Fréttablaðið - 08.01.2011, Qupperneq 70
8. JANÚAR 2011 LAUGARDAGUR12 ● fréttablaðið ● heilsa og hreyfi ng
Líffæraskortur og leiðir til að
sporna við slíkum skorti auk
ólöglegrar starfsemi sem hefur
sprottið upp vegna hans eru
meðal heitustu umræðuefna í
heimi líffæraígræðslna í dag.
Í lok árs 2009 voru alls 1.933
sjúklingar skráðir á biðlista eftir
líffærum hjá Norrænu líffæra-
ígræðslustofnuninni Scandiatr-
ansplant sem þjónustar ígræðslu-
sjúkrahús á Norðurlöndum og Ís-
land er aðili að. Því er ljóst að
eftirspurnin eftir líffærum er mun
meiri en framboðið sem óprúttnir
aðilar hafa meðal annars nýtt sér.
„Heitasta umræðuefnið á sviði
líffæraígræðslna er ávallt hvern-
ig best sé að bregðast við þessum
skorti,“ segir Runólfur Pálsson,
umsjónarmaður líffæraígræðslu-
teymis Landspítalans. Hann segir
margar leiðir hafa verið reynd-
ar en fáar hafi reynst mjög vel.
„Til dæmis hefur sumstaðar verið
skráð í ökuskírteini hvort viðkom-
andi einstaklingur sé gjafi eða það
hafa verið haldnar sérstakar líf-
færagjafaskrár þar sem fólk getur
skráð sig sem gjafa og gengið með
líffæragjafakort,“ segir hann en
þegar sú staða kemur upp að fólk
er úrskurðað látið vegna heila-
dauða og kemur þannig til álita
sem gjafar eru það aðstandendur
sem taka lokaákvörðunina. „Höfn-
un aðstandenda gagnvart gjöf er
víða 30 til 40 prósent og stund-
um hærri,“ útskýrir Runólfur og
segir nauðsynlegt að lækka þetta
hlutfall. Það megi gera með því að
auka umræðu og vitund fólks.
LAGALEG UMGJÖRÐ
Tvær leiðir hafa verið farnar í
lögum um líffæragjafir. „Ann-
ars vegar er það „ætluð neitun“
en þá er gert ráð fyrir því í lögum
að fólk vilji ekki gefa líffæri sín
nema það hafi áður tekið það fram.
Slíkt ákvæði er við lýði í íslensk-
um lögum. Hins vegar er það
„ætlað samþykki“ en þá eru allir
líffæragjafar nema þeir taki sér-
staklega fram að þeir séu því and-
vígir,“ útskýrir Runólfur og bend-
ir á að slíkt sé í lögum flestra Evr-
ópuþjóða. „Enn í dag er deilt um
réttmæti þessara leiða. Mörgum
sem vinna í þessum geira finnst
þó að ætlað samþykki sé rétta
leiðin sem þó þarf að starfrækja
þannig að ávallt sé leitað eftir sam-
þykki aðstandenda,“ segir Runólf-
ur og tekur Spánverja sem dæmi
um land þar sem tekist hefur að
fjölga mjög líffæragjöfum á síð-
ustu árum en þar er tíðni gjafa
hun hæsta í heimi. „Spánverjar
voru með fremur lága tíðni fyrir
tuttugu árum en settu þá upp um-
fangsmikið kerfi á landsvísu sem
miðaði að því að fjölga líffæra-
gjöfum og það tókst hjá þeim með
markvissu átaki,“ segir Runólf-
ur en bendir á að hafa beri í huga
að fjöldi einstaklinga sem deyr af
slysförum hafi mikil áhrif á fjölda
líffæragjafa.
„Bent hefur verið á að það kunni
að hafa jákvæð áhrif í samfélag-
inu ef landslög gera ráð fyrir líf-
færagjöf. Að viðhorf fólks breyt-
ist með tímanum þegar almennt sé
gert ráð fyrir líffæragjöf og að að-
standendur verði þá opnari fyrir að
gefa líffæri úr nákomnum,“ segir
Runólfur. Hann telur almennings-
fræðslu um málefni líffæragjafa
skipta miklu máli. Af því tilefni
hafi verið gerð fræðslumynd um
líffæragjafir fyrir tveimur árum
sem hann vonar að verði umfjöll-
unarefni í framhaldsskólum en
þannig mætti vekja athygli allra á
þeirri þörf sem knýr að.
LIFANDI GJAFAR
Ísland hefur nokkra sérstöðu hvað
líffæragjafir varðar því hér á landi
eru um 70 prósent allra nýrnagjafa
lifandi einstaklingar. Þess má geta
að á Íslandi er aðeins framkvæmd
ein tegund líffæraígræðslu en það
er nýrnaígræðsla úr lifandi gjafa
en líffæri úr látnum gjöfum eru
send utan. Í Noregi og Svíþjóð
eru lifandi nýrnagjafar 35-40 pró-
sent en í Finnlandi eru þeir mjög
sjaldséðir. Runólfur segir þenn-
an mikla breytileika stafa af hug-
myndafræði líffæraígræðsluteyma
í hverju landi. Hann segir vaxandi
fylgi fyrir að nota lifandi gjafa en
slíkt sé þó enn umdeilt. „Því fylgir
alltaf ákveðin áhætta fyrir gjafann
en hún er þó mjög lítil. Hér á landi
hafa um 130 einstaklingar gefið
nýra í gegnum tíðina og hefur þeim
vegnað mjög vel,“ segir hann.
LÍFFÆRI ÚR DÝRUM
„Þó allir sem gætu gefið líffæri
sín myndu gera það þá væri það
ekki nóg til að anna eftirspurn
eftir líffærum,“ segir Runólfur.
Þar sem fjöldi látinna líffæra-
gjafa nægir engan veginn þarf að
leita annarra leiða og hafa menn
rennt hýru auga til dýra í því sam-
hengi. „Lengi hefur verið unnið
að því að nýta líffæri úr dýrum til
ígræðslu,“ segir Runólfur.
Fyrst var talið að líffæri úr
öpum hentuðu best en það kom
mörgum á óvart þegar í ljós kom
að líffæri úr svínum eru líklega
heppilegust. „Unnið hefur verið
árum saman að rannsóknum á
nýtingu líffæra úr svínum. Þeim
hefur til dæmis verið erfðabreytt
til að koma í veg fyrir að líkami
manna hafni líffærunum. Á undan-
förnum árum hafa verið gerðar til-
raunir með ígræðslu svínalíffæra í
apa og hefur líftími þeirra verið að
lengjast,“ segir Runólfur. Miklar
vonir eru bundnar við þessar rann-
sóknir en taka mun langan tíma að
þróa þær og því engin skyndilausn
á líffæraskortinum.
ENDINGARTÍMI LÍFFÆRA
Annað heitt umræðuefni í heimi
líffæragjafa er hvernig hægt sé
að tryggja betri endingartíma líf-
færa. „Ígrædd líffæri endast ekki
nema í takmarkaðan tíma. Nýru
frá lifandi gjafa sem skyldur er
þeganum endast í um eða yfir 20
Líffæraskortur víðtækt vandamál
Runólfur Pálsson, umsjónarmaður
liffæraígræðsluteymis Landspítalans.
Á Íslandi eru aðeins
ígrædd nýru úr lifandi
gjöfum. NORDICPHOTOS/GETTY
1954 Fyrsta vel heppnaða
nýrnaígræðslan í heiminum
gerð í Boston.
1970 Fyrsti Íslendingurinn
gengst undir nýrnaígræðslu úr
lifandi gjafa í London og nýrað
starfar vel í dag.
1973 Fyrsta ígræðsla nýra úr
látnum gjafa í Íslending í Kaup-
mannahöfn.
1985 Fyrsti Íslendingurinn fær
ígrædda lifur í London.
1988 Fyrsti Íslendingurinn
fær ígrædd hjarta og lungu í
London.
1991 Lagasetning sem heimilar
að skilgreina mann látinn á
grundvelli heiladauða. Það er
grunnforsenda fyrir líffæragjöf.
2003 Fyrsta líffæraígræðslan
á Landspítala. Hér á landi eru
aðeins ígrædd nýru úr lifandi
gjöfum.
Indverskir mótmælendur krefjast aðgerða stjórnvalda eftir að upp komst um
ólöglega starfsemi tengdri líffæraígræðslu árið 2008. Talið er að um 500 ólöglegar
ígræðslur hafi verið framkvæmdar í úthverfum Nýju Delí. NORDICPHOTOS/GETTY
Hefur þú viljann, þá
hef ég uppskriftina …
vigtarradgjafarnir.is
865-8407
Sjá nánar á www.vigtarradgjafarnir.is
Íslensku
Vigtarráðgjafarnir