Fréttablaðið - 08.01.2011, Blaðsíða 34
34 8. janúar 2011 LAUGARDAGUR
V
ið fjölskyldan erum með
hálfgerða Úganda-bakt-
eríu,“ segir Sylgja Dögg
Sigurjónsdóttir og bros-
ir kankvíslega til David
vinar síns frá Afríku-
landinu Úganda. Sylgja hefur komið
þrisvar sinnum til Úganda og smitað
bæði systkini sín, foreldra og ömmu
sína, Herdísi Þorvaldsdóttur leikkonu,
af Úganda-áhuga sínum. „Ég fór þang-
að fyrst sem sjálfboðaliði fyrir ABC-
barnaþorpin fyrir þrettán árum,“
segir Sylgja en fyrir fjórum árum
sneri hún aftur með manni sínum og
dvaldi í nærri ár á ferðalagi. „Þá hitt-
um við David í fyrsta sinn. Hann var
bílstjórinn okkar, þá aðeins 23 ára
gamall,“ lýsir Sylgja. David átti eftir
að kynnast fleirum úr fjölskyldunni
því fyrir þremur árum hélt systir
Sylgju, Harpa Fönn, utan til að vinna
við IFD (International friendship for
development) og ári síðar fór bróðir-
inn Benedikt út fyrir sömu samtök.
Alltaf tók David á móti þeim glað-
ur í bragði og var þeim innan hand-
ar með allt sem til féll. „Svo kynntist
hann líka pabba sem kom að heim-
sækja bæði Hörpu og Benna, og líka
ömmu, Herdísi Þorvaldsdóttur, þegar
við fórum öll fjölskyldan í heimsókn
til Hörpu fyrir þremur árum,“ lýsir
Sylgja. David er því sannkallaður fjöl-
skylduvinur.
Létu drauminn rætast
„David er mjög áhugasamur um allt
milli himins og jarðar. Hann elskar
að læra, ferðast, hitta nýtt fólk, kynn-
ast nýjum stöðum og þróa þannig
sjálfan sig áfram,“ segir Sylgja og
David kinkar kolli til samþykkt-
ar. „Þau sögðu mér frá því hvernig
hvíti maðurinn stæði að hlutunum í
heimalandi þeirra og ég sagði þeim
frá draumum mínum um að ferðast
og fara í skóla,“ segir David og bros-
ir til Sylgju sem heldur áfram: „Við
fjölskyldan tókum þá ákvörðun á síð-
asta ári að hafa jólagjafirnar í ódýrari
kantinum og leggja þess í stað í púkk
fyrir flugfari fyrir David til Íslands.
Maðurinn minn hætti meira að segja
við að kaupa gítarinn sem hann hafði
safnað sér fyrir og lagði peninginn
í söfnunina,“ segir hún glaðlega og
David brosir hálf feimnislega þegar
talið berst að þessari gjafmildi vina
hans.
„Svo rættist annar draumur þegar
við dvöldum hjá foreldrum Sylgju á
Húsavík um jólin,“ skýtur David inn í
og Sylgja útskýrir. „Já, foreldrar okkar
ákváðu, án þess að láta okkur hin vita,
að gefa David skjólagjöld í háskóla
úti,“ segir hún og David hristir hausinn
og vöknar um augun. „Það var alveg
meiriháttar,“ segir hann. „Ég hélt að
skólagöngu minni væri lokið því ég
hafði ekki efni á háskólanámi,“ segir
David, sem stefnir á að læra tölvuverk-
fræði við háskóla í Úganda.
Stormasöm saga
David ólst upp í miðhluta Úganda í
höfuð borginni Kampala með móður
Lífið er svo auðvelt á Íslandi
Íslensk fjölskylda með brennandi áhuga á Úganda ákvað að spara í jólagjöfum í ár og bjóða þess í stað ungum úgöndskum vini
sínum, David Kajjoba, til landsins yfir jól og áramót. Sólveig Gísladóttir forvitnaðist um hvernig heimsóknin tókst til.
GÓÐIR VINIR Sylgja Dögg og Benedikt Þorri kynntust David í Úganda þar sem hann var bílstjórinn þeirra, þýðandi og hjálparhella. Hann hafði aldrei áður komið um borð í
flugvél fyrr en hann flaug til Íslands fyrir jólin. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Amma mætt Herdís Þorvaldsdóttir með barnabarnabörnum sínum framan ABD-skólann í Úganda. ABC-skólinn Börn Sylgju, Dalía Lind og Ísar Loki, ásamt David við skóla ABC í Kitetika sem byggður er
fyrir íslenska peninga og framtak. Systkinin saman Sylgja Dögg, Benedikt Þorri og Harpa Fönn smakka bjór heimamanna í góðum félagsskap. Umkringd börnum Sigurjón Benediktsson, faðir Sylgju,
með barnabörnunum í heimsókn í IFD (International friendship for development) skólanum. Á siglingu Herdís Þorvaldsdóttir tekur sig vel út með rauða sólhlíf um borð í litlum báti.
Á
F
ER
Ð
A
LA
G
I
Í
Ú
G
A
N
D
A
sinni, stjúpföður og systkinum. Saga
Úganda er stormasöm og hefur stríðs-
ástand ríkt þar öðru hvoru í langan
tíma. Einræðisherrann Idi Amin réði
ríkjum til 1979 en undir hans stjórn
létust hundruð þúsunda manna. Hann
hraktist frá völdum eftir stríð Úganda
við Tansaníu en þá sneri aftur Obote
sem réði ríkjum til 1985 þar til hers-
höfðinginn Tito Okello komst til valda.
Sá réði ríkjum í hálft ár þar til hann
var hrakinn frá völdum af uppreisnar-
mönnum NRA, sem stjórnað var af
núverandi forseta landsins, Yoweri
Museveni. Síðan hafa orðið nokkrar
borgarastyrjaldir í landinu en óeirðir
hafa mestar verið í norðurhluta lands-
ins.
„Við töldum ástandið ágætt þegar
við ólumst upp þó foreldrar okkar hafi
vitað betur. Við misstum vini í stríði
og úr hungri. Mörg börn voru á göt-
unni og töluvert var um morð,“ lýsir
David en bætir kankvíslega við: „En
þetta hjálpaði okkur að þroskast.“
Lærði í bílnum
David starfaði sem bílstjóri með-
fram námi í menntaskóla. „Ég byrj-
aði að keyra þegar ég var fjórtán ára
og fimmtán ára var ég orðinn nokk-
uð glúrinn bílstjóri. Til að geta unnið
sem bílstjóri varð ég samt að taka bíl-
próf, sem ég gerði sautján ára,“ segir
David, sem missti oft af tímum í skól-
anum vegna vinnunnar. „Þá reyndi ég
að lesa sem mest í bílnum meðan ég
beið eftir fólki,“ segir hann brosandi.
Ótrúlegt skipulag
David gladdist mikið þegar hann fékk
boð frá vinum sínum um að koma til
Íslands. „Ég sá það sem tækifæri til
að þroskast, læra og kynnast fram-
andi menningu,“ segir David, sem
aldrei áður hafði stigið um borð í flug-
vél og millilenti bæði í Amsterdam
og Ósló. „Þegar ég kom til Amster-
dam varð ég mjög hissa. Allt var svo
skipulagt á flugvellinum, enginn var
hrokafullur eða dónalegur og allt gekk
eins og smurt,“ segir hann glaðlega.
Í Ósló þurfti hann að dvelja í nokkra
klukkutíma og hugsaði sér því gott til
glóðarinnar að skoða aðeins borgina.
„Þegar ég kom út varð ég fyrir hálf-
gerðu sjokki og fór strax inn aftur.
Það var svo svakalega kalt að mér leið
eins og ég væri að ganga inn í frysti,“
segir David og Sylgja bætir hlæjandi
við: „Það var 15 stiga frost.“
Byssulausar löggur
Eitt það fyrsta sem kom David á
óvart þegar hann kom til Íslands
voru göturnar, sem honum þótti ótrú-
lega hreinar. „Í Úganda eru göturn-
ar mjög skítugar og rusl úti um allt.
Hér var allt vel skipulagt, umferðar-
ljósin í lagi og engin umferðarteppa,“
segir hann og minnist á annað sem
kom honum á óvart. „Lögreglumenn-
irnir hér keyra um í makindum og
eru hvorki með byssur eða barefli,“
segir hann hissa og bendir á að lög-
reglan í Kampala gangi með AK47-
hríðskotariffla.
Stórfurðuleg heimilistæki
Inntur eftir því hvort hann hafi orðið
hissa á einhverju fleiru er David ekki
seinn til svars. „Mér fannst hreint
magnað að sjá öll tækin á heimilinu.
Ég vissi ekki einu sinni að það væri
Ég vissi ekki
einu að
það væri til
eitthvað sem
héti upp-
þvottavél og
ryksugan er
frábær.