Fréttablaðið - 10.11.2010, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 10.11.2010, Blaðsíða 14
 10. nóvember 2010 MIÐVIKUDAGUR Álitsgerð forseta lagadeildar Háskólans í Reykjavík Þórður Gunnarsson, forseti laga-deildar Háskólans í Reykjavík, ritaði grein í síðasta helgarblaði Fréttablaðsins til að skýra nánar álitsgerð sína fyrir slitastjórn Glitnis banka hf. þess efnis að íslenskir dómstólar séu illa í stakk búnir til að leysa úr jafn flóknu og umfangsmiklu máli og stefnt var fyrir dóm í New York á hendur sjö íslenskum aðilum. Jafnframt segir forseti Lagadeildar HR að það sé rangt hjá mér að hann hafi sagt að íslenskir dómstólar geti ekki leyst úr jafn viðamiklu skaðabótamáli og hér um ræðir. Í niðurlagi grein- ar sinnar lýsir forseti lagadeildar HR vonbrigðum með að formaður Lögmannafélagsins skuli ekki sjá sér fært að taka undir þá ályktun hans að íslenskir dómstólar séu illa undir svona mál búnir af skipulags- legum ástæðum og vegna fjárskorts og undirmönnun. Það er enginn ágreiningur á milli formanns Lögmannafélagsins og forseta Lagadeildar HR um fjölg- un dómsmála á komandi misser- um í tengslum við hrun bankanna. Á þeim tíma sem forseti lagadeild- ar ritar undir álitsgerð sína hafði heildarmálum fyrir dómi ekki fjölgað og þegar verið brugðist við fyrirsjáanlegri aukningu mála frá slitastjórnum með fjölgun dómara í héraði. Ég hef frá því snemmsumars unnið náið með starfsmönnum dómsmálaráðuneytisins, fulltrú- um dómstólaráðs, Dómarafélags- ins og Hæstaréttar, þar sem lagt hefur verið mat á hvernig álag á dómstólana muni aukast. Hefur verið aflað upplýsinga frá slita- stjórnum bankanna og sérstökum saksóknara um fjölda mála, stærð þeirra og hvenær líklegt væri að málin komi til kasta dómstólanna. Allt er þetta gert í þeim tilgangi að stjórnvöld geti brugðist við auknu álagi hjá dómstólum. Ástæðan er sú að í stjórnarskrá Íslands og í mann- réttindasáttmála Evrópu sem lög- festur er á Íslandi eru ákvæði sem kveða á um réttláta málsmeðferð innan hæfilegs tíma. Þótt fyrir liggi að fjölgun verði á dómsmálum vegna slitameð- ferðar bankanna er ekki hægt að draga þá ályktun að fjölgun verði í öðrum tegundum mála. Þó svo að aukning eða eðli mála verði til þess að hægist á meðferð dómsmála er ekki þar með sagt að málsmeðferð brjóti gegn framangreindum regl- um stjórnarskrárinnar og MSE. Með hliðsjón af framangreind- um staðreyndum er undarlegt að forseti lagadeildar HR skuli draga þá ályktun að íslenskir dómstólar séu illa í stakk búnir til að leysa úr skaðabótamáli slitastjórnarinn- ar gegn sjömenningunum. Virðist forseti lagadeildar HR hvorki vita hvað hefur verið gert til þess að bregðast við fyrirsjáanlegri aukn- ingu mála né hvað stjórnvöld hyggj- ast gera ef hætta er á að málin dragist um of á langinn. Forseti lagadeildar HR telur það rangt hjá mér að hann hafi sagt í áliti sínu að íslenskir dómstól- ar „geti ekki“ leyst mál af þess- ari stærðargráðu. Hér er hártog- un um hárfína merkingu orða sem skiptir engu máli í umræðunni. Í mínum huga er lítill munur á því í þessu samhengi að „vera illa í stakk búinn“ og „geta ekki“ leyst úr málum. Þegar lesin er álitsgerð forseta lagadeildar HR í heild sinni verður hún ekki skilin öðru vísi en svo að íslenskir dómstólar séu ekki færir um að leysa úr svona flóknu og umfangsmiklu máli af skipu- lagslegum ástæðum og vegna fjár- skorts og undirmönnunar. Ekki veit ég hver tilgangur slita- stjórnarinnar var með því að leita álits forseta lagadeildar HR um stöðu dómstólanna og getu þeirra til að leysa úr flóknum og umfangs- miklum málum. Mér vitanlega hefur forseti lagadeildar HR ekki flutt eitt einasta dómsmál svo árum skiptir eða stundað rannsóknir á stöðu dómstóla og getu þeirra til að leysa úr málum. Þó má ætla að forseti lagadeildar viti, eins og allir aðrir sem stundað hafa lögfræði- störf og kennslu, að málshraði fyrir íslenskum dómtólum er meiri en í þeim réttarríkjum sem við berum okkur saman við. Ekki er ástæða til að ætla að málshraði breytist eins og hendi sé veifað án þess að við því verði brugðist eða málsmeðferð verði ekki jafnvönduð og áður. Þar sem ég tel álit forseta laga- deildar HR rangt þótti mér rétt og skylt sem starfsmanni og þjóni íslenska réttarkerfisins að and- mæla því með yfirlýsingu. Skiptir þá engu máli að ég hafði áður unnið fyrir slitastjórn Glitnis banka hf. enda þau störf ótengd efni yfirlýs- ingar minnar. Ég veit ekki hvað slitastjórninni og forseta lagadeild- ar HR gekk til með því að leggja fram þetta álit sem er til þess fall- ið að rýra traust og trúverðugleika íslenskra dómstóla úti í hinum stóra heimi að ófyrirsynju. Ef slitastjórnin virkilega trúir því að íslenskir dómstólar séu illa í stakk búnir til að leysa úr þessu flókna og umfangsmikla skaðabótamáli af skipulagslegum ástæðum og vegna fjárskorts og undirmönn- unar verður að teljast undarlegt að hún hyggist leggja fyrir Hér- aðsdóm Reykjavíkur önnur flókin og umfangsmikil ágreiningsmál sem komið hafa upp í tengslum við slitameðferðina í stað þess að leita úrlausna hjá dómstólum erlendis. Það kann vel að vera að einhver haldgóð rök standi til málshöfðun- ar slitastjórnar á hendur þessum íslensku mönnum úti í New York. Ég skal ekkert um það segja en þau rök að íslenskir dómstólar séu illa í stakk búnir til að leysa úr málinu standast ekki skoðun. Dómsmál Brynjar Níelsson formaður Lögmanna- félags Íslands Þar sem ég tel álit forseta lagadeildar HR rangt þótti mér rétt og skylt sem starfsmanni og þjóni íslenska réttarkerfisins að andmæla því með yfirlýsingu. BLÁI HRINGURINN ALÞJÓÐADAGUR UM SYKURSÝKI 14.NÓVEMBER KAUPUM HRINGINN TIL STYRKTAR SAMTÖKUM SYKURSJÚKRA FÆST Í ÖLLUM APÓTEKUM FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN MÁ BJÓÐA YKKUR MEIRI VÍSI? Deildu Vísi með öðrum. Þeir sem setja „like“ við Vísi á Facebook geta unnið óvænta vinninga í hverri viku.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.