Fréttablaðið - 08.01.2011, Síða 103

Fréttablaðið - 08.01.2011, Síða 103
LAUGARDAGUR 8. janúar 2011 HANDBOLTI Guðmundur Guðmunds- son landsliðsþjálfari var sáttur með flottan sigur á Þjóðverjum í gær. „Ég er mjög sáttur við varnarleik- inn sem var frábær og markvörsl- una. Það tvennt stóð upp úr í frábær- um leik og að halda Þjóðverjum í 23 mörkum er mjög sterkt. Það tekst ekki hjá hvaða liði sem er en auð- vitað er þetta æfingaleikur og það ber að líta á hann sem slíkan. Við verðum að taka það góða úr þessum leik,“ sagði Guðmundur. „Sóknarleikurinn var mjög góður fyrir utan tíu mínútur í seinni hálf- leik. Við þurfum að bæta ofan á hann og gera hann enn betri,“ sagði Guðmundur sem viðurkenndi að vörnin væri kannski aðeins á undan sókninni eins og staðan er núna. „Að þessu sinni lögðum við ofurkapp á vörnina og hún er á undan. Sókn- in er að koma en hún er alls ekki slæm,“ sagði Guðmundur. Hann var ánægður með menn eins og Ingi- mund Ingimundarson sem skor- aði þrjú hraðaupphlaupsmörk og Björgvin Pál Gústavsson sem varði vel í markinu. „Ég vil sjá enn fleiri mörk úr hröðum upphlaupum en það var ánægjulegt að sjá Ingimund því hann hljóp hraðaupphlaupin mjög vel og það er mjög jákvætt að hann skoraði þrjú mörk. Björgvin komst í gírinn og það var mjög sterkt fyrir hann að koma til baka á þennan hátt,“ sagði Guðmundur. „Það er leikur á morgun og þá þurfum við að fylgja þessu eftir. Við megum ekki fara á flug við það að vinna æfingaleik en það var margt jákvætt í kvöld og það er það sem skiptir máli,“ sagði Guðmundur. Aron Pálmarsson spilaði mikið í gær og stóð sig vel. „Ég er rosa- lega ánægður með þennan leik því við sýndum það í kvöld að við erum ennþá meðal toppþjóða í heimin- um. Við erum búnir að vera slakir í síðustu leikjum en mættum bara stemmdir í þennan leik og sýndum úr hverju við erum gerðir,“ sagði Aron sem skoraði 5 mörk í gær. „Ég reyni að nýta það traust sem ég fæ frá Gumma. Það er allt frá- bært svo lengi sem við vinnum leikinn en það er ekkert að eyði- leggja fyrir að maður nái að koma sterkur inn,“ sagði Aron. „Við sýndum flottan leik í dag og von- andi náum við að halda því áfram á morgun. Ef við gerum það þá erum við langt komnir með það að vera búnir að fínpússa þetta fyrir HM.“ - óój Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari eftir sigurinn á Þjóðverjum í gær: Vörnin og markvarslan frábær GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON Sendir réttu skilaboðin. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Ólafur Stefánsson með 105 mörk á móti Þjóðverjum Ólafur Stefánsson skoraði 6 mörk á móti Þjóðverjum í Höllinni í gær og hefur þar með skorað 105 mörk í 16 landsleikjum á móti því landi þar sem hann hefur spilað stóran hluta síns handboltaferils. Ólafur hefur skorað 6,6 mörk að meðaltali á móti Þjóð- verjum þar af 8 mörk að meðaltali í þremur leikjum á móti þeim í Laugardalshöllinni. Þýskaland er annað landið sem Ólafur nær að brjóta hundrað marka múrinn á móti en hann hafði skorað 100 í 20 landsleikjum á móti Dönum. Hittu handboltahetjurnar Styðjum strákana okkar á vináttuleiknum kl. 17 í dag. Landsliðið afhendir árituð plaköt og handboltaspil eftir leikinn í Laugardalshöllinni kl. 18:30 - 19:00. Íslenska karlalandsliðið í handbolta undirbýr sig nú af kappi fyrir HM og leikur seinni vináttuleik sinn gegn Þjóðverjum í dag kl. 17. Þetta er sannkölluð handboltaveisla sem enginn má missa af. Hér mætast tvö af sterkustu landsliðum heims, sem bæði eru líkleg til afreka á HM. Mættum öll í Höllina og tökum þátt í að skapa ógleymanlega stemningu – um leið og við hvetjum Strákana okkar til áframhaldandi afreka í Svíþjóð. Miðasala á LAUGARDALSHÖLL 8. JANÚAR, KL. 17.00. ÍSLAND – ÞÝSKALAND HM 2011 VINÁTTULEIKUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.