Fréttablaðið - 08.01.2011, Page 40
8. JANÚAR 2011 LAUGARDAGUR6 ● fréttablaðið ● heilsa og hreyfi ng
Hvað segja íslenskir sérfræðingar um
strauma og stefnur 2011 hérlendis?
Fannar Karvel Steindórsson, íþróttafræðingur, einkaþjálfari og
styrktarþjálfari knattspyrnuliða Víkings, HK og Þróttar og körfu-
boltaliða Hamars
„Það sem fram undan er í heilsuræktargeiranum er
í raun bara áframhaldandi þróun á því sem búið er
að vera í gerjun undanfarin 2-3 ár. Þessi þróun lýsir
sér að mestu leyti í því að litið er á líkamann sem
eina heild frekar en samansafn vöðva sem unnið
er með í einangrun, til að mynda eru æfingar þar
sem notast er við eigin þyngd orðnar mjög fyrir-
ferðarmiklar hér á landi og verða það áfram. Gömlu
góðu armbeygjurnar fara til dæmis aldrei úr tísku og mikið verður af
æfingum sem eiga grunn sinn í fimleikum og margar af æfingunum
sem við notum í dag fyrir kvið og bak eru upprunnar í fimleikum.
Miðjuþjálfun kemur enn sterkar inn á nýju ári, í þess konar þjálfun
er mikil áhersla lögð á að kviður, bak og þeir vöðvar sem styðja við
hryggjarsúluna séu sem sterkastir og viðhaldi réttri líkamsstöðu. Aukin
áhersla verður líka á undirbúning æfinga og á ég þá við til dæmis
hreyfiteygjur og bandvefslosun með sérstökum keflum. Skorpuþjálfun
kemur líka til með að verða enn stærri en hún eru í dag. Þær æfingar
byggjast á mikilli ákefð í skamman tíma í einu, ákveðin hlé eru tekin
á milli og svo eru skorpurnar endurteknar. Slíkar æfingar skila miklu
meiru fyrir hjarta- og æðakerfi en „klassísku“ brennsluæfingarnar.“
Rakel Sigurðardóttir næringarráðgjafi
„Það er mín tilfinning að fólk sé farið að fókusera
meira inn á við, á heilsuna, fjölskylduna og heimilið
og farið að horfa meira á gæðin en magnið. Þá á ég
við til dæmis hvað mataræðið varðar, farið að hugsa
í minni skömmtum og meiri gæðum. Kreppa leiðir
af sér frjóan hugsunarhátt og fólk þarf að leita leiða
við að geta boðið sjálfum sér og fjölskyldu upp á
næringarríkan og heilsusamlegan mat. Fólk þarf
virkilega að velta því fyrir sér hvort einhver matartegund sé þess virði
að borga uppsett verð fyrir.
En þetta er spurning um forgangsröðun og spurning um hvað
skiptir mestu máli í lok dagsins. Það verður ekki nógu oft sagt, heilsan
er það dýrmætasta sem maður á. Ég held líka að fólk sé einnig farið
að átta sig örlítið á því hvað forvarnir og fyrirbygging skipta miklu
máli og hvað það skiptir miklu máli hvað það setur ofan í sig til lengri
tíma litið.
Fólk er, að mínu mati, orðið gagnrýnna á vörur og mögulega farið að
lesa sér nánar til um hvað varan inniheldur áður en það kokgleypir við
auglýsingum um möguleg heilsubætandi áhrif tiltekinnar vöru. Sem er
frábært, það þýðir að séum farin að taka skref til baka, taka meðvitaðri
ákvarðanir og bera meiri ábyrgð á eigin hag og heilsu.“
Erlend tímarit og netsíður hafa
nú í upphafi árs margar hverjar
birt spár um hvað verður áber-
andi í líkamsrækt og mataræði
næstu 12 mánuði. Vangaveltur
um strauma og stefnur ársins
eru vissulega jafn fjölbreyttar
og spámiðlarnir en nokkur
atriði birtust þó oftar en
önnur.
1. RÆKTIN
Piloxing er líkamsrækt sem er
ekki alveg ný af nálinni. Stjörn-
urnar vestanhafs hafa sumar hverj-
ar stundað hana erlendis frá árinu
2009. Ashley Tidsdale og Kirst-
en Dunst eru þeirra á meðal, en
í ár er því spáð að piloxing slái
algerlega í gegn, hjá óbreyttum sem
ofurstjörnum. Æfingakerfið er sam-
bland af pilates-æfingum og boxi, á
að auka liðleika og úthald í senn, og
viðhalda kvenlegum línum. Það var
upphaflega fundið upp af Vivecu
Jensen, sem heldur einmitt úti síð-
unni pilox-
ing.com. Annað sem verður áfram
vinsælt er Boot Camp, spinning og
jóga. Yngra fólk verður duglegt að
mæta í ræktina en jafnframt er
búist við að eldri kynslóðir og fólk
eldra en sextugt verði duglegra en
áður að nýta sér þá möguleika sem
eru í boði á því sviði.
2. MATARÆÐIÐ
Aftur til fortíðar er frasi sem
kemur oftar en einu sinni fyrir í
spekúleringum um mataræði árs-
ins 2011. Hefðbundinn heimilis-
matur, mikið grænmeti, ávext-
ir, helst lífrænt ræktaðir enda
fortíðarávextir yfirleitt af því
tagi, verður uppi á teningnum.
Út með allar öfgar og kúrar, þar
sem sneitt er hjá kolvetnum eða
einhverri sérstakri fæðutegund,
eru algerlega úti. Ef þú ákveður
að fara á Atkins er sem sagt ekki
málið að básúna það uppátæki, þú
þykir ekki smart. Þessi hugsun-
arháttur hefur verið viðloðandi
allt árið 2010 en er nú spáð nýjum
hæðum.
Heilsurækt árið 2011
Minni skammtar eru það sem koma skal
á árinu að sögn Rakelar.
Að sögn Fannars Karvels íþróttafræðings eru æfingar þar sem notast er við eigin þyngd orðnar mjög fyrirferðarmiklar hér á landi.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
● LÍFSHLAUPIÐ hefst í
þriðja sinn 2. febrúar næst-
komandi. Lífshlaupið er átaks-
verkefni þar sem landsmenn
eru hvattir til að hreyfa sig í
að minnsta kosti 30 mínút-
ur á dag, og börnin í 60 mín-
útur. Öll hreyfing gildir en eitt
af leiðarljósunum er að hreyf-
ing þurfi ekki að vera bundin
við líkamsræktarstöðvar held-
ur sé hægt að koma henni að í
daglegu lífi.
Haldin er skrá yfir tímana
og hægt að fylgjast með
eigin framgangi og keppa
innan eða milli vinnustaða og
vinahópa.
Upplýsingar um skráningu
og heilráð er að finna á www.
lifshlaupid.is.