Fréttablaðið - 08.01.2011, Blaðsíða 96
52 8. janúar 2011 LAUGARDAGUR52
menning@frettabladid.is
Tónlistarflutningur verður með
óhefðbundnu sniði í sunnudags-
messu Bústaðakirkju á morgun.
Í stað almenns kórsöngs verður
tónlistarflutningur alfarið í hönd-
um sópransöngkonunnar Grétu
Hergils, Gretu Salóme fiðluleik-
ara og Antoniu Hevesi píanóleik-
ara við messu í Bústaðakirkju.
Í messunni á morgun flytja
þær stöllur Exsultate jubilate
eftir Mozart, eitt fremsta kirkju-
tónverk allra tíma. Verkið verð-
ur fellt inn í messu séra Pálma
Matthíassonar. Öll tónlistin í
messunni verður eftir Mozart í
flutningi listakvennanna þriggja.
Messan er í venjulegri lengd og
er enginn aðgangseyrir frekar en
á aðrar guðsþjónustur.
Klassísk tón-
list í sunnu-
dagsmessu
Kjarvalar nefnist sýning
Stefáns Jónssonar myndlist-
armanns sem verður opnuð
í Hafnarborg í dag. Þar
endurgerir hann verk eftir
Kjarval og gerir úr þeim
þrívíða skúlptúra.
Stefán útskrifaðist með MFA frá
School of Visual Art í New York
1994 og hefur allt frá því fengist
við að gera endurgerðir af lista-
verkum eftir eldri meistara. Í nýj-
ustu sýningu sinni tekst hann á við
íslenskan meninningararf, nánar
tiltekið Jóhannes Kjarval, og býr
til þrívíða skúlptúra með tilvísun
í verk meistarans úr ýmsum efni-
við. Á sýningunni má meðal ann-
ars sjá Fjallamjólkina úr trébút-
um og þekkt landslagsmálverk úr
lopa. Sýningin hefur líka félags-
lega skírskotun. Jóhannes Kjar-
val er fyrirferðarmikil stærð í
íslenskri listasögu og heiti sýn-
ingarinnar, Kjarvalar, felur í sér
tilvísun á það félagslega gildi
sem verk hans hafa fengið sem
stöðutákn.
Stefán gerði sitt fyrsta Kjarvals-
verk í kringum aldamótin. „Það
má kannski segja að það hafi kall-
að á fleiri verk; ég sá að minnsta
kosti möguleika á að gera fleiri
verk. Serían á sýningunni er verk
sem ég byrjaði á 2007 og hef verið
að vinna að með hléum undanfarin
þrjú ár.“
Spurður hvers vegna hann hafi
einbeitt sér að því að endurvinna
listasöguna í verkum sínum segir
Stefán að umræðan um endalok
sögunnar og endalok listarinnar
hafi verið mjög áberandi þegar
hann var í myndlistarnámi.
„Margir voru á því máli að það
væri í rauninni búið að gera allt
sem hægt væri að gera í mynd-
listarsögunni; að listasagan væri
að endimörkum komin. Ég tók svo
sem ekki heilshugar undir það en
hugsaði með mér að ef það væri
eitthvað til í þessu sem menn voru
að halda fram væri ein leiðin út úr
þessum vanda að taka einfaldlega
listasöguna fyrir og endurvinna
hana.“
Sýningin verður opnuð klukkan
15 í dag en um leið verður opnuð
önnur sýning í sýningaröð Hafn-
arborgar á verkum listmálar-
ans Eiríks Smith. Sýning Stefáns
stendur til 6. febrúar.
bergsteinn@frettabladid.is
Kjarval í endurvinnsluna
STEFÁN JÓNSSON Hefur á ferli sínum einbeitt sér að endurgerð þekktra verka úr listasögunni. Í sýningu sinni í Hafnarborg beinir
hann sjónum sínum að Kjarval. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
KJARVALAR Stefán endurgerir hluti úr
verkum eftir Kjarval og býr til þrívíða
skúlptúra, meðal annars úr trébútum
og lopa.
Lingapon námskeið
Óska eftir að kaupa íslenskt enskt lingapon námskeið
sem samastendur af einni stórri kennslubók
innbundin sem kylja sem á stendu íslenskt enskt
lingaponnámskeið. Námskeiðið samastendur af
Kennslubók kassettum og tösku undir námskeiðið
upplýsingar í síma 865-7013
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs
sendir öllum velunnurum sínum bestu
nýjárskveðjur og þakkar af alhug
ómetanlegan stuðning á liðnu ári.
Framlag ykkar skipti starfsemina miklu máli.
VÍDEÓRÍSÓM Í NÝLÓ Sýningin VídeóRísóm eftir brasilíska myndlistarmanninn Marcellvs L. verður opnuð í
Nýlistasafninu í dag klukkan 17. VídeóRísóm er hljóð- og myndbandsverkaröð sem hóf göngu sína í janúar 2002 og
er enn í vinnslu. Að sögn listamannsins er hugsunin bak við röðina sú að hugmyndir gangi aldrei til þurrðar, séu aldrei
fullkomnar eða endanlegar heldur sé nauðsynlegt að vinna þær áfram og tengja þær heiminum og núinu.