Fréttablaðið - 24.02.2011, Side 30
2 •
POPP er fylgirit Fréttablaðsins. POPP kemur
út einu sinni í mánuði.
Ritstjóri: Atli Fannar Bjarkason
atlifannar@frettabladid.is
Útlitshönnun: Arnór Bogason
Sölustjóri auglýsinga: Benedikt Freyr Jónsson
benediktj@365.is • sími 512 5411
Útgefandi: 365 hf.
HLUSTAÐU …
… á nýju plötuna með Radiohead, The King
of Limbs. Flestir virðast vera á þeirri skoðun
að platan sé ekki eins góð og sú síðasta,
In Rainbows. Málið er samt að meðalgóð
Radiohead-plata er betri en góðar plötur frá
flestum hljómsveitum. Svo er líka nauðsynlegt
að hlusta á plötuna til að vera viðræðuhæfur,
ef þú nennir ekki að tala um Icesave í partíum.
HORFÐU …
… á þættina Boardwalk Empire, sem hófu göngu
sína á Stöð 2 í síðustu viku. Þættirnir lofa hrika-
lega góðu og stórleikarinn Steve Buscemi er í
miklu stuði í burðarhlutverki þáttanna. Einnig er
forvitnilegt að fletta nafni þáttanna upp á You-
tube og horfa á hvernig tölvutækni hefur verið
beitt til að skapa umhverfið. Fáránlega flott.
BORÐAÐU …
...Á Kryddlegnum hjörtum á Skúlagötu.
Þar fást fáránlega góðar súpur sem gera
mann saddan – ólíkt öðrum súpum. Það
eru alltaf nokkrar súpur í boði og hægt
er að smakka þær allar í einni ferð. Svo
er hrikalega góð súkkulaðikaka í boði í
eftirrétt. Hún er eflaust ekki eins holl og
súpurnar, en hún ku vera lífræn.
LIFÐU AF
Í MARS
Hljómsveitin Fídel þótti gríðarlega
efnileg á sínum tíma og sendi frá sér
magnaða plötu, áður en hún hætti
skyndilega. Nú hafa meðlimir hljóm-
sveitarinnar dustað rykið af týndum
upptökum.
„Það er bara leiðinlegt að enginn
hefur heyrt þetta nema við og vinir
okkar,“ segir útvarpsmaðurinn Andri
Freyr Viðarsson.
Andri Freyr og félagar hans í hinni
sálugu hljómsveit Fídel hafa dustað
rykið af plötu sem þeir tóku upp
skömmu áður en þeir hættu árið 2002.
Plötusnúðurinn og hárgreiðslumaðurinn
Jón Atli, fyrrverandi útvarpsmaðurinn
Búi Bendtsen og trommarinn Janus
Bragi Jakobsson voru í Fídel ásamt
Andra. Hljómsveitin þótti gríðarlega
efnileg á sínum tíma og fyrsta plata
hennar, New Entrance, skoraði hátt á
listum yfir bestu plötur ársins 2002. Þá
naut lagið Who Gives a Rat? talsverðra
vinsælda á öldum ljósvakans.
„Þetta eru lög sem okkur langaði að
eiga áður en við færum til fjandans,“
segir Andri Freyr um upptökurnar sem
hafa ekki ennþá litið dagsins ljós. „Þetta
eru átta lög og ég held að þau séu það
sem við erum stoltastir af að hafa gert.“
Spurður hvort platan komi
út á næstunni segir Andri
að þeir ætli ekki að drepa
sig á því að reyna að
koma henni til almenn-
ings. „En við gáfum Kimi
Records útgáfuréttinn
á plötunni í
afmælisgjöf,“ segir hann. „Þannig
að boltinn er hjá þeim. Þeir rétt
ráða hvort þeir gefa hana út.“
Þegar Fídel hafði tekið plötuna
upp á sínum tíma var upptökunum
komið í hendur sama aðila og hljóm-
jafnaði fyrstu plötu hljómsveit-
arinnar. Hann býr erlendis
og er búinn að vera
með plötuna síðan, en
var nú, rúmum átta
árum síðar, að leggja lokahönd á hljóm-
jöfnunina. „Hann var að klára þetta,
þetta er hin íslenska Chinese Democ-
racy,“ segir Andri og vísar í fræga plötu
hljómsveitarinnar Guns n‘ Roses.
Andri er gríðarlega ánægður með
afraksturinn og segir mikla angist og
tilfinningu einkenna lögin. „Við erum að
láta allt flakka,“ segir hann. „Við Jón Atli
erum búnir að gæla við nöfn á plötuna.
Okkur finnst Fídel – A Lame Name for a
Great Band hljóma vel.“
En eru endurkomutónleikar á döfinni?
„Nei, það hugsa ég ekki. Ég hugsa að
það sé öllum sama. Kannski étum við
eitthvað saman. Nonni er fluttur út, ég
kann ekki á gítar, Búi er bara í bissness.
En ég veit það ekki. Það má skoða allt
fyrir réttu upphæðina.“
DUSTA RYKIÐ AF TÝNDU
PLÖTUNNI MEÐ FÍDEL
Á ÁRUM ÁÐUR Hljómsveitin Fídel árið 2002. Piltarnir hafa nú dustað rykið af týndri plötu.
ÁNÆGÐUR Andri
Freyr er ánægður
með týndu plötuna
en segir tónleika
ekki á döfinni.
6
7
12
16