Fréttablaðið - 08.01.2011, Page 52

Fréttablaðið - 08.01.2011, Page 52
 8. janúar 2011 LAUGARDAGUR4 Við leitum að kraftmiklu fólki sem hefur metnað og frumkvæði. Um er að ræða skemmtileg störf sem henta vel þeim sem hafa áhuga á tækni og nýjungum og vilja veita framúrskarandi þjónustu. Góð ensku- og tölvukunnátta er nauðsynleg og stúdentspróf eða sambærileg menntun æskileg. Við bjóðum gott fólk velkomið í skemmtilegan hóp starfsmanna sem setur viðskiptavininn í fyrsta sæti! Fáðu meiri, meiri eða miklu meiri upplýsingar á vodafone.is. Umsóknarfrestur er til og með 17. janúar 2011. ...í tækniveri Starfið felst í því að veita upplýsingar og ráðgjöf um net, heimasíma og sjónvarpsþjónustu Vodafone og fylgja málum viðskiptavina eftir til enda. Í síma 1414 svara vel þjálfaðir starfsmenn þjónustuvers Vodafone sem staðsett er í Skútuvogi í Reykjavík. Unnið er í vaktavinnu. ...í söluveri Við leitum að sölufulltrúum í söluver Vodafone í hlutastarf eða fullt starf til að selja heildarfjarskiptaþjónustu til heimila. Í boði eru sveigjanlegur vinnutími og góð laun fyrir duglega einstaklinga. Nýtt ár Ný tækifæri Forstjóri Mannvirkjastofnunar Umhverfisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Mannvirkjastofnunar. Mannvirkjastofnun er ný stofnun sem tekur til starfa þann 1. janúar 2011 skv. lögum nr. 160/2010. Mannvirkjastofnun tekur við hlutverki Brunamálastofn- unar auk verkefna er varða byggingarmál. Markmið nýrra laga um mannvirki er að auka öryggi og gæði mannvirkja, efla neytendavernd, bæta skilvirkni í stjórnsýslu mannvirkjamála og tryggja faglega yfirsýn í málaflokknum og samræma byggingareftirlit um land allt. Mannvirkjastofnunin hefur einnig það hlutverk að hafa eftirlit með og vinna að samræm ingu brunavarna í landinu, stuðla að samvinnu þeirra sem starfa að brunavörnum og reka Brunamálaskóla. Starfssvið • Stjórnun og stefnumótun stofnunarinnar • Ábyrgð á rekstri, starfsskipulagi og starfsmanna- málum • Áætlanagerð • Samskipti við stjórnvöld og hagsmunaaðila Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólamenntun á sviði mannvirkjamála • Þekking á verksviði stofnunarinnar • Stjórnunarreynsla • Leiðtogahæfileikar og geta til að hvetja aðra til árangurs • Frumkvæði og metnaður til að sýna árangur í starfi og kraftur til að hrinda verkum í framkvæmd • Geta til þess að tjá sig í ræðu og riti á ensku auk dönsku, norsku eða sænsku Viðkomandi þarf að geta hafið störf eigi síðar en 1. apríl 2011. Launakjör eru samkvæmt ákvörðun kjararáðs. Konur og karlar eru hvött til að sækja um stöðuna. Umsóknum skal skilað til umhverfisráðuneytisins eigi síðar en 21. janúar 2011. Frekari upplýsingar veitir Magnús Jóhannesson ráðuneytisstjóri umhverfis- ráðuneytisins í síma 5458600. Sölumaður Sölumaður Jóhann Ólafsson & Co. leitar að metnaðarfullan og drífandi einstakling í spennandi og krefjandi starf sölumanns á vörum og lausnum frá OSRAM, með áherslu á LED tækni og nýjungar. Viðkomandi einstaklingur mun starfa náið með öðrum starfsmönnum að því að efla og auka samstarf við núverandi og nýja viðskiptavini með það fyrir augum að auka sölu og útbreiðslu OSRAM á Íslandi. Viðkomandi starfsmaður mun að töluverðu leyti einbeita sér að sölu, þróun og kynningu á LED vörum og tækni frá OSRAM og dótturfyrirtækjum þess. Starfið er að tiltölulega ómótað og því gefst viðkomandi einstaklingi kostur á að þróa og sníða starfið að miklu leyti sjálfur. Um framtíðarstarf er að ræða og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst. Um fyrirtækið Jóhann Ólafsson & Co. er umboðsaðili fyrir OSRAM á Íslandi og hefur verið það síðan 1948. Fyrirtækið er leiðandi aðili á sínum markaði og hjá fyrirtækinu starfar samhentur hópur fólks með mikla þekkingu á sínu sviði sem hefur það að leiðarljósi að veita viðskiptavinum sínum bestu vörur, ráðgjöf og þjónustu sem völ er á. Starfssvið Sala, fagleg ráðgjöf og þjónusta við nýja og núverandi viðskiptavini Öflun nýrra viðskiptavina Sala, þróun og kynning á LED vörum og tækni Samninga- og tilboðsgerð Þátttaka í gerð sölu- og markaðsáætlana Samskipti við erlenda birgja Hæfniskröfur Góð reynsla af sölumennsku æskileg Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum Frumkvæði og metnaður í starfi Hæfni til þess að vinna undir álagi Æskileg tölvukunnátta Enskukunnátta mikilvæg Heiðarleiki og áreiðanleiki áskilinn Reynsla og menntun á sviði rafvirkjunar er kostur Jóhann Ólafsson & Co Krókhálsi 3 - 110 Reykjavík - Sími 533 1900 - www.olafsson.is Jóhann Ólafsson & Co. | Krókhálsi 3 | sími 533-1900 | www.olafsson.is Umsóknir sendist á jarni@olafsson.is Nánari upplýsingar í síma 533 1949
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.