Fréttablaðið - 08.01.2011, Qupperneq 4
4 8. janúar 2011 LAUGARDAGUR
STJÓRNMÁL Kveðið er á um stofnun
atvinnuvegaráðuneytis í stjórn-
arsáttmála Samfylkingar og
Vinstri grænna
og honum verð-
ur fylgt. Þetta
kom fram í
máli Jóhönnu
Sigurðardótt-
ur forsætisráð-
herra eftir rík-
isstjórnarfund
í gær.
„Atvinnu-
vegaráðuneyti
verður stofnað í tíð þessarar rík-
isstjórnar og vonandi á þessu
þingi,“ sagði hún.
Forsætisráðherra gaf lítið fyrir
meinta andstöðu Jóns Bjarnason-
ar, sjávarútvegs- og landbúnað-
arráðherra, við stofnun ráðuneyt-
isins. „Hann vissi að þetta væri í
stjórnarsáttmálanum og þeir sem
settust í ríkisstjórn vita að þeirra
verkefni er að framfylgja honum
og því sem lagt er upp með.“ - óká
GENGIÐ 07.01.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
208,4737
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
117,33 117,89
181,27 182,15
152,31 153,17
20,441 20,561
19,690 19,806
17,078 17,178
1,4040 1,4122
178,91 179,97
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is
BANDARÍKIN Þrjátíu og fimm af
fimmtíu ríkjum Bandaríkjanna
eru rekin með halla á þessu ári.
Samanlagður fjárlagahalli þeirra
er talinn nema um 16.500 millj-
örðum íslenskra króna, eða um
140 milljörðum Bandaríkjadala.
Næst á eftir hruni húsnæðismark-
aðarins er fjárhagsvandi ríkjanna
talinn mesti efnahagsvandi sem
Bandaríkin eiga nú við að etja.
Hallinn í Kaliforníu er 6,6 pró-
sent af ríkisútgjöldum en talið er
að horfurnar séu verstar í Illin-
ois, þar sem hallinn nemur um
47 prósentum af útgjöldum ríkis-
ins, að sögn Bloomberg. Á frétta-
vefnum Chicago Breaking Busin-
ess segir að ríkið hafi lengi notað
lánsfé til að fjármagna rekstur
sinn. Eyða mætti tæpum helm-
ingi hallans með því að hækka
tekjuskatt einstaklinga úr 3 pró-
sentum í 5 prósent. Skattahækk-
anir njóta takmarkaðs stuðnings á
nýkjörnu fylkisþingi Illinois í kjöl-
far kosningasigurs repúblíkana.
Skuldatryggingaálag á skulda-
bréfum Illinois-ríkis hefur náð
nýjum hæðum. Nýr formaður
fjárlaganefndar fulltrúadeild-
ar Bandaríkjaþings í Washing-
ton-borg, repúblikaninn Paul
Ryan frá Wisconsin, segir að for-
svarsmenn nokkurra ríkja gefi til
kynna áhyggjur af greiðslufalli í
einkasamtölum við áhrifamenn í
Washington.
Hann segir þó að ríkin geti
engrar aðstoðar vænst frá alríkis-
stjórninni. „Ættu skattgreiðend-
ur í Indiana, sem hafa borgað sína
reikninga á réttum tíma, að borga
vanskilaskuldir óreiðumanna í
Kaliforníu?“ spyr Paul Ryan í
samtali við Bloomberg, og svar-
ar sjálfur: „Nei, það mundi fela í
sér siðferðislega áhættu sem við
höfum engan áhuga á að taka.“
Þótt margir fjárfestar sem eiga
miklar eignir í skuldabréfum ríkj-
anna séu órólegir telja aðrir ljóst
að Paul Ryan og alríkisstjórnin
muni eiga erfitt með að víkja sér
undan vandanum. „Eftir að hafa
sagt já við AIG yrði erfitt fyrir
alríkisstjórnina að segja nei við
Illinois,“ segir Hugh McGuirk,
sem stýrir sjóði sem á um 1.600
milljarða eignir í skuldabréfum
sveitarfélaga. Hann vísar til þess
að aðgerðir til að forða stærsta
tryggingafélagi Bandaríkjanna frá
falli hafi kostað bandaríska skatt-
greiðendur 182 milljarða dala,
sem er hærri fjárhæð en saman-
lagður halli ríkjanna fimmtíu.
peturg@frettabladid.is
Þrjátíu og fimm ríki
eru rekin með halla
Mikill fjárlagahalli einstakra ríkja í Bandaríkjunum ógnar efnahagslífi lands-
ins. Nýr formaður fjárlaganefndar fulltrúadeildar útilokar að alríkisstjórnin
hlaupi undir bagga. Samanlagður fjárlagahalli er um 16.500 milljarðar króna.
HALLAR UNDAN FÆTI Illinois-ríki er talið í mestum efnahagserfiðleikum af ríkjum
Bandaríkjanna. Áhyggjuraddir eru farnar að heyrast um greiðslufall ríkisins en slíkt
ástand hefur ekki skapast í ríkjum Bandaríkjanna síðan árið 1933, þegar Arkansas gat
ekki greitt sínar skuldir. MYND/AFP-NORDICPHOTOS
Er þinn
auður í góðum
höndum?
Byrjaðu árið með Auði
• Séreignarsparnaður
• Sparnaður
• Eignastýring
Borgartúni 29
S. 585 6500
www.audur.is
Óháð staða skilar árangri
JÓHANNA
SIGURÐARDÓTTIR
Stjórnarsáttmála verður fylgt:
Ráðherrar vissu
að sameina
ætti ráðuneyti
SVEITARSTJÓRNIR Bæjarráð Kópa-
vogs hefur samþykkt að segja
upp leigusamningi Héraðsskjala-
safns Kópavogs í núverandi hús-
næði í Hamraborg. Uppsagnar-
fresturinn er eitt ár. Ræða á við
leigusalann um hagkvæmari
leigusamning. Bæjarfulltrúar
eru þó sammála um að húsnæðið
sé óhentugt. Gunnar I. Birgisson,
sem er formaður stjórnar félags-
ins sem leigir skjalasafninu hús-
næðið, vék að þessu sinni af fundi
þegar málið var tekið á dagskrá.
Eins og komið hefur fram í
Fréttablaðinu á fulltrúaráð Sjálf-
stæðisfélaganna í Kópavogi
75 prósent í umræddu félagi.
Ármann Kr. Ólafsson bæjar-
fulltrúi gagnrýndi að ekki væri
búið að ræða við leigasalann um
lækkun leigunnar. - gar
Bæjarráð segir upp samningi:
Skjalasafnið í
óhentugu rými
MENNTAMÁL Hægt er að fá mun
meiri samlegðaráhrif út úr
íslenskum háskólum en nú er,
jafnvel þótt
samrunar
gangi ekki
eftir. Þetta er
meðal þess
sem fram kom
í máli Katrín-
ar Jakobsdóttur
menntamála-
ráðherra eftir
ríkisstjórnar-
fund í gær.
„Ég hef til að mynda margoft
bent á að ef við lítum til mun
stærra ríkis, Svíþjóðar, þá eru
skólar þar með sameiginlegt
skráningarkerfi,“ sagði hún, en
svo er ekki hér á landi. - óká
Hagrætt í háskólakerfinu:
Skráningarkerfi
háskóla verði
sameiginlegt
KATRÍN
JAKOBSDÓTTIR
VIÐSKIPTI Kristín Guðmundsdótt-
ir hefur verið
ráðin forstjóri
Skipta hf. Hún
hefur starfað
sem fjármála-
stjóri félags-
ins undanfarin
átta ár og jafn-
framt verið
staðgengill for-
stjóra á þeim
tíma. Brynjólf-
ur Bjarnason
hætti sem forstjóri félagsins í
lok nóvember. - sh
Kristín Guðmundsdóttir ráðin:
Forstjóraskipti
hjá Skiptum
KRISTÍN
GUÐMUNDSDÓTTIR
DÓMSMÁL „Ef stefnandi hefur betur
þá verður ekki búsáhaldabylting
heldur stríðsástand,“ sagði Vil-
hjálmur H. Vilhjálmsson, lögmað-
ur og bróðir Inga F. Vilhjálmsson-
ar, blaðamanns á DV, fyrir rétti í
gær. Þar var flutt mál knattspyrnu-
mannsins Eiðs Smára Guðjohnsen
á hendur Inga og ritstjórum DV
fyrir ætlað brot á friðhelgi einka-
lífs hans.
Eiður krefst fimm milljóna í
bætur vegna umfjöllunar um fjár-
hagsmálefni hans.
Vilhjálmur sagði málið snúast
um grundvöll tjáningarfrelsisins
og ef dómur félli Eiði í hag gætu
blaðamenn pakkað saman og
farið heim. Eiður hefði ekki held-
ur sýnt fram á neinn skaða
sem réttlætti bótakröfuna.
„Hefur hann yfirhöfuð
misst svefn yfir þessu?“
spurði Vilhjálmur.
Hann benti á að Eiður
væri opinber per-
sóna og þyrfti að þola
umfjöllun um fjár-
mál sín eins og verið
hefði í gegnum tíðina
– þegar vel hefði geng-
ið – athugasemdalaust.
Lögmaður Eiðs, Heiðrún Lind
Marteinsdóttir, sagði umfjöllun
DV siðlausa og byggða á stoln-
um gögnum.
Til stóð að Eiður Smári
gæfi skýrslu fyrir dómn-
um símleiðis en lögmenn
sættust á að hætta við
það þar sem slík skýrsla
var ekki talin myndu
bæta miklu við. - sh, vg
Verjandi blaðamanns DV segir Eið Smára þurfa að þola umfjöllun um fjármál sín:
Stríðsástand ef Eiður hefur betur
EIÐUR SMÁRI
GUÐJOHNSEN
ÞÝSKALAND Þýska landbúnaðar-
ráðuneytið hefur bannað sölu á
afurðum frá yfir 4.700 búum vítt
og breitt um landið vegna díox-
ínmengunar í fóðri. Flest þess-
ara búa eru svínabú í Neðra-
Saxlandi.
Í tilkynningu sem send var út í
fyrrakvöld segir að bannið gildi
þar til búið sé að rannsaka búin
og ganga úr skugga um að þar sé
ekki mengun að finna. Talið er að
um 3.000 tonn af menguðu fóðri
hafi komist í umferð í nóvember
og desember.
Díoxínmengun í Þýskalandi:
Banna sölu frá
5 þúsund búum
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
18°
7°
6°
4°
9°
9°
3°
3°
21°
10°
18°
1°
18°
0°
11°
12°
1°Á MORGUN
8-13 m/s
Hvassast SA-til.
MÁNUDAGUR
Hvessir töluvert
norðvestanlands.
-3
-5
-6
-5
-8
-3
-7
-1
-5
2
-10
7
8
7
7
6
6
8
12
6
10
6
-5
-8 -14
-12
-6 -3
-4 -8
-7
-2
LÆGIR Í dag má
búast við norðvest-
lægum áttum, víða
5-10 m/s en heldur
hvassara verður
við SA ströndina.
Á morgun kólnar
töluvert en á
mánudaginn dreg-
ur úr frosti á ný.
Þá hvessir heldur
á Snæfellsnesi og
Vestfjörðum með
snjókomu.
Soffía
Sveinsdóttir
veður-
fréttamaður