Fréttablaðið - 08.01.2011, Blaðsíða 47
Steindór, ert þú að fara vestur á firði
að kenna rímnakveðskap?
„Heyrðu, hefur það lekið út? Allt
lekur út. Jú, ég ætla vestur ef það
tekst að smala einhverjum á nám-
skeiðið. Mikið af efninu sem ég er
með er upprunnið á Vestfjörðum,
sérstaklega Ströndunum. Þar lifði
lengi í glæðum rímnanna. Ég held
að Strandamenn hafi aldrei lært að
skammast sín fyrir þær.“
Varla fara þeir til þess héðan af.
„Nei, nú lifa rímur bara í upphafn-
ingu hér eftir. En það var þannig að
menn þorðu ekki að kveða þær af
ótta við að eignast ekki afkomend-
ur því konur litu ekki við mönnum
sem voru að raula þetta.“
Þú hlýtur nú að hafa kveðið þann
draug algerlega niður.
„Það ætla ég að vona. Á stríðs-
árunum þegar ungar dömur vildu fá
nælonsokka og tyggjó var auðvitað
ekkert púkalegra til en einhverjir
rímnamenn.“
Þetta hefur breyst.
„Já, vegna þess að aðrar þjóðir
hafa bent okkur á hvað rímurnar
eru merkilegt fyrirbrigði. Ég var til
dæmis á hátíð í Lúblín í fyrra og þar
var verið að kyrja einhverja enda-
lausa söngva sem ég hreinlega sofn-
aði yfir. Rímurnar eru bara rokk-
mússík í samanburðinum. Enda
varð fólk hrifið. Fannst þær eins
og ferskur andi af Íslandi. Þá var
ég að flytja Vestfjarðalög.“
Lætur þú fólk æfa sig að kveða á
svona námskeiðum?
„Aðallega fjalla ég nú um efnið.
Það er svo áríðandi til að fólk átti
sig á því hver kúnstin er við brag-
fræðina og hvað menn þurftu að
hafa fyrir því að koma þessum
rímum saman. Jú, svo kveðum við
og hlustum á hljóðritanir og allir fá
sinn disk, þá geta þeir spilað hann
hver í sínu horni og í bílnum. Þetta
lærist best þannig, alveg eins og
við lærðum alla texta hjá Pálma
Gunnars syni þó enginn væri að
reyna að kenna okkur þá.“
Hvar verður námskeiðið til
húsa?
„Það verður í Arnardal 18. 19.
og 20. janúar. Gott ef það endar
ekki með einhverjum tónleikum.
Þetta getur ekki orðið annað en
gaman.“
gun@frettabladid.is
Ferskur andi af Íslandi
Steindór Andersen er ötull við að færa rímnaarf Íslendinga til nútímans. Nýjasta aðferðin er námskeið í
bragfræði. Nú ætlar hann að halda eitt slíkt í Arnardal við Ísafjörð. Fræðumst nánar um það.
Kvenleiki og úrhraks-kvenleiki undir lok 19. aldar og tilraunir kvenfrelsiskvenna
til þess að draga úr áhrifum „kvenleika“ á líf og sjálfsmynd kvenna er umfjöllunar-
efni Erlu Huldu Halldórsdóttur sagnfræðings í hádegisfyrirlestri á Þjóðminjasafninu í
dag. Aðgangur ókeypis og öllum opinn.
Flestir hafa tamið sér ákveðnar námsvenjur, meðvitað
eða ómeðvitað. Í upphafi háskólanáms er tækifæri til
að endurskoða námsvenjur og bæta það sem betur
má fara. Námstækni er ákveðið hjálpartæki sem auð-
veldar nemendum að tileinka sér nýja þekk-
ingu, veitir þeim aðhald og er tæki til
tímasparnaðar. Gott skipulag, mark-
miðasetning og jákvætt hugarfar er
grunnurinn að góðri námstækni.
www.hr.is
„Á stríðsárunum þegar ungar dömur vildu fá nælonsokka og tyggjó var auðvitað
ekkert púkalegra til en einhverjir rímnamenn,“ segir Steindór, sem hefur kveðið þann
draug algerlega niður. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Samkvæmisdans -
Barnadans - Freestyle -
HipHop - Keppnisdans -
Konusalsa - Parasalsa
Kennsla hefst 10. janúar
Kennslustaðir: Langholtsskóli -
Grensásvegur 13 - Varmárskóli
Skráning og upplýsingar á
www.dansskoliheidars.is
eða í síma 896 0607
30% afsláttur
af öllum fatnaði og skóm
af okkar lága vöruverði
Útsalan er hafin
Álnavörubúðin Hveragerði
Breiðumörk 2
S: 483 4517