénun. Stóran hluta 2007-
árgangsins, sem kemur inn í veiðina á næsta ári,
var að finna nánast ósýktan í Breiðamerkurdjúpi.
Niðurstöður mælinga benda til þess að veiði-
stofn síldar sé um 27 prósentum minni í fjölda en
hann var í október 2009, en niðurstöður Hafró í
júní gerðu ráð fyrir enn minni stofni en nú mæld-
ist. Niðurstöður stofnmats benda til þess að hrygn-
ingarstofninn verði um 370 þúsund tonn í byrjun
árs 2011. Um 35 prósent þess lífmassa eru metin
vera sýkt nú í haust.
Þrátt fyrir að hlutfall sýktrar síldar í stofninum
sé enn hátt er hlutfall nýsmits lágt. Mestur hluti
sýktu síldarinnar er með sýkingu sem er langt
gengin. Þessar niðurstöður eru ólíkar því sem
sést hefur á undanförnum tveim árum. Þetta gæti
verið vísbending um að sýkingarfaraldurinn sé í
rénun, að mati Hafró. - shá
Hafrannsóknastofnun ráðleggur að aflamark í síld fari ekki yfir 40 þúsund tonn:
Hrygningarstofninn hruninn
VESTMANNAEYJAHÖFN Í MARS 2009 Kap VE tók að sér að
reyna að veiða sýkta síld úr höfninni áður en hún drapst.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
Við vonum að
Obama forseti muni
nú virða vilja fólksins, breyta
um stefnu og skuldbinda sig
til að gera þær breytingar
sem það krefst.”
JOHN BOEHNER
NÝR FORSETI FULLTRÚADEILDAR
BANDARÍKIN George W. Bush segir
að sér hafi liðið illa þegar í ljós
kom að engin gjöreyðingarvopn
fundust í Írak eftir innrás Banda-
ríkjanna og bandalagsríkja í
landið. Þetta kemur fram í nýrri
ævisögu, þar sem hann ver þá
ákvörðun að ráðast inn í landið.
Þar kemur einnig fram að Bush
íhugaði að skipta varaforseta
sínum, Dick Cheney, út. Í bókinni
segir hann að Cheney hafi verið
„Svarthöfði“ stjórnar sinnar.
Svarthöfði er þekkt illmenni úr
Star Wars kvikmyndunum.
Bush segir að hann telji að
rétt hafi verið að ráðast inn í
Írak. Írakar séu betur komnir
án „morðóða einræðisherrans“
Saddams Hussein. - bj
Bush ver innrás í ævisögunni:
Líkir Cheney
við Svarthöfða
REIÐUR „Enginn var hneykslaðri eða
reiðari en ég þegar engin gjöreyðingar-
vopn fundust,“ segir George W. Bush.
NORDICPHOTOS/AFP
MENNTAMÁL Ekki verða gerðar
miklar efnislegar breytingar
á tillögu mannréttindaráðs
um breyt-
ingar á sam-
starfi kirkju
og skóla. Þetta
segir Margrét
Sverrisdótt-
ir formaður.
Mannréttinda-
ráð fundaði í
gær um málið,
þar sem komist
var að þeirri
niðurstöðu að
skerpa á orðalagi í tillögunni
og senda hana endurbætta til
umsagnar.
„Við fórum vandlega yfir þetta
og höfðum meðal annars viðmið
Þjóðkirkjunnar um samstarf
við skóla til hliðsjónar,“ segir
Margrét. „Við leggjum til að að
tveimur árum liðnum verði skoð-
uð reynslan á þessum tillögum
og þá gerðar breytingar ef þörf
verður á því.“ - sv
Mannréttindaráð fundar:
Aðeins verður
skerpt á orðum
MARGRÉT
SVERRISDÓTTIR
ÞJÓÐKIRKJAN Þjóðkirkjan hefur
ekki haldið utan um tölur yfir skírð
börn í landinu síðan árið 2003 og
fermd börn síðan árið 2006. Hlut-
fall barna virðist haldast svip-
að milli ára, en mestur er munur-
inn á hlutfalli fermdra barna milli
áranna 2003, þar sem rúm 95 pró-
sent barna fermdust hjá þjóðkirkj-
unni, og 2005, þegar hlutfallið féll
niður í 78,5 prósent. Ekki eru til
neinar tölur um hlutfall fermdra
barna árið 2004.
Árið 1992 voru 92 prósent barna
skírð í þjóðkirkjunni. Ellefu árum
seinna, árið 2003, var hlutfallið
rúm 82 prósent. Ekki eru til nein-
ar tölur hjá kirkjunni um fjölda
skírðra barna eftir árið 2003. Ekki
eru til neinar tölur yfir fermd eða
skírð börn hjá kirkjunni árin 1989
til 1991, 1993 til 1996, 1999, 2004 og
2007 til 2010.
Árni Svanur Daníelsson, upp-
lýsingafulltrúi Biskupsstofu, segir
ástæðurnar vera vöntun á heildar-
tölum frá prestaköllum í landinu.
„Það vantar tölur inn í fyrir þessi
ár. Þess vegna fáum við ekki áreið-
anlegar heildartölur,“ segir Árni
Svanur. „En við ætlum að pressa á
að fá þetta.“ - sv
Upplýsingum um fermingar og skírnir hjá þjóðkirkjunni verulega ábótavant:
Þjóðkirkjan á ekki tölur fyrir 13 ár af 22
Fjöldi skírðra og fermdra barna í þjóðkirkjunni
Ár* Hlutfall skírðra af lifandi fæddum Hlutfall fermdra í árgangi
1988 - engar tölur fáanlegar 90,97%
1992 92,38% - hæsta hlutfall 94,39%
1997 90,60% 94,47%
1998 90,50% 90,47%
2000 89,18% 91,17%
2001 86,70% 89,00%
2002 89,03% 89,76%
2003 82,76% - lægsta hlutfall - hæsta hlutfall 95,69%
2005 - engar tölur fáanlegar - lægsta hlutfall 78,51%
2006 - engar tölur fáanlegar 88,40%
*Upplýsingar fyrir árin 1989 til 1991, 1993 til 1996, 1999, 2004
og 2007 til 2010 eru ekki aðgengilegar hjá þjóðkirkjunni.
Tsjernomyrdin látinn
Fyrrverandi forsætisráðherra Rúss-
lands, Viktor Tsjernomyrdin, lést í gær,
72 að aldri. Tsjernomyrdin gegndi
embætti forsætisráðherra frá 1992 til
1998, en þar áður gegndi hann hárri
stöðu hjá gasfyrirtækinu Gazprom.
Tsjernomyrdin þótti afar litríkur stjórn-
málamaður. Hann hafði verið sjúkur
um langt skeið.
RÚSSLAND
SVEITARSTJÓRNIR Sveitarfélögin
Árneshreppur, Kaldrananes-
hreppur, Strandabyggð og
Reykhólahreppur ætla að
stofna sameiginlega fimm
manna félagsmálanefnd. Að
því er kemur fram í fundargerð
sveitar stjórnar Strandabyggð-
ar vinnur undirbúningshópur nú
drög að samningi um nefndina
ásamt starfslýsingu, starfshlut-
falli og menntunarkröfum sam-
eiginlegs starfsmanns.
Strandabyggð fær tvo fulltrúa
í þessari nýju samvinnunefnd
þessara fjögurra sveitarfélaga í
Strandasýslu og Austur-Barðar-
strandasýslu. - gar
Samvinna á Vestfjarðakjálka:
Sveitarfélög í
félagasamstarfi