Fréttablaðið - 08.01.2011, Page 24
24 8. janúar 2011 LAUGARDAGUR
Hátíðardagskrá í tilefni af aldarafmæli Háskóla Íslands er fjöl-breytt og lögð áhersla á viðburði sem eru opnir almenningi.
Meðal þess sem boðið verður upp á eru fyrirlestrar, opnir dagar
og málþing þar sem fjallað er um margvísleg málefni sem tengjast
háskólarannsóknum. Hátíðarfyrirlestrar verða reglulega og meðal
þeirra sem stíga á stokk í þeim eru nóbelsverðlaunahafar og heims-
þekktir fræðimenn. Dagskráin er eftirfarandi:
15. janúar: Kári Stefánsson: Kári flytur
erindið „Hönnun manns – hvernig maður-
inn skapast af samspili erfða og umhverf-
is“. Erindi Kára er hið fyrsta í röð af hátíð-
arfyrirlestrum rektors á afmælisári.
4. apríl: David Suzuki: Dr. Suzuki er
öndvegisfyrirlesari Verkfræði- og náttúru-
vísindasviðs, sjónvarpsmaður og náttúru-
verndarsinni. Hann er þekktur fyrir að
útskýra náttúruvísindin á einfaldan og
heillandi hátt. Sjónvarpsþættir hans,
The Nature of Things, hafa verið sýndir í
meira en fjörutíu löndum.
21. maí: Nóbelsverðlaunahafinn Eliza-
beth Blackburn: Dr. Blackburn er annar
tveggja öndvegisfyrirlesara heilbrigðis-
vísindasviðs. Hún hlaut Nóbelsverðlaunin í líf- og læknavísindum
árið 2009 en hún uppgötvaði telomerasa, ensím sem sér um að eftir-
mynda litningaenda við frumuskiptingar.
1. júní: Nóbelsverðlaunahafinn Francoise Barré-Sinoussi: Dr.
Barré-Sinoussi er annar tveggja öndvegisfyrirlesara Heilbrigðis-
vísindasviðs en hún gerði rannsóknir sem skiptu sköpum við upp-
götvun á HIV-veirunni og þeirri stað-
reynd að veiran veldur alnæmi. Dr.
Barré-Sioussi er einnig ötull baráttu-
maður gegn alnæmi og hefur verið
Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni og
fleirum til ráðgjafar í þeirri baráttu.
1. september: Linda Darling-Ham-
mond: Dr. Darling-Hammond er öndvegis-
fyrirlesari Menntavísindasviðs. Hún
er prófessor við Stanford-háskóla og
einn fremsti sérfræðingur heims á sviði
menntamála. Hún var meðal annars Bar-
ack Obama Bandaríkjaforseta til ráðgjaf-
ar um menntamál í kosningabaráttu hans.
9. september: Noam Chomsky: Dr.
Noam Chomsky er öndvegisfyrirlesari
Hugvísindasviðs á aldarafmælinu. Hann
er einn þekktasti samfélagsrýnir heims auk þess að hafa lagt
grunninn að nútímamálvísindum að margra dómi.
3. október: Robert David Putnam: Dr. Putnam er öndvegis-
fyrirlesari Félagsvísindasviðs. Hann er með virtustu stjórnmála-
fræðingum heims og prófessor við JFK School of Government við
Harvard-háskóla. Hann hefur verið ráðgjafi margra þjóðarleiðtoga
á borð við Clinton-hjónin, Barack Obama, George W. Bush, Tony
Blair, Gordon Brown og Nicolas Sarkozy.
*Nánari upplýsingar um afmælisdagskrána er að finna
á heimasíðu Háskóla Íslands, www.hi.is.
Við erum ekki komin svo langt að
ákveða hvort og með hvaða hætti
þetta yrði gert. Við viljum reynd-
ar leggja áherslu á samspil milli
nemenda og kennara, að þeir sýni
aukna skilvirkni. Það er of algengt
að fólk sé ekki í fullu námi, sem er
óhagkvæmt fyrir skólann.
En þessari skoðun ætlum við að
ljúka í mars þannig að niðurstöð-
ur verði ljósar áður en innritun
hefst í vor.“
Vill hækka skráningargjöld
Hvað með skólagjöld, kemur til
greina að innheimta gjöld fyrir
nám við Háskóla Íslands?
„Okkur er ekki heimilt að inn-
heimta skólagjöld og það hefur
hvorki verið nein umræða um þau
né pólitískur vilji til að taka upp
skólagjöld við Háskóla Íslands.
Ég hef lagt áherslu á að skrán-
ingargjöld verði hækkuð, þau eru
45.000 og hafa verið óbreytt síðan
2005. Því miður var beiðni okkar
um að fá að hækka þau í 65.000
hafnað fyrir jól. Þessi hækkun
hefði skilað okkur 300 milljónum
miðað við núverandi nemenda-
fjölda og leyst mikinn vanda fyrir
okkur.“
Prófessorarnir Eiríkur Stein-
grímsson og Magnús Karl Magnús-
son hafa lýst yfir áhyggjum vegna
stöðu rannsókna við Háskóla
Íslands og vilja efla samkeppn-
issjóði sem veita styrki til rann-
sókna. Hver er þín skoðun á þess-
ari umræðu?
„Ég tel vissulega að efla þurfi
samkeppnissjóði. Eins og staðan
er núna hafa sjóðirnir ekki bol-
magn til að styrkja nema tíu til
tólf prósent umsókna. Það á þó
ekki að styrkja sjóðina á kostnað
háskólanna, því til að geta tekið
við styrkjum þarf aðstöðu. Í til-
raunavísindum, til að mynda, þarf
stofur, dýr efni, tæki og fleira,
sem allt kostar. Þetta eru tvö
aðskilin mál í mínum huga.“
Háskólinn verður að tengjast
atvinnulífinu
Í Rannsóknarskýrslunni sem út
kom síðasta vor var meðal ann-
ars sjónum beint að háskóla-
samfélaginu og það
gagnrýnt fyrir skort á
aðhaldi við viðskiptalíf-
ið. Hvernig blasir þessi
umræða við þér?
„Við tökum auðvit-
að mark á því sem þar
kemur fram eins og
aðrir. Þessi umræða
er ekki séríslensk og
háskólar alls staðar í
nágrannalöndunum eru
að bregðast við sams
konar gagnrýni. Í kafl-
anum um ábyrgð gagn-
vart samfélaginu og
umheiminum í hinni
nýju stefnu er meðal
annars fjallað um skyld-
ur fræðimanna í opin-
berri umræðu. Hins
vegar vil ég líka benda
á að fræðimenn settu
fram gagnrýni á við-
skiptalífið bæði í skýrsl-
um og fjölmiðlum en
hljómgrunnurinn var enginn.“
Var Háskólinn of nátengdur
atvinnulífinu á útrásartímum?
„Nei, fjarri því. Velta skólans
var þá um 14 milljarðar árlega
en á tímabilinu 2004 til 2008 fékk
hann 20 milljónir í styrki árlega
frá atvinnulífinu, sem eru um 0,1
prósent af veltu. En við megum
heldur ekki líta framhjá því að
eitt af hlutverkum háskólans er að
vera í sambandi við atvinnulífið og
þekkja þarfir þess. Reglurnar um
samskipti háskóla og atvinnulífs
þurfa hins vegar að vera skýrar.
Þó að styrkur fyrir tiltekinni rann-
sókn komi frá atvinnulífinu þýðir
það ekki að fyrirtækið hafi nokk-
uð að gera með hvernig henni er
stýrt.“
Afmælisárið spennandi
Afmælisárið er hafið og fjölbreytt
hátíðardagskrá fram undan. Hvern-
ig leggst þetta afmælisár í þig?
„Það leggst afar vel í mig. Auð-
vitað eru þetta erfiðir
tímar um þessar mund-
ir en 100 ára afmæli
kemur bara einu sinni.
Ég held að við getum
notað árið vel og það
ætlum við að gera með
tvenns konar hætti.
Annars vegar viljum við
kynna háskólann fyrir
almenningi og mjög
margt verður á dag-
skrá sem opið er öllum
áhugasömum, fullorðn-
um sem börnum. Dag-
skráin verður bæði hér
á háskólasvæðinu og úti
á landi í samvinnu við
rannsóknar- og fræða-
setur háskólans. Hins
vegar viljum við nota
árið til nýrrar hugsun-
ar, horfa fram á við og
lyfta okkur upp.
Ný stefnumótun er
mikilvægur hluti þess
og það er sannarlega upplífgandi
að skynja hug starfsmanna og
stúdenta og finna stuðning mennta-
og menningamálaráðherra við
stefnumótunina. Ef okkur tæk-
ist í samvinnu við stjórnvöld að
finna leiðir til að hrinda stefn-
unni í framkvæmd væri það besta
afmælisgjöf skólans og jafnframt
besta gjöf sem samfélagið gæfi
sjálfu sér. Háskólinn skiptir gríð-
arlega miklu máli fyrir Íslendinga,
fyrir menntunarstigið í landinu,
fyrir getu okkar til að skapa ný
verðmæti í framtíðinni og fyrir
samfélagsgerðina. Við verðum að
hlúa að honum og efla.“
FRAMHALD AF SÍÐU 23
Noam Chomsky
Nóbelsverðlaunahafar stíga á stokk
➜ Háskóli Íslands var stofnaður 17. júní árið 1911, á aldarafmæli Jóns
Sigurðssonar forseta og fyrstu 29 árin var hann til húsa í Alþingishús-
inu við Austurvöll. Við stofnun Háskóla Íslands voru Prestaskólinn,
Læknaskólinn og Lagaskólinn sameinaðir og mynduðu hver sína deild
skólans, auk þess sem heimspekideild var bætt við.
➜ Háskólaárið 1911-1912 voru nemendur einungis 45 og þar af ein kona,
en starfsárið 2010-2011 eru um sextán þúsund nemendur í námi við
Háskóla Íslands og eru um tveir þriðju hlutar þeirra konur. Við háskól-
ann er boðið upp á mikinn fjölda námsleiða á grunn-, meistara- og
doktorsstigi.
➜ Árið 1940 flutti Háskóli Íslands í Aðalbyggingu við Suðurgötu. Húsa-
kostur skólans hefur vaxið mikið síðan og er nýjasta byggingin Háskóla-
torg sem stendur sunnan við Aðalbyggingu og var vígt 1. desember
2007.
➜ Hinn 1. júlí 2008 tók gildi nýtt skipulag og stjórnkerfi Háskóla Íslands
og á sama tíma sameinaðist skólinn Kennaraháskóla Íslands á aldar-
afmæli síðarnefnda skólans. Hinn nýi Háskóli Íslands skipast í fimm
fræðasvið sem hvert um sig skiptist í nokkrar deildir. Fræðasviðin eru
Félagsvísindasvið, Heilbrigðisvísindasvið, Hugvísindasvið, Menntavís-
indasvið og Verkfræði- og náttúruvísindasvið. Auk þess er við skólann
starfræktur fjöldi rannsókna- og þjónustustofnana.
➜ Á 100 ára afmæli Háskóla Íslands árið 2011 kemur út vegleg aldarsaga
hans í ritstjórn Gunnars Karlssonar, sagnfræðings og prófessors emiritus.
Einstaka kafla sögunnar skrifa sagnfræðingarnir Guðmundur Hálfdanar-
son, Sigríður Matthíasdóttir og Magnús Guðmundsson. *heimild: www.hi.is
ALDARSAGAN VÆNTANLEG*
■ VEGLEG AFMÆLISDAGSKRÁ
KORPUOUTLET, KORPUTORGI • Opið mánudag til laugardags frá 11 til 18 • Sunnudaga frá 12 til 18 • S. 578 9400
Stærsti lagermarkaður landsins!
FJÖLDI
VÖRUMERKJA!
Fatnaður fyrir
alla fjölskylduna
Íþróttafatnaður
Skór
Töskur
Skartgripir
Málverk
GE
RÐ
U
FR
ÁB
Æ
R
KA
UP
!
*
G
ild
ir
e
kk
i a
f
ö
ð
ru
m
s
ér
til
b
o
ð
um
, D
V
D
o
g
h
ús
g
ö
g
nu
m
Eitt af hlut-
verkum há-
skólans er að
vera í sam-
bandi við
atvinnulífið
og þekkja
þarfir þess.
Kári Stefánsson