Fréttablaðið - 08.01.2011, Side 42

Fréttablaðið - 08.01.2011, Side 42
 8. JANÚAR 2011 LAUGARDAGUR Hlutfall barna yfir kjörþyngd virðist hætt að hækka og eru jafnvel vísbendingar um að það sé að lækka. Svo virðist sem þyngd barna á höfuðborgarsvæðinu standi í stað og fari jafnvel lækkandi. Þetta sýna tölur sem Heilsugæslan og Lýðheilsustöð hafa tekið saman og birtust í skýrslunni Líkams- þyngd barna á höfuðborgarsvæð- inu – Er hlutfall barna yfir kjör- þyngd hætt að aukast? sem kom út í vor. Rannsókn matvæla- og næringarfræð- ingsins Bryn- hildar Briem, sem byggir á mælingum á hæð og þyngd 9 ára barna á höfuðborgar- svæðinu og birtist fyrir rúmlega tíu árum, sýndi að hlutfall barna sem flokkast yfir kjörþyngd jókst mikið á árunum 1958-1998. Árið 1958 voru 0,9 prósent barna skil- greind með offitu og 6,6 prósent í ofþyngd en árið 1998 voru 5 pró- sent barna með offitu og 23,8 prósent í ofþyngd, en börn með offitu og í ofþyngd flokkast yfir kjörþyngd. Mælingar sem hafa verið í umsjón skóla hjúkrunar- fræðinga Heilsu gæslunnar á höfuð borgarsvæðinu síðan og greint er frá í skýrslu Heilsu- gæslunnar og Lýðheilsu stöðvar gefa hins vegar til kynna að toppnum sé náð og að jafnvel sé um að ræða lækkun. „Undanfarin misseri hefur víða verið rætt um líkamsþyngd grunnskólabarna. Í slíkri um- ræðu er mikilvægt að tekið sé mið af bestu fáanlegu upplýsing- unum á hverjum tíma en nokkuð hefur borið á ónákvæmni í með- ferð bæði talna og hugtaka og er mikið um það rætt að börn séu að þyngjast. Það gerðist vissu- lega upp úr 1950 en úr því virðist hafa dregið á síðustu árum,“ segir Stefán Hrafn Jónsson, sviðsstjóri á rannsóknar sviði Lýðheilsu stöðvar. Nýju upplýs- ingarnar byggja á hæð og þyngd barna í gegnum grunnskólann en skólahjúkrunarfræðingar á vegum heilsugæslunnar mæla þau í fyrsta, fjórða, sjöunda og níunda bekk. „Flest eru í kjör- þyngd en sum flokkast í ofþyngd og önnur með offitu en deilt er um hvort það að vera í ofþyngd sé skaðlegt,“ segir Stefán. Á meðfylgjandi grafi sést nokkurt flökt á milli ára á allra síðustu árum en Stefán segir um eðlilegt flökt á milli árganga að ræða og að augljóst sé að börnum yfir kjörþyngd fjölgi ekki eins hratt og áður. Hverju er það að þakka? „Það er erfitt að segja enda erum við ekki að mæla áhættu þættina. Það getur verið að við séum komin að einhverju hámarki og jafnvel að það hafi orðið einhver vitundarvakning í samfélaginu. Skólamötuneytin tóku líka við fyrir allnokkrum árum og eru jafnvel að verða betri. Hins vegar er sjaldnast um aðeins eina skýringu að ræða.“ Hlutfall barna yfir kjör- þyngd hætt að aukast Stefán segir mikilvægt að hafa það í huga þegar fjallað er um börn og holdafar að óþarfa neikvæð umræða getur valdið vanlíðan. NORDICPHOTOS/GETTY Stefán Hrafn Jónsson Taflan sýnir níu ára börn í Reykjavík og á höfuðborgarsvæðinu sem voru yfir kjörþyngd á tímabilinu 1958-2010. 19 58 19 68 19 78 19 88 19 98 20 04 20 07 20 10 30 25 20 15 10 5 % BÖRN YFIR KJÖRÞYNGD HEIMILD: LÝÐHEILSUSTÖÐ Reykjavík Yf ir kj ör þy ng d Höfuðborgar- svæðiðO fþ yn gd O ffi ta ● FJÖLBREYTT Í KRAMHÚSINU Kramhúsið kraumar af lífi á vorönn. Sem dæmi má nefna Bollywood fyrir fjörutíu ára og eldri sem Margrét Erla Maack kennir. Yngri kynslóðin getur lært bæði breik og hiphop hjá Na- töshu Royal en einnig verður byrjað á svokölluðu foreldra- breiki á laugardögum þar sem foreldrar og krakkar læra breik saman. Þá er kenndur nútímadans í Kramhúsinu en kennarar eru meðal annars Tony Vezich, Tanja Marin Friðjónsdóttir og Snædís Lilja. Til dæmis er hópur fyrir 25 ára og eldri en nútímadansinn þykir góð líkamsrækt fyrir fólk með dansgrunn. Foreldrabreik þar sem foreldrar og börn læra að breika saman er nýjung í Kramhúsinu. Tinktúrur úr íslenskum lækningajurtum taldar góðar fyrir: * breytingaskeiðið * blöðruhálskirtil * bjúg * exem og sóríasis * meltingu * kvef og flensu Lífrænar snyrtivörur og smyrsl Fæst í öllum helstu lyfja- og heilsubúðum www.annarosa.is Þegar þú vilt fá það besta út úr lífinu! Faxafeni 14 www.heilsuborg.is Námskeið fyrir 60 ára og eldri, sem vilja markvissa hreyfingu í góðum félagsskap. Létt leikfimi, tækjaþjálfun, slökun og vellíðan. Næsta námskeið hefst 10. janúar. Mán og mið kl. 11-12. Lokað námskeið (4 vikur). Verð kr. 9.900,- 60 ára og eldri? Komdu og prófaðu! „Það er svo gott að koma í Heilsuborg. Hér er manni heilsað og það er vel tekið á móti manni. Ég vissi ekki hverju ég ætti von á og hvort ég ætti eitthvað erindi í Heilsuborg en strax eftir fyrsta tímann var ég ákveðin í að halda áfram.“ Margrét Eiríksdóttir T A I C H I 10 vikna námskeið hefst 10. janúar Kennt er á mánudögum og fimmtudögum kl. 17:30 Í Safamýrarskóla, Safamýri 5 Leiðbeinendur: Svanlaug D. Thorarensen s. 6639103 svanlaugt@simnet.is S. Hafdís Ólafsdóttir s. 861 59 58 hafdis@slf.is Einnig er boðið upp á morguntíma í Hæðargarði 31 þriðjudögum og föstudögum. kl. 9 Leiðbeinandi: Guðný Helgadóttir s. 8601921 dunnahelg@hotmail.com
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.