Fréttablaðið - 04.11.2010, Page 34

Fréttablaðið - 04.11.2010, Page 34
 4. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR4 Valentino yngir upp Tvíeykið Pier Paolo Piccioli og Maria Grazia Chiuri hefur heillað tískuheim- inn upp úr skónum að undanförnu en þau hanna undir merkjum tískuris- ans Valentino. Á síðustu tískusýningu sinni í París nýverið sýndu þau flíkur fyrir vor og sumar 2011. Þar undirstrikuðu þau þá nýju stefnu sem þau hafa markað fyrir tískuhúsið. Ætlunarverk þeirra virðist hafa tekist en yngri konur hafa nú fallið fyrir hinum klassíska Valentino. -sg Klassískt en þó nýstárlegt og unglegt. Settlegur kjóll með mjóu belti. Settlegur jakki með pífum við flottar stuttbuxur. Pífur og blúndur voru einkar áberandi í fatnaði Piccioli og Chiuri. Einkar margbrotinn útsaumur og vand- aður saumaskapur vakti athygli. Svartur skyrtukjóll, pífum skreyttur. Ætlunarverk Valentino hefur heppnast en með ráðningu Piccioli og Chiuri hefur hann náð til yngri markhóps.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.