Fréttablaðið - 08.01.2011, Síða 32
8. janúar 2011 LAUGARDAGUR
M
eð átakinu á
þrettándanum,
sem ber heitið
Rödd þjóðar-
innar, segjast
aðstandendur
vilja vekja athygli á baráttunni
fyrir þeirri einlægu ósk að nátt-
úruauðlindir Íslands verði í eigu
almennings. Takmarkið er að
safna 35.000 undirskriftum á
áskorun þess efnis.
Við setningu maraþonsins á
fimmtudag gerðu téðir aðstand-
endur grein fyrir skoðunum
sínum á blaðamannafundi áður
en Ólafur Stefánsson, landsliðs-
fyrirliði í handknattleik, og popp-
stjarna Íslands, Páll Óskar Hjálm-
týsson, riðu á karókívaðið með
dúettsöng á lagi Páls, Allt fyrir
ástina. Ólafur brá á leik og breytti
texta viðlagsins í Allt fyrir orkuna
við fögnuð viðstaddra.
Við tóku fleiri nafntogaðir ein-
staklingar sem létu ljós sitt skína.
Sumir kunnu textana illa og nýttu
sér gamalkunn karókíbrögð til
að draga athyglina frá sjálfum
söngnum, allt eftir karókísins
reglum.
Raddir þjóðarinnar
Í kvöld lýkur þriggja daga karókímaraþoni sem Björk Guðmundsdóttir
stendur fyrir í Norræna húsinu. Markmið þess er að vekja athygli á undir-
skriftasöfnun þar sem þess er krafist að þjóðin fái að kjósa um hvort auð-
lindir landsins verði í hennar eigin höndum. Anton Brink ljósmyndari og
Kjartan Guðmundsson litu við í Norræna húsinu og athuguðu stemninguna.
EITT LAG ENN Lóa og Örvar úr hljómsveitinni FM Belfast höfðu hugsað sér að syngja Fimmtán ára á föstu, lag Bjartmars Guðlaugs-
sonar, en uppgötvuðu að eigin sögn á síðustu stundu að þau kunnu ekki textann. Í staðinn varð Eurovision-lag Stjórnarinnar, Eitt
lag enn, fyrir valinu, en raunin varð sú að sá texti var þeim ámóta framandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
TVÍHÖFÐI Sigurjón Kjartansson og Borgarstjórinn Jón Gnarr fluttu besta lag í heimi
að sögn Jóns, Fjöllin hafa vakað með Egó, á angurværan hátt. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
NÁTTÚRUTALENT Björk Guðmundsdóttir, sem stendur fyrir karókímaraþoninu, og
náttúruunnandinn Ómar Ragnarsson sungu saman hið góðkunna lag Þrjú hjól undir
bílnum með hvílíkum ágætum að frekara samstarf hlýtur hreinlega að vera á döfinni.
PÁLL ÓSKAR Vel var mætt í Norræna
húsið og greinilegt að náttúruvernd og
karókísöngur snerta strengi í hjörtum
fólks.
MEISTARI Megas hefur hingað til ekki
verið þekktur fyrir karókísöng, en lengi
er von á einum.
Tækifærið er núna!
Viðskiptasmiðja Klaks og HR í samstarfi við EIJ ráðgjöf leitar eftir
fólki sem er með metnað og ástríðu til að taka að sér frumkvöðla-
hlutverk. Fyrirtækin eru fóstruð í farvegi Viðskiptasmiðjunnar
(sjá www.klak.is). Frumkvöðlar verða hluthafar í fyrirtækinu en ekki
launþegar fyrr en fyrirtækið hefur verið fjármagnað. Hluti af ferlinu
er fjármögnun fyrirtækis. Mögulegt er að vinna að uppbyggingu
fyrirtækis með annarri vinnu.
Leitað er að fólki í eftirtalin sprotafyrirtæki:
CORPORATE GOVERNANCE INITIATIVES (KLAK 201)
Fyrirtæki sem sérhæfir sig í verkefnum tengdum
stjórnarháttum fyrirtækja.
Leitað er eftir tveimur aðilum:
A) Sérfræðingi í upplýsingatækni,
B) Lögfræðingi eða endurskoðanda með þekkingu
á alþjóðlegri fyrirtækjalöggjöf.
PROJECT LEARNING VISION (KLAK 202)
Multimedia-fyrirtæki sem sérhæfir sig í námsgagnagerð fyrir háskóla.
Leitað er eftir tveimur aðilum:
A) Multimedia – hönnuði
B) Sérfræðing í kennslufræði og námsgagnagerð.
PROJECT TRAVELLING ENTREPRENEUR (KLAK 203)
Tímabundið verkefni sem snýr að uppbyggingu
nýsköpunarverkefna í þriðja heims löndum.
Leitað er eftir einum aðila:
Verkefnastjóra sem hefur unnið að alþjóðlegum verkefnum.
THE EDP – PROJECT (KLAK 204)
Markaðs – og hugbúnaðarfyrirtæki sem sérhæfir sig
í kortlagningu tækifæra fyrir fyrirtæki og frumkvöðla.
Leitað er eftir tveimur aðilum:
A) Aðila með reynslu af ímyndarhönnun og tískugreiningu
B) Vefhönnuði með þekkingu á markaðsmálum.
THE SALESCHANNEL (KLAK 205)
Sölu- og dreifingarhús fyrir vöru- og þjónustunýjungar.
Leitað er eftir tveimur aðilum:
A) Sölu- og markaðsmanni
B) Sölumanni með alþjóðlega reynslu.
LÍFSLEIKNISKÓLINN (KLAK 206)
Atburða- og námskeiðafyrirtæki sem sérhæfir sig í lífsleikni.
Leitað er eftir tveimur aðilum:
A) Verkefnastjóra sem er vanur að halda utan um námskeiðahald
B) Markaðs- og sölumanni.
CREATIVE KITCHEN (KLAK 207)
Fyrirtæki sem sérhæfir sig í hugmyndavinnu og atburðum
tengdum mat og matvinnslu.
Leitað er eftir tveimur aðilum:
A) Kokki með reynslu af veitingarekstri
B) Aðila með reynslu í atburðastjórnun.
Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2011.
Umsóknum skal skilað rafrænt merkt verkefninu (t.d. Klak 206)
á póstfangið klak@klak.is.
Vorönn Viðskiptasmiðjunnar – Hraðbraut nýrra fyrirtækja byrjar
17. janúar. Fyrirspurnir í póstfang: klak@klak.is.
Klak · Ofanleiti 2 · 103 Reykjavík · Sími 578 7755 · www.klak.is