Fréttablaðið - 08.01.2011, Síða 102
8. janúar 2011 LAUGARDAGUR58
sport@frettabladid.is
5
DAGAR
KRISTJÁN ARASON varð fyrstur til að skora tíu mörk í leik á HM en það gerði hann á HM í Sviss 1986. Sigurður Valur
Sveinsson jafnaði metið á HM 1993 en Valdimar Grímsson skoraði 11 mörk á HM 1997. Metið stóð þar til að Guðjón Valur Sig-
urðsson skoraði 14 mörk í sigri á Áströlum á HM 2003. Guðjón skoraði síðan 15 mörk í öðrum stórsigri á Áströlum á HM 2007.
Ísland-Þýskaland 27-23(14-12)
Mörk Íslands (Skot): Ólafur Stefánss. 6/4 (8/5),
Aron Pálmarsson 5 (9), Ingimundur Ingimund-
arson 3 (3), Snorri Steinn Guðjónsson 3 (5/1),
Alexander Petersson 3 (7), Arnór Atlason 2 (4),
Guðjón Valur Sigurðsson 2 (3), Róbert Gunnars-
son 2 (2), Ásgeir Örn Hallgrímsson 1 (1).
Varin skot: Björgvin Páll 17/2 (40/4, 43%)
Hraðaupphlaupsmörk: 6 (Ingimundur 3, Ásgeir
Örn, Guðjón Valur, Aron)
Fiskuð víti: 6 (Róbert 3, Aron, Snorri Steinn,
Alexander). Brottvísanir: 8 mínútur
Mörk Þýskalands (Skot): Michael Kraus 4/1
(8/3), Adrian Pfahl 3 (3), Sebastian Preiss 3 (4),
Holger Glandorf 3 (7), Michael Haass 3 (3),
Jacob Heinl 2 (3), Patrick Groetzki 2 (2), Uwe
Gensheimer 2/1 (4/2), Pascal Hens 1 (1), Lars
Kaufmann 0 (3), Christian Sprenger 0 (2), Dom
inik Klein 0 (1).
Varin skot: Silvio Heinevetter 7/1 (20/2, 35%),
Carsten Lichtlein 7 (21/3, 33%)
Hraðaupphlaupsmörk: 6.
Fiskuð víti: 5 Brottvísanir: 6 mínútur
TÖLFRÆÐIN
GÓÐIR Í GÆR Ingimundur og Sverre
lokuðu vörninni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
HANDBOLTI Íslenska landsliðið í
handbolta hóf lokaundirbúning
sinn fyrir HM í handbolta með
frábærum sigri á Þjóðverjum í
Laugardalshöllinni í gær. Liðið
er komið í rétta gírinn sem eru
frábærar fréttir enda vika í HM.
Það mátti sjá aftur geðveikina
í vörninni sem strákarnir hafa
farið svo langt á undanfar-
in misseri og þá reif Björg-
vin Páll Gústavsson sig upp og
sýndi hversu megnugur hann
er í markinu. Ingimundur Ingi-
mundarson og Sverre Jakobsson
áttu báðir flottan leik í miðri
vörninni. Ingimundur kórónaði
síðan góða frammistöðu sína
með því að skora þrjú glæsileg
hraðaupphlaupsmörk.
Íslenska liðið var 14-12 yfir í
hálfleik eftir að hafa mest náð
þriggja marka forskoti. Liðið
byrjaði síðan seinni hálfleikinn
frábærlega og náði um tíma fjög-
urra marka forskoti. Þjóðverjar
nýttu sér einbeitingarleysi um
miðjan hálfleikinn og komu mun-
inum niður í eitt mark en íslenska
liðið gaf þá aftur í og tryggði sér
öruggan sigur.
„Vörnin var hrikalega öflug og
það var mikill munur á henni og í
síðustu landsleikjum. Við erum að
berjast eins og ljón og lítum vel út
varnarlega séð,“ sagði Björgvin
Páll. „Það var gott fyrir mig per-
sónulega að það gekk vel í kvöld
því ég átti ekki frábæran leik um
daginn. Ég er mjög sáttur með
minn leik í dag,“ sagði Björgvin
sem varði 17 skot í leiknum.
„Þetta lítur mjög vel út og hver
sigur styrkir okkar sjálfstraust
sem lið. Ég var sáttur við vörn-
ina sem var grimm og gekk mjög
vel. Það var góð hjálparvörn og
lítið um taktísk mistök. Björgvin
varði einhverja 15 til 20 bolta og
ef við fáum einhverja fimmtán
bolta frá honum í þessari keppni
þá er ég sáttur,“ sagði Ólafur
Stefánsson landsliðsfyrirliði sem
var markahæstur með sex mörk.
Aron Pálmarsson stimplaði sig
líka inn og lék stórt hlutverk bæði
í sókn og vörn.
Seinni leikur þjóðanna verður í
Laugardalshöllinni klukkan 17.00
í kvöld og það verður síðasti leik-
urinn fyrir HM í Svíþjóð og kjör-
ið tækifæri fyrir íslensku þjóðina
að sýna sinn stuðning í verki með
því að troðfylla Höllina. Liðið
sýndi það í gær að það á ekkert
annað skilið. ooj@frettabladid.is
Landsliðið okkar lítur mjög vel út
Strákarnir okkar unnu fjögurra marka sigur á Þjóðverjum, 27-23, í Laugardalshöllinni í gær þar sem frábær
vörn og góð markvarsla Björgvin Páls Gústavssonar lagði grunninn að sigrinum.
NÚ ÞEKKJUM VIÐ ÞIG Björgvin Páll Gústavsson átti flottan leik í gær og fagnar hér
ásamt nýkrýndum íþróttamanni ársins, Alexander Peterssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Hafðu samband
Ný og skemmtileg spil
með strákunum okkar
Strákarnir í handboltalandsliðinu
verða í nokkrum útibúum Arion banka á mánudaginn
kl. 15 - 16 ( Kringluútibú 15:30 - 16:30) og árita
plaköt og gefa handboltaspilin.
Líttu við í útibú nálægt þér:
Vesturbæjarútibú v/ Hagatorg
Kringluútibú
Hafnarfjörður, Firðinum
Garðabær, Garðatorgi
Kópavogur, Smáratorgi