Fréttablaðið - 24.02.2011, Síða 24
24. febrúar 2011 FIMMTUDAGUR24
timamot@frettabladid.is
GUÐRÚN Á. SÍMONARDÓTTIR (1924-1988) fæddist þennan dag.
„Ég segi aldrei brandara, heldur segi ég frá einhverju sem hefur komið
fyrir mig eða ég hef heyrt. Ég hef engar heilagar kýr og get sagt frá hverju sem er.“
Elskuleg eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma
Guðrún Bárðardóttir
Álftamýri 58, Reykjavík,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
þriðjudaginn 22. febrúar.
Þráinn Agnarsson
Guðlaug Bára Þráinsdóttir
Óskar Þór Þráinsson Anna Guðmundsdóttir
Guðrún Árný Árnadóttir Jens Jóhannsson
Guðrún Óskarsdóttir Agnar Örn Arason
Katrín Óskarsdóttir Kristján Ingi Úlfsson
Þráinn Óskarsson Inga Hrönn Häsler
og langömmubörn.
Elskulega dóttir okkar, móðir mín,
tengdamóðir, systir og amma
Vigdís Jónsdóttir
frá Selfossi, Hátúni 10 Reykjavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, þriðjudaginn
15. febrúar. Útförin fer fram frá Selfosskirkju,
laugardaginn 26. febrúar n.k. kl. 13.30.
Guðríður Magnúsdóttir Jón Hjartarson
Guðjón Þórisson Hanna Rut Samúelsdóttir
Jóhanna Jónsdóttir Lysgard Stein Age Lysgard
Grímur Jónsson Stefanía Geirsdóttir
og barnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Júlía Sæunn
Hannesdóttir
Boðahlein 14 Garðabæ,
lést á deild 2b Hrafnistu Hafnarfirði 18. feb. sl. Útför
hennar fer fram frá Fossvogskirkju þann 25. febrúar
klukkan 11.
Davíð R. Höjgaard
Margrét Davíðsdóttir Höjgaard Ólafur Eiríksson
Ólöf Davíðsdóttir Höjgaard Martin Guðmundsson
ömmu- og langömmubörn
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför ástkærrar móður okkar
og ömmu
Bjarneyjar Ágústsdóttur
frá Sæfelli
til heimilis á Sólvöllum, Eyrarbakka.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á Sólvöllum.
Fyrir hönd aðstandenda,
Már Ólafsson
Þórarinn Th. Ólafsson
Bjarney Ágústsdóttir
og fjölskyldur.
Elskulegur faðir okkar
Leifur S. Halldórsson
skipstjóri Skipholti 2, Ólafsvík,
sem andaðist á heimili sínu í Reykjavík 9. febrúar,
verður jarðsunginn frá Ólafsvíkurkirkju
laugardaginn 26. febrúar kl. 14.00.
Sætaferðir frá BSÍ kl. 10 og til baka síðdegis.
Matthildur S. Leifsdóttir
Þorgrímur Leifsson
Steingrímur Leifsson
Úlfhildur Á. Leifsdóttir.
Gengið hefur verið frá fastráðningar-
samningi við Kristínu Eysteinsdóttur
leikstjóra við Borgarleikhúsið fram á
haustið 2012 hið minnsta. Kristín hefur
haft í nægu að snúast síðustu misserin;
leikstýrði Fólkinu í kjallaranum í Borg-
arleikhúsinu fyrr í vetur og er um þess-
ar mundir að ljúka leikstjórn á Heddu
Gabler í Þjóðleikhúsinu sem frumsýnd
verður 10. mars.
„Jú, ég hlakka bara til að takast á við
þetta, ég hef meira og minna starfað í
Borgarleikhúsinu síðastliðin tvö ár og
þekki því vel þann sterka hóp sem er
þarna og vinnuandann, sem er góður,“
segir Kristín.
Kristín gat sér gott orð sem tónlistar-
maður áður en leið hennar lá í leik-
listina. „Ég fór ekki alvarlega að velta
leikhúsinu fyrir mér fyrr en ég var orðin
25 ára. Þá fór ég í nám í leikhúsfræði og
svo var það tilviljun að ég fór að leik-
stýra; ég var svolítið lengi að átta mig á
að það væri þar sem minn styrkur lægi.“
Kristín lauk meistaragráðu í leik-
stjórn frá Goldsmiths, University of
London árið 2007 en hafði áður lokið
BA-námi í dramatúrgíu frá Árósahá-
skóla. Frá því hún útskrifaðist frá
London hefur hún alfarið starfað við
leikstjórn og verið meðal fremstu leik-
stjóra landsins. Af þeim verkum sem
Kristín hefur stýrt má nefna Vinur
minn Heimsendir í Hafnarfjarðarleik-
húsinu, Penetreitor sem leikhópurinn
Vér morðingjar setti upp, og Sá ljóti
hjá Þjóðleikhúsinu, en fyrir þá sýningu
hlaut hún Grímuverðlaunin sem leik-
stjóri ársins 2008. Kristín hefur einn-
ig verið tilnefnd til Grímunnar fyrir
verkin Dúfurnar og Rústað í Borgar-
leikhúsinu og leikstýrði Harry og Heim-
ir í Borgarleikhúsinu ásamt höfundum
verksins.
En hvað er það sem leikstjóri þarf að
hafa í huga til að árangri?
„Ég held að það sé að þora að leita,
efast og spyrja spurninga. Ég held að
það sé mikilvægast að nota efann á
jákvæðan hátt. Leikhússtarfið snýst
líka að stærstum hluta um að hlusta,
taka við hugmyndum og vera opinn en
á sama tíma þarf maður að vera mjög
ákveðinn og taka ákvarðanir þegar
þess krefst. Ef maður er bara búinn að
ákveða allt fyrir fram algjörlega sjálf-
ur er örugglega ekkert gaman að vinna
með manni. Leikhúsið er ófyrirsjáan-
legt og það er það sem gerir það líka
skemmtilegt.“
KRISTÍN EYSTEINSDÓTTIR: FASTRÁÐIN SEM LEIKSTJÓRI Í BORGARLEIKHÚSINU
Mikilvægt að þora að efast
MÁLUM MIÐLAÐ „Ef maður er bara búinn að ákveða allt fyrir fram algjörlega sjálfur er örugglega ekkert gaman að vinna með manni,“ segir
Kristín Eysteinsdóttir leikstjóri. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Á þessum degi árið 1977 sendi Krabba-
meinsfélag Reykjavíkur bréf til Kaup-
mannasamtaka Íslands og fór þess á leit
að auglýsingaspjöld frá tóbaksinnflytjend-
um í verslunum væru tekin niður.
Framkvæmdastjórn Kaupmannasam-
takanna var í bréfinu beðin um að koma
þeim tilmælum áleiðis til félagsmanna
sinna að taka ekki þátt í auglýsinga-
herferðum tóbaksinnflytjenda en ein slík
hafði þá staðið yfir í einhvern tíma og
mælst víða illa fyrir, ekki síst hjá yngri kyn-
slóðum.
Kaupmenn höfðu þá þegar víða snúist
gegn auglýsingaherferð tóbaksinnflytjenda.
Má þar nefna að eigandi verslunarinnar
Dalvers við Dalbraut í Reykjavík hafði
hengt upp veggspjöld frá Krabbameins-
félaginu í verslun sinni þar sem fjallað var
um skaðleg áhrif reykinga.
ÞETTA GERÐIST: 24. FEBRÚAR 1977
Tóbaksauglýsingar í umræðunni
Merkisatburðir
1924 Tuttugu þingmenn
stofna Íhaldsflokkinn.
Hann sameinast Frjáls-
lynda flokknum fimm
árum síðar undir nafni
Sjálfstæðisflokksins.
1924 Líkneskið af Ingólfi
Arnarsyni á Arnarhóli í
Reykjavík er afhjúpað.
Styttan er eftir Einar
Jónsson.
1957 Sjómannasamband
Íslands er stofnað.
1991 Minnisvarði um Svein-
björn Egilsson, rektor
og skáld, er afhjúpað
á æskuslóðum hans í
Innri-Njarðvík.
1993 Flugskýli Flugleiða hf.
á Keflavíkurflugvelli er
formlega tekið í notk-
un.