Fréttablaðið - 08.01.2011, Side 110

Fréttablaðið - 08.01.2011, Side 110
66 8. janúar 2011 LAUGARDAGURPERSÓNAN Tímaritið Wallpaper hefur valið Vopnabúrið, hönnunarverslun í eigu vöruhönnuðarins Sruli Recht, á meðal tíu athyglisverðustu versl- ana heims árið 2010. Vopnabúrið er þar með komið í hóp verslana á borð við Hermès í New York. Í greininni um Vopnabúrið segir meðal annars að bæði útlit og inni- hald verslunarinnar sannar í eitt skiptið fyrir öll að tómir banka- reikningar hefti ekki sköpunargleð- ina sem ríkir á Íslandi. Sruli segist að vonum ánægður með umfjöll- unina en á meðal þeirra verslana sem nefndar voru má nefna Her- més í New York, Comme des Gar- çons í Hong Kong og verslun Stella McCartney í Mílanó. „Þetta er frábært. Búðin er lítil og úr alfaraleið, meira að segja hér í Reykjavík, þannig það er frábært að fá umfjöllun í svo stóru alþjóðlegu blaði,“ segir Sruli og bætir við: „Þetta kemur manni samt alltaf jafn mikið á óvart og ég held að það sé bara gott.“ Sruli segist hafa komist að þessu með aðstoð Google leitarvélina, en hún bendir honum á þegar fréttir um verslunina rata á Netið. Aðspurður segir Sruli alla umfjöllun hjálpa og viðurkenn- ir að mikið hafi verið fjallað um Vopnabúrið allt frá því verslun- in opnaði. „Öll umfjöllun hjálpar. Líka þessi grein,“ segir hann og hlær. - sm Kominn í hóp þeirra bestu SÁTTUR Verslun Sruli Recht, Vopnabúr- ið, var valin ein af tíu athyglisverðustu verslunum síðasta árs af Wallpaper. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Eitt stærsta tónlistartímarit Bret- lands, Q, heldur því fram í nýjasta tölublaði sínu að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hafi verið rótari á tónleikum með rokkurunum í Led Zeppelin. Þar er vafalítið verið að vísa til sögufrægra tónleika sveitarinn- ar í Laugardalshöll 1970. Þessi dularfulli staðreyndarmoli er sett- ur fram í tilefni þess að Robert Plant, fyrrverandi söngvari Led Zepplin, var kjörinn maður síðasta árs af tímaritinu. Ólafur Ragnar hefur hingað til ekki verið þekktur sem rokk- áhugamaður, hvað þá rótari, og koma þessi skrif því verulega á óvart. Ef farið er rúm fjörutíu ár aftur í tímann lauk Ólafur, sem þá var 27 ára, doktorsnámi sínu í stjórnmálafræði við Manchester- háskóla. Sama ár flutti hann til Íslands og hóf kennslu við Háskóla Íslands. Til að fá það staðfest hvort forsetinn hafi þetta ár í raun og veru tekið sér frí frá fræðistörf- um sínum til að gerast aðstoðar- maður goðsagnanna í Zeppelin hafði Fréttablaðið samband við forsetaembættið og fékk þá þetta svar: „Forsetann rekur ekki minni til þess. En hins vegar getur ýmis- legt hafa gerst fyrir fjörutíu árum sem ekki er lengur fast í minni.“ Líklegt er því að „staðreynd“ Q í þessu nýjasta tölublaði sé úr lausu lofti gripin, í það minnsta þangað til annað kemur í ljós. - fb Óljós fortíð Ólafs Ragnars í rokkinu STAÐREYND? „Staðreyndin“ er í horninu efst til hægri fyrir ofan myndina af Robert Plant. Í HÁSKÓLANUM Ólafur Ragnar í kennslustofunni í Háskóla Íslands á árum áður. Útón, útf lutningsskrifstofa íslenskrar tónlistar, hefur feng- ið úthlutað átta milljónum króna í styrk frá fjárlaganefnd fyrir árið 2011. Styrkurinn hefur tvöfaldast síðan í fyrra þegar hann nam fjór- um milljónum. „Ég er mjög ánægð með þetta,“ segir Anna Hildur Hildibrandsdóttir, framkvæmda- stjóri Útón. Fyrir utan þessa upphæð fær Útón tíu milljónir á ári frá ríkinu samkvæmt samningi á milli Sam- tóns (samtökum rétthafa íslenskr- ar tónlistar) og mennta-, utanrík- is- og iðnaðarráðuneytanna. „Ég er mjög sátt við að það skyldi vera tekið tillit til þess að við þurfum þennan pening til að geta ýtt þeim verkefnum úr vör sem eru á okkar könnu. Þau eru orðin æði mörg og þarna mynd- ast líka grundvöllur til að við getum skapað fleiri tækifæri,“ segir Anna Hildur. „Útón hefur verið undirfjármögnuð skrif- stofa frá upphafi og þetta þýðir að við getum haldið starfseminni áfram.“ Anna tekur fram að fastaframlag til annarra kynningarmiðstöðva hafi verið hærra en Útón hafi feng- ið. Útón hafi því ákveðið að sækja til fjárlaganefndar til að geta meðal annars staðið undir auknu erlendu samstarfi sem skapar um leið tekjur og tækifæri. Þrátt fyrir krepputíma telur Anna það vel réttlætanlegt að Útón fái meiri pening: „Í öllum þessum verkefnum okkar koma minnst þrefaldar tekjur á móti miðað við það sem lagt er í skrif- stofuna,“ segir hún. Stutt er síðan tónlistarhátíðin Iceland Airwaves fékk í sinn hlut fimm milljónir króna úr ríkissjóði á fjárlögum 2011 og því er ljóst að íslenskt tónlistarfólk getur litið framtíðina bjartari augum en áður. freyr@frettabladid.is ANNA HILDUR HILDIBRANDSDÓTTIR: ÁNÆGÐ MEÐ ÁTTA MILLJÓNIR Íslenskt tónlistarfólk fær meiri pening í kreppunni ANNA HILDUR HILDIBRANDSDÓTTIR Framkvæmdastjóri Útón er ánægð með þær átta milljónir sem Útón hefur fengið úthlutað. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON María Birta Bjarnadóttir Aldur: 22 ára. Fjölskylda: Mamma mín heitir Sig- urlaug Halldórsdóttir, pabbi minn er Bjarni Friðriksson og Pálmi Gestsson er stjúpi minn. Búseta: 101 Reykjavík. Stjörnumerki: Tvíburi. María Birta er verslunareigandi og leikkona. Lau 15.1. Kl. 19:00 Sun 16.1. Kl. 19:00 Lau 22.1. Kl. 19:00 Sun 23.1. Kl. 19:00 Lau 29.1. Kl. 19:00 Fös 4.2. Kl. 19:00 Lau 15.1. Kl. 20:00 Sun 16.1. Kl. 20:00 Fim 20.1. Kl. 20:00 Lau 22.1. Kl. 20:00 Sun 23.1. Kl. 20:00 Síð. sýn. Lau 8.1. Kl. 13:00 Lau 8.1. Kl. 15:00 Sun 9.1. Kl. 13:00 Sun 9.1. Kl. 15:00 Sun 16.1. Kl. 13:00 Sun 16.1. Kl. 15:00 Sun 23.1. Kl. 13:00 Sun 23.1. Kl. 15:00 U Fíasól (Kúlan) Íslandsklukkan (Stóra sviðið) Gerpla (Stóra sviðið) Ö Fös 7.1. Kl. 20:00 Lau 8.1. Kl. 20:00 Kandíland (Kassinn) Mið 12.1. Kl. 20:00 Fim 20.1. Kl. 20:00 Sun 30.1. Kl. 20:00 Lér konungur (Stóra sviðið) U Ö Ö Ö Ö Fim 3.2. Kl. 18:00 Sun 6.2. Kl. 14:00 Sun 6.2. Kl. 17:00 Sun 13.2. Kl. 14:00 Sun 13.2. Kl. 17:00 Sun 20.2. Kl. 14:00 Sun 20.2. Kl. 17:00 Sun 27.2. Kl. 14:00 Sun 27.2. Kl. 17:00 Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið) U Ö Ö Hænuungarnir (Kassinn) Ö Ö Ö Lau 8.1. Kl. 20:00 4. sýn Sun 9.1. Kl. 20:00 5. sýn Fim 13.1. Kl. 20:00 6. sýn Fös 14.1. Kl. 20:00 7. sýn Fös 21.1. Kl. 20:00 8. sýn Fim 27.1. Kl. 20:00 Fös 28.1. Kl. 20:00 Fös 11.2. Kl. 20:00 Lau 12.2. Kl. 20:00 Þri 18.1. Kl. 20:00 Mið 19.1. Kl. 20:00 Hvað EF – skemmtifræðsla (Kassinn) Ö Ö Ö Ö Ö Ö Ö U Ö TRYGGÐU ÞÉR MIÐA STRAX „Þessi leiksýning hefur allt sem þarf til að skapa vel heppnað og eftirminnilegt leikverk.“ I.Þ., Mbl. „Critics choice“ Time Out, London Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is SÝNT Í JANÚAR FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN MEIRI SKEMMTUN Meiri Vísir.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.