Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.11.2010, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 04.11.2010, Qupperneq 38
 4. NÓVEMBER 2010 FIMMTUDAGURVerð: 29.995.- Stærðir: 36-41 Verð: 11.995.- Stærðir: 36-41 Verð: 12.995.- Stærðir: 36-41 Verð: 22.995.- Stærðir: 36-41 (fást einnig Svört með silfurrennilás að aftan) Kaupfélagið er skóverslun í Smáralind og Kringlunni. Úrvalið er afar fjölbreytt bæði fyrir konur og karla. Elísabet Weisshappel Vilhjálmsdóttir, verslunarstjóri í Smáralind, segir frá því sem er vinsælast í dag. „Fyllti hællinn, eða svokallaði wedge-hællinn, hefur verið áber- andi í nokkurn tíma en nú sækj- ast enn fleiri eftir því að klæðast slíkum skóm, bæði ungar stelpur og eldri konur,“ segir Elísabet og bætir við að í Kaupfélagið komi mjög breiður aldurshópur þó að flestir séu á aldrinum sextán ára til fertugs, bæði karlar og konur. En hvað annað er vinsælt? „Það eru gróf stígvél og hermanna- klossar. Einnig skór með jafn- fylltum botnum, sem eru þá jafn- þykkir í hælinn og fram í tá. Við erum líka með mikið af reimuð- um skóm sem bæði má fá með fylltum hæl eða sem hermanna- klossa,“ segir Elísabet. Hún telur breiðum hælum vera að fjölga mikið og þeir séu þá oft úr tré, en einnig séu vinsælir nokkurs konar háhælaðir tréklossar sem negldir eru með járnhnöppum til skrauts. Elísabet segir leðrið líkt og áður vinsælasta efnið í skónum. Þó sé rússkinnið einnig að sækja í sig veðrið. „Svarti liturinn er klassískur en við erum einnig að fá brúna liti, svo og kamel- og drapplitaða.“ Hvað með tána á skónum, er hún mjó eða rúnnuð? „Támjóir skór eru eiginlega alveg dottnir út og fáir spyrja um slíka. Tærn- ar á skónum eru fremur rúnnað- ar enda grófleikinn í öndvegi,“ svarar Elísabet. Innt eftir því hvort hælar séu óvenjuháir nú svarar Elísabet að það sé rétt. „Hælarnir eru mjög háir og lítið um meðalháa hæla. Hins vegar er hönnun skónna yfirleitt þannig að þykkt er undir táberginu og því virðist hællinn vera hærri en ella,“ segir hún en bætir við að fjölbreytnin sé þó mjög mikil í skóflórunni. Fólk sæki einnig mikið í flatbotna her- mannaklossa. „Annars er fjöl- breytileikinn mjög mikill og við eigum margs konar týpur sem höfða til ólíks fólks,“ segir hún og skorar á fólk að koma og skoða úrvalið í verslununum. Grófir hermannaklossar og fylltir hælar vinsælir Fylltir hælar eru vinsælastir í dag að sögn Elísabetar Weisshappel Vilhjálmsdóttur verslunarstjóra Kaupfélagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Gróf stígvél með grófum hæl njóta mikilla vinsælda um þessar mundir hjá viðskiptavinum Kaup- félagsins. Skórnir sem hér sjást eru frá hollenska merkinu Bull- boxer. „Þessir eru flottir í vetur,“ segir Elísabet Weisshappel Vil- hjálmsdóttir verslunarstjóri, en grófur botn og gróft leður í skóm er mikið í tísku þessa dagana. Kaupfélagið hefur mjög góða reynslu af Bullboxer og hefur selt skó frá merkinu í mörg ár. „Við höfum til sölu mjög breiða línu frá merkinu, alveg frá pinna- hælum til grófra klossa, bæði herra- og dömu- skó.“ Þess má geta að Kaupfélagið er með síðu á Facebook sem heitir Kaupfélagið Kringlunni/ Smáralind. Þar má fylgj- ast með fréttum af öllu því nýjasta sem er í boði í versluninni, skoða myndir af nýjustu skón- um svo og upplýsingar um þau tilboð sem eru í gangi. Endingargóðir frá Bullboxer Kaupfélagið hefur langa og góða reynslu af skóm frá Bullboxer. Þeir þykja endingargóðir en einnig flottir en breið lína kemur frá merkinu, allt frá pinnahælum til grófra stígvéla.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.