Fréttablaðið - 24.02.2011, Page 18

Fréttablaðið - 24.02.2011, Page 18
18 24. febrúar 2011 FIMMTUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN HALLDÓR Fréttablaðið greindi frá því á forsíðu sinni á þriðjudag að samráðshópur vel- ferðarráðuneytisins vildi efla leigumark- að í landinu með því að setja íbúðir í eigu lífeyrissjóða, banka og annarra lánastofnana á leigumarkað. Þetta eru góðar fréttir og í full- komnu samræmi við áherslur sem BSRB hefur lagt í málinu. BSRB hefur á undanförnum mánuðum kynnt hugmyndir um varanlegan leigumarkað. Við höfum gengið á fund forsætis-, fjármála- og velferðarráðherra, hitt stjórnendur Íbúðalánasjóðs og fjölmarga fleiri. Grunnhug- myndin að baki tillögum BSRB er sú staðreynd að allir þurfa húsnæði, óháð tekjum eða félagslegum aðstæðum. Leigumarkaður á Íslandi hefur ætíð verið vanþroskaður. Hann hefur verið við- komustaður fólks á leið í eigið húsnæði og það hefur orðið til þess að leiguverð er langt fyrir ofan það sem eðlilegt getur tal- ist og öryggi leigjanda er lítið. Nú er hins vegar lag. Við höfum viljað bera okkur saman við hin Norðurlanda- ríkin í ýmsu, enda ríkir þar samfélags- gerð sem ástæða er til að miða sig við. Þar er það líka alvöru val fyrir fólk að búa í leiguhúsnæði, frekar en að kaupa sér sitt eigið. Það á ekki að vera náttúrulögmál að fólk fjárfesti í steinsteypu. BSRB hefur mælt með almennu leigukerfi að dönskum sið, þar sem leiguíbúðir eru í eigu leigufélaga eða leigufyrirtækja. Nú er nægt framboð á íbúðum í eigu Íbúðalánasjóðs eða annarra lánastofnana og það er gleðiefni að hugað sé að því að koma þeim á leigumarkað – og veita þannig fjölda fólks þak yfir höfuðið. Mikilvægt er að hugað sé að húsaleigunni. Í Danmörku er reglan sú að hún má einungis fjármagna afborganir lána og viðhaldskostnað leiguhúsnæðisins. Þar ríkir íbúalýðræði, sem þýðir að íbúarnir ákveða sjálfir hvaða viðhald eða betrum- bætur skal farið í hverju sinni. Húsaleiga hækkar því einungis í takt við það. Allir þurfa þak yfir höfuðið, um það þarf ekki að velkjast. Nú er tækifæri á því að byggja upp leigukerfi að norrænum sið og veita öllum þau mannréttindi að eiga sér samastað. Allir þurfa húsnæði Húsnæðis- mál Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB Nú er tæki- færi á því að byggja upp leigukerfi að norrænum sið J ákvæð afleiðing af því að forseti Íslands hefur í þrígang synjað lögum frá Alþingi staðfestingar er að nokkuð víðtæk þverpóli- tísk samstaða virðist hafa myndazt um að breyta 26. grein stjórnarskrárinnar og setja í staðinn skýrar reglur um það hvenær eigi að bera mál undir þjóðina. Í núverandi mynd (og núverandi túlkun forseta Íslands) býður 26. greinin upp á einu leiðina samkvæmt stjórnskipan- inni til að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um umdeild mál; að forseti synji lögum staðfestingar og skjóti málinu til þjóðarinnar. Vandinn við þessa leið er að það hvort efnt er til atkvæðagreiðslu eða ekki er háð persónulegu mati forsetans. Eðli málsins samkvæmt fer því allt upp í loft þegar forsetinn nýtir synjunarréttinn. Synjanir Ólafs Ragnars Gríms- sonar hafa verið umdeildar. Nú þegar hann hefur lífgað við það sem hann taldi einu sinni dauðan bókstaf hefur – að óbreyttri stjórn- arskrá – verið opnað fyrir þann möguleika að einn daginn eignumst við forseta með enn persónulegri sýn á það hvenær skuli grípa fram fyrir hendurnar á Alþingi og vísa málum í dóm þjóðarinnar. Allt frá því að forsetinn synjaði fjölmiðlalögunum staðfestingar sumarið 2004 hefur Sjálfstæðisflokkurinn, sem þá fór með forystu í ríkisstjórn, verið þeirrar skoðunar að breyta ætti 26. greininni; taka réttinn af forsetanum og fá hann tilteknu hlutfalli kjósenda eða þingmanna. Um þetta ríkti hins vegar engin samstaða þegar 26. greinin var vakin upp frá dauðum í fyrsta sinn. Össur Skarphéðinsson, þáverandi formaður Samfylkingarinnar, sagði þá til dæmis að 26. greinin væri „tær snilld“ og „nauðsynlegur nauðhemill þegar ríkisstjórn, eins og þessi, tapar sjónar á því sem rétt er í lýðræðislegu samfélagi og lendir utan vegar“. Á sama tíma sagðist Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, alltaf hafa gert ráð fyrir að málskotsrétturinn væri fyrir hendi. „Í öllum aðalatriðum skil ég þá röksemdafærslu sem forsetinn notaði,“ sagði Steingrímur þá. Í samræmi við þetta lögðust fulltrúar VG og Samfylkingarinnar í síðustu stjórnarskrárnefnd gegn því að málskotsrétturinn yrði tekinn af forsetanum um leið og settar yrðu almennar reglur um hvaða skilyrði þyrfti að uppfylla til að þjóðaratkvæðagreiðsla ætti að fara fram. Nú, þegar ríkisstjórnir báðum megin í pólitíska litrófinu hafa lent upp á kant við forsetann, kveður hins vegar við nýjan tón á Alþingi, eins og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, benti réttilega á í umræðum um málið. Steingrímur J. Sigfússon segist nú vera þeirrar skoðunar að endurskoða eigi 26. greinina og ganga skýrlega frá því við hvaða aðstæður þjóðaratkvæðagreiðslur eigi að fara fram, t.d. hvaða hlut- fall kjósenda eða þingmanna geti krafizt þeirra og hvers konar mál eigi erindi í þjóðaratkvæðagreiðslu. „Það er einhver hættulegasti ágreiningur sem risið getur í lýðræðissamfélagi ef slitnar sundur friðurinn um grundvallarleikreglur lýðræðisins,“ sagði Steingrímur á Alþingi í fyrradag – og hafði rétt fyrir sér í þetta sinn. Jákvæð afleiðing af synjun forsetans: Samstaða um skýrar reglur Viðhorf Svandísar Ragnheiður Elín Árnadóttir, þing- maður Sunnlendinga og þingflokks- formaður Sjálfstæðisflokksins, er mjög áfram um að byggt verði álver í Helguvík. Hún hefur nú lagt fram fyrirspurn á þingi til Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra um viðhorf hennar til slíkrar framkvæmdar. Að baki fyrirspurn- inni býr væntanlega sú skoðun Ragnheiðar Elínar að ýmsar umdeildar ákvarðanir ráð- herrans helgist af andstöðu hans við málið. Þetta kemur þó ekki fram í fyrirspurninni, sem er einungis átta orð. Óþarfi Ragnheiður Elín veit hins vegar svarið við spurningu sinni nú þegar og þarf því ekki að eyða púðri í svona rugl. Hún veit það af því að hún hefur setið á þingi í bráðum fjögur ár og á þeim tíma hafa ályktanir og ummæli liðsmanna Vinstri grænna – þeirra á meðal Svandísar – um stóriðjumál tæplega getað farið framhjá henni. Allt við það sama Og jafnvel þótt Ragnheiður Elín hefði bara setið á þingi í um fjóra mánuði ætti afstaða Svandísar að vera henni morgunljós. Það var nefnilega síðast 14. október 2010 að flokksbróðir hennar, Pétur H. Blöndal, nýtti tímann á þingi í að falast eftir skoðun Svandísar á álveri í Helguvík. „Ég hef ekki sérstakan áhuga á byggingu álvers í Helguvík,“ var svarið. Allir vita að síðan hefur ekkert breyst. Líka Ragnheiður Elín. stigur@frettabladid.is Fræðslufundur um handarkreppu Fimmtudaginn 24. febrúar kl. 19.30 verður fræðslufundur um handarkreppu eða Dupuytren-sjúkdóminn í húsnæði Gigtarfélags Íslands að Ármúla 5 á 2. hæð. Árni Jón Geirsson gigtarlæknir mun halda fyrirlestur um handarkreppu og svara spurningum. Að loknu erindi Árna Jóns er ætlunin að stofna áhugahóp um handarkreppu innan félagsins. Allir sem áhuga hafa á málefninu eru velkomnir.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.