Fréttablaðið - 08.01.2011, Page 26

Fréttablaðið - 08.01.2011, Page 26
26 8. janúar 2011 LAUGARDAGUR Ég sé ekki að stórmót í handbolta fari fram á Íslandi í nánustu framtíð Hassan Mustafa frá Egyptalandi hefur verið forseti Alþjóða handknatt- leikssambandsins frá árinu 2000 og er óhætt að segja að hann sé afar umdeildur. Nýlega lagði hann til að minnka mörkin og stækka vítateiginn. Það er mat flestra sérfræðinga um hand- boltaíþróttina að best væri að næsti forseti IHF kæmi úr röðum handknattleikssam- bands Evrópu. Guðjón Guðmunds- son handboltasérfræð- ingur telur að breyting- ar verði gerðar á allra næstu árum. „Mustafa hefur gert margt gott í Asíu og Afríku, þang- að sem hann sækir fylgi sitt. Hins vegar tel ég að það sé nauð- synlegt að fá nýtt blóð frá Evrópusambandinu í þessa stöðu. Hand- boltinn þarf að taka skref upp á við sem íþrótt á alþjóðavett- vangi á næstu árum og það góða er að margir þekktir og sterkir ein- staklingar – gamlir landsliðsmenn og þjálf- arar – eru nú komnir í ábyrgðarstöður hjá ýmsum sambönd- um í Evrópu. Þessir menn eiga eftir að gera atlögu að forsetaemb- ættinu áður en langt um líður og það er að mínu mati gott mál fyrir handboltann,“ segir Guðjón. Mustafa er aðeins fimmti forsetinn í sögu IHF og sá fyrsti sem kemur frá landi utan Evrópu. Hinir fjórir eru Sví- inn Gösta Björk (1946- 50), Svisslendingur- inn Hans Baumann (1950-71), Svíinn Paul Högberg (1971-1984) og Austurríkismaður- inn Erwin Lanc (1984- 2000). ■ HASSAN MUSTAFA: Umdeildur forseti IHF Gull: Þýska- land Gull: Svíþjóð 9. sæti Gull: Svíþjóð Gull: Rúm- enía 6. sæti Gull: Rúm- enía 9. sæti Gull: Tékkó- slóv- akía Gull: Rúm- enía 11. sæti Gull: Rúm- enía 14. sæti Gull: Vestur Þýska- land 13. sæti Gull: Júgo- slavía 6. sæti Gull: Svíþjóð 10. sæti Gull: Rúss- land 8. sæti Gull: Frakk- land 14. sæti Gull: Rúss- land 5. sæti Gull: Svíþjóð Gull: Frakk- land 11. sæti Gull: Króatía 7. sæti Gull: Spánn 15. sæti Gull: Þýska- land 8. sæti Gull: Frakk- land Gull: Sovét- ríkin 1938 1954 1958 1961 1964 1967 1970 1974 1978 1982 1986 1990 1993 1995 1997 1999 2001 2003 2005 2007 2009 2011 2013 Þýskaland Svíþjóð Austur- þýskaland Vestur- Þýskaland Tékkó- slóvakía Svíþjóð Frakkland Austur- Þýskaland Danmörk Vestur- Þýskaland Sviss Tékkó- slóvakía Svíþjóð Ísland Japan Egypta- land Frakkland Portúgal Túnis Þýska- land Króatía Svíþjóð Spánn ■ SAGA HEIMSMEISTARAMÓTSINS Í HANDBOLTA Neðsta línan sýnir hvaða ár keppnin var haldin og hverjir voru gestgjafar. H eimsmeistaramótið í handbolta verð- ur sífellt stærra og stærra. Þjóðverjar settu ný viðmið árið 2007. Svíar ætla sér að gera enn betur á HM 2011 sem hefst í næstu viku. Saga heimsmeistaramótsins í hand- bolta í karlaflokki hófst árið 1938 og HM í Svíþjóð sem hefst hinn 13. jan- úar verður það 22. í röðinni. Svíar ætla sér að gera betur en Þjóðverjar, sem settu mótið á nýjan stall árið 2007 með glæsilegri og áhrifamikilli umgjörð. Króatar náðu að fylgja því ágætlega eftir tveimur árum síðar. Alþjóðahand- knattleikssambandið, IHF, hefur mátt þola mikla gagnrýni á framkvæmd HM í gegnum tíðina og mótin í Portú- gal 2003 og Túnis 2005 voru langt frá því að vera vel heppnuð. Ég var sjálfur við störf sem blaða- maður á HM í Portúgal árið 2003 og margt á því móti kom verulega á óvart. Skipulagið var í molum og allt var gert á síðustu stundu. Áður en riðla- keppnin hófst var ekki ljóst hvar liðin myndu leika í milliriðli. Eini íslenski stuðningsmaðurinn var því á báðum áttum hvar hann ætti að panta sér hót- elherbergi – en það reyndist ekki vera stór valkvíði því aðeins tvö hótel voru í boði í smábænum Caminha þar sem Íslendingar léku í milliriðli. Aðstaða blaða– og fréttamanna var algjört grín og sátu íslenskir blaða- menn með pappaspjöld á lærum sér sem notuð voru sem skrifborð í leikj- unum í íþróttahúsinu í Caminha sem gat tekið við um 1.500 áhorfendum. Við sátum reyndar í miðri áhorf- endaþvögunni – það er önnur saga. Í fréttamannaaðstöðunni eftir leiki voru nokkrar borðtölvur tengdar við eina 56 kb nettengingu sem átti að duga fyrir alla blaðamenn – og ljós- myndara. Það var stórkostlegur hraði á því öllu saman – eða þannig. Fjölmiðlastéttin lét óánægju sína berlega í ljós og hlutirnir voru aðeins betri tveimur árum síðar í Túnis en mótið sjálft náði ekki neinum hæðum hvað áhorfendur varðar og stemningu. Þjóðverjar sýndu hvað þeir geta Þjóðverjar voru gestgjafar HM árið 2007 og þar voru sett ný viðmið í fram- kvæmd mótsins. Keppnishallirnar voru stærri en áður hafði þekkst og áhorfendur létu sig ekki vanta. Sem dæmi má nefna að í Magdeburg, þar sem Íslendingar léku í riðlakeppninni, var ávallt uppselt og 7.000 áhorfendur mættu á alla leikina í riðlakeppninni. Þjóðverjar fengu hæstu einkunn fyrir framkvæmdina en Svíar hafa lofað því að HM 2011 verði það stærsta frá upphafi. HM á aðeins eftir að stækka Guðjón Guðmundsson, handboltasér- fræðingur Stöðvar 2, segir að heims- meistaramótið eigi eftir að stækka og stækka í nánustu framtíð. „Það eru gerðar meiri kröfur en áður um aðbúnað og aðstöðu fyrir áhorfendur. Sjónvarpsáhorfið er einnig mun meira en áður og til marks um það hafa margir gert þá kröfu að leikhléum verði fjölgað. Það er krafa frá þeim sem eru rétthafar frá þessum mótum – þeir vilja fleiri hlé fyrir auglýsing- ar,“ segir Guðjón. Um 100 sjónvarps- stöðvar verða með beinar útsendingar frá HM og um tveir milljarðar manns í 160 löndum geta séð þessa leiki. HM hefur aldrei farið fram í Amer- íku eða Eyjaálfu en Brasilía, Argent- ína og jafnvel Síle eru í stakk búin að takast á við slíkt verkefni. Heimsmeistaramótið fór fram á Íslandi árið 1995 en litlar sem engar líkur eru á því að HM fari aftur fram á Íslandi. Árið 1995 var Mókollur, lukkudýr keppninnar, oftar en ekki einn í stúkunni. Áhorfendur voru fáir á flestum leikjum og hátt miðaverð var ein af skýringunum. Leikið var í Reykjavík, Hafnarfirði, Kópavogi og Akureyri. Íþróttamannvirkin á Íslandi standast ekki kröfurnar sem gerðar eru Hér á landi eru ekki til íþróttamann- virki sem standast þær kröfur sem gerðar eru af Alþjóða handknattleiks- sambandinu í dag. Úrslitaleikurinn þarf að fara fram í keppnishöll sem rúmar í það minnsta 13.000 áhorfend- ur í sæti. Knútur Hauksson, formaður Handknattleikssambandsins, sagði í samtali við Fréttablaðið að HSÍ hefði skoðað lauslega þær kröfur sem sett- ar eru vegna lokakeppni á Evrópu- meistaramóti kvenna. „Við sáum það fljótlega að við erum langt frá þeim viðmiðum hvað varðar aðstöðu. Ég sé ekki að stórmót í handbolta fari fram á Íslandi í nánustu framtíð,“ sagði Knútur. Hver man eftir Mókolli? Heimsmeistaramótið í handbolta verður sífellt stærra og stærra. Þjóðverjar settu ný viðmið árið 2007 en Svíar ætla sér að gera enn betur á HM 2011. Sigurður Elvar Þórólfsson rifjar upp nokkur atriði úr sögu HM, sem fer líklega aldrei aftur fram á Íslandi. LANGBESTIR? Frakkar hafa á undanförnum áratug verið með eitt besta handboltalandslið heims. Frakkar unnu sín fyrstu gullverðlaun á stómóti á HM á Íslandi 1995. FRÉTTABLAÐIÐ/DIENER HASSAN MUSTAFA Forseti IHF. NORDICPHOTOS/AFP
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.