Fréttablaðið - 08.01.2011, Qupperneq 79
LAUGARDAGUR 8. janúar 2011 35
til eitthvað sem héti uppþvotta-
vél,“ segir hann hlæjandi. „Svo
kann ég ekki á þvottavél því ég hef
alltaf þvegið í höndum og ekki síst
finnst mér ryksugan frábær upp-
finning,“ segir hann og skellir upp
úr. Sylgja skýtur inn í að David
hafi verið einstaklega hjálp samur
og ryksugað allt húsið þeirra. „Það
er bara svo skemmtilegt,“ segir
David og finnst stórkostlegt að
það taki í raun bara hálftíma að
þrífa allt húsið. „Maður ryksugar í
tíu mínútur, stingur leirtaui í upp-
þvottavél og þvotti í þvottavél,“
segir hann og Sylgja bætir bros-
andi við: „Þegar hann var búinn
að vera á Íslandi í tvo daga sagði
hann við okkur: „Life is easy in
Iceland.“
Nýtur sundsins
David er nærri daglegur gestur á
sundstöðum landsins. „Hann lærði
að synda á tveimur dögum með
okkur í Úganda,“ upplýsir Sylgja
og David bætir við að hann sé nú
ekki góður sundmaður en njóti
þess að vera í vatni. Hann nýtur
hverrar stundar enda veit hann
að sundferðir eru nánast útilok-
aðar í Úganda. „Þar getur maður
farið í sund á hóteli en sundferðin
kostar jafn mikið og matur í tvær
vikur.“
Vill að stjórnmálamenn ferðist
David segist mikið hafa lært á
ferðalagi sínu til Íslands og er
sannfærður um að lausn margra
vandamála í heimalandinu
gæti falist í því að stjórnmála-
mennirnir ferðuðust meira. „Ef
stjórn málamenn Úganda kæmu
hingað gætu þeir séð hvernig
hægt væri að laga vegakerfið og
heilbrigðiskerfið.“
Margt jákvætt í Úganda
Þótt David geti sett út á margt í
föðurlandi sínu er hann þó stoltur
af því. „Til dæmis hvernig tekið
hefur verið á alnæmisvandamál-
inu,“ segir hann en á níunda ára-
tugnum voru 30 prósent Úganda-
búa HIV-jákvæð. Í dag er sú tala
fallin niður í 6,4 prósent og er það
að þakka mikilli fræðslu í skólum
og til almennings. „Í Úganda eru
engir fordómar lengur fyrir sjúk-
dómnum og fólk fær lyf sem hjálpa
því að lifa með HIV,“ segir David
en auk þess var lögum breytt
þannig að einkvæni er nú algeng-
ast og menn mega ekki lengur taka
við ekkjum bræðra sinna. Hann
telur einnig upp að í Úganda ríki
trúfrelsi og glæpatíðni sé þar til-
tölulega lág.
Kominn á Facebook
David heldur heim til Úganda hinn
sextánda þessa mánaðar. Hann
verður áfram í góðu sambandi við
vini sína hér á landi. „Nú ertu líka
kominn á Facebook svo það auð-
veldar samskiptin,“ segir Sylgja
glaðlega við David sem kinkar
kolli. Hann hlakkar til að koma
aftur heim og segja fjölskyldu
sinni og vinum frá ferðalaginu.
Hann fer heldur ekki tómhentur
því margt hefur honum áskotn-
ast á ferðalagi sínu. „Á Húsavík
sá ég til dæmis kartöfluskrælara
í fyrsta sinn en heima notum við
hnífa, sem getur verið hættulegt.
Ég keypti fjóra skrælara til að
taka með heim, fyrir mig, mömmu,
frænku mína og ömmu,“ segir
hann og hlær. Það þarf greinilega
ekki mikið til að gleðja David Kaj-
joba frá Úganda.