Fréttablaðið - 04.11.2010, Síða 30
4. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR30
Prjónaklúbbur á hjúkrunar-
heimilinu Skjóli við Klepps-
veg skilaði nýlega af sér
fjölda af húfum og eyrna-
skjólum sem var gjöf hans
til Mæðrastyrksnefndar.
Klúbburinn hefur verið til í
fimm ár að sögn Ólafar Dóru
Hermannsdóttur, umsjónar-
manns og hefur starfsemin
undið upp á sig. Allt er prjón-
að úr garnafgöngum sem
bæði heimilisfólk, aðstand-
endur og starfsfólk leggur til.
„Það gauka margir að okkur
garni, meira að segja fólk úti
í bæ,“ segir Ólöf Dóra. „Hjá
okkur er ein hundrað og eins
árs sem vindur allt þetta
garn og innan hópsins eru
harðduglegar prjónakonur,
meðal annars handavinnu-
kennarar sem eru flinkir í
höndunum og útsjónarsamir
að raða saman litum.“
Ólöf Dóra segir Hjálpræð-
isherinn koma reglulega á
Skjól og syngja fyrir fólk-
ið þar. Hann hafi oft fengið
húfur í staðinn sem runnið
hafi til útigangsfólks. „En
svo datt okkkur í hug að
breyta til og gefa Mæðra-
styrksnefnd afrakstur
iðjunnar í sumar. Góð sam-
staða hefur verið um verk-
efnið enda finna allir að það
er hollt fyrir sálina að láta
gott af sér leiða. Stúlkurnar
á símanum voru til dæmis að
skreyta húfurnar þegar þær
höfðu lausa stund og fleiri
lögðu hönd á plóg,“ lýsir Ólöf
Dóra og segir prjónaklúbb-
inn á Skjóli halda áfram á
sömu braut. - gun
Gott fyrir sálina
AFHENDING Prjónakonur og starfsfólk á Skjóli, ásamt fulltrúa Mæðra-
styrksnefndar.
Kertaljósatónleikar á vegum Parkinsonsamtakanna á
Íslandi verða haldnir í Fríkirkjunni í kvöld. Þar kemur fram
sannkallað stórskotalið tónlistarfólks: Bjartmar Þórðarson,
Ellen Kristjánsdóttir, Eyfi og Stebbi Hilmars, Geir Ólafs-
son, Kjartan Valdemarsson, Kristján Jóhannsson, Maríus H.
Sverrisson, Ragnar Bjarnason, Regína Ósk og South River
Band.
Allir listamennirnir gefa vinnu sína og allur ágóði renn-
ur óskiptur til Parkinsonsamtakanna. Verður fjármununum
meðal annars varið til að byggja upp starfsemi samtakanna
á landsbyggðinni.
Tónleikarnir hefjast klukkan 20 og aðgangseyrir er 2.000
krónur. - fsb
Stórskotalið á
Kertaljósatónleikum
Stoppleikhópurinn sýnir verðlaunaleikritið Bólu-Hjálmar
í Tjarnarbíói sunnudaginn 7. nóvember. Leikritið er byggt
á lífi og ljóðum Bólu-Hjálmars og var frumsýnt 22. maí
2008. Hlaut sýningin Grímuverðlaunin sem Barna og
unglingasýning ársins 2009.
Verkið hefur verið sýnt víða í grunnskólum landsins og
á dögunum var leikhópnum boðið til Færeyja með sýning-
una og hlaut hún þar einróma lof.
Þrír leikarar segja söguna og leika allar persónur;
Hjálmar, eiginkonu hans, móður, börn, föður, uppeldis-
móður, bændur, presta, sýslumenn, förukonur, nágranna,
fjandmenn og vini. Leikritið geymir einnig sýnishorn af
kveðskap hans, allt frá því fegursta til andstyggilegustu
níðvísna, en fáir voru flinkari í að meitla saman kjarn-
mikið níð en Hjálmar.
Ármann Guðmundsson, Snæbjörn Ragnarsson, Sævar
Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason sömdu handrit og
tónlist og leikararnir sem bregða sér í fjölmörg hlutverk
hver eru Eggert Kaaber, Magnús Guðmundsson og Mar-
grét Sverrisdóttir. Guðrún Öyahals sér um leikmynd og
búninga og Ágústa Skúladóttir leikstýrir. - fsb
Bólu-Hjálmar
í Tjarnarbíói
LEIKLIST Þrír leikarar fara með öll hlutverk í leikritinu um Bólu-Hjálm-
ar.
Birta Hannesdóttir og Steinunn Sara Arnardóttir eru
átta og níu ára nemendur í Engjaskóla í Grafarvogi. „Við
vorum að tala saman einn daginn og datt í hug að það
væri gaman að safna dósum og gefa pening til fátækra
barna,“ segja þær stöllur. Þær stóðu ekki við orðin tóm
heldur gengu á milli húsa og söfnuðu dósum. Þeim var
almennt vel tekið enda gott málefni sem þær stóðu fyrir.
Afraksturinn var ekki lítill, um þúsund flöskur og dósir
sem þær fengu 12.268 krónur fyrir. Þessa aura ætla þær
að gefa til Rauða kross Íslands með þeim skilyrðum að
þeir verði notaðir til að hjálpa börnum.
Söfnuðu yfir
1000 dósum
Útför elskulegrar föðursystur okkar,
Hallberu Guðnadóttur
Miklubraut 42,
sem lést á Landakoti miðvikudaginn 27. október,
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn
5. nóvember kl. 15.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hallbera Eiríksdóttir
Guðni Eiríksson
Tryggvi Karl Eiríksson.
Útför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa
Egils Ágústs Jacobsen
læknis, Bakkavör 36, Seltjarnarnesi,
fer fram í dag, fimmtudaginn 4. nóvember kl. 13.00,
frá Seltjarnarneskirkju.
Katrín Jóhannsdóttir Jacobsen
Elín Ingibjörg Jacobsen
Þorvaldur Jacobsen Jensína Kristín Böðvarsdóttir
Katrín Þórdís Jacobsen Sveinn Ingiberg Magnússon
og barnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, langafi og langalang-
afi,
Þorleifur Hallbertsson
áður Suðureyri, Súgandafirði,
Lautasmára 5, Kópavogi,
sem lést á Landspítalanum við Hringbraut miðvikudag-
inn 27. október, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
föstudaginn 5. nóvember kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Karitas eða
Ljósið.
Sigríður Kristjánsdóttir
Kristján Þorleifsson Kristín Kristjánsdóttir
Ingunn M. Þorleifsdóttir Leó Pálsson
Sigurbjörg Þorleifsdóttir Sölvi Bragason
Sigþór Þorleifsson Aðalheiður Gylfadóttir
Hrafnhildur Þorleifsdóttir Davíð Þór Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Magnea Guðbjörg
Sigurjónsdóttir
frá Norður-Eyvindarstöðum, Álftanesi,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði föstudaginn 29. október
síðastliðinn. Útför hennar fer fram frá Bessastaðakirkju
föstudaginn 5. nóvember kl. 15.
Erla Kristín Gunnarsdóttir
Svavar Gunnarsson Stella S. Karlsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
sonur, bróðir og afi,
Björn Ólafsson
Hofgörðum 1, Seltjarnarnesi,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans fimmtudaginn
28. október. Útförin fer fram frá Seltjarnarneskirkju
föstudaginn 5. nóvember kl. 13.00. Þeim sem vildu
minnast hans er bent á knattspyrnudeild Víkings.
Jóhanna Guðnadóttir
Guðrún Björnsdóttir
Hilmar Björnsson Elín Helga Sveinbjörnsdóttir
Guðrún Salvör Björnsdóttir
systur og barnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Gestur Guðjónsson
frá Bæ í Lóni,
andaðist á Skjólvangi Hrafnistu Hafnarfirði
mánudaginn 1. nóvember. Útförin fer fram frá
Garðakirkju miðvikudaginn 10. nóvember kl. 13.00.
Svava, Guðjón, Sonja, Arnar og Gestur.
Elskuleg eiginkona mín, móðir, systir,
amma og langamma,
Vigdís Dagmar
Filippusdóttir
Bjarmalandi 14, Sandgerði,
sem lést á heimili sínu 25. október, verður jarðsungin
frá Safnaðarheimilinu Sandgerði, föstudaginn
5. nóvember kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Karl Þorbergsson.
Þær Steinunn Sara og Birta gáfu rúmar tólf þúsund krónur til Rauða
krossins á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SOUTH RIVER BAND Hljómsveitin er í fríðum flokki tónlistarfólks á
Kertaljósatónleikum í Fríkirkjunni í kvöld.