Fréttablaðið - 24.02.2011, Side 38
24. FEBRÚAR 2011 FIMMTUDAGUR
Tvískiptir kjólar úr blúndu og
siffon, sixties-áhrif, notagildi
og gott verð gefur tóninn fyrir
fermingarlínuna hjá Gallerí
Sautján.
„Tvískiptir kjólar eru áberandi í
fermingarlínunni hjá Gallerí Sautj-
án. Innblásturinn er sóttur í götu-
tískuna og öll mittisháu pilsin sem
hafa verið svo vinsæl,“ segir Guð-
laug Einarsdóttir, verslunarstjóri í
Gallerí Sautján í Kringlunni.
Kjólarnir eru með teygjupilsi og
áföstum efriparti úr blúndu sem er
ýmist hvít, bleik eða svört. Blúndan
er alltaf vinsæl að sögn Guðlaugar,
hvort sem er í kjólum eða legghlíf-
um. Hægt er að poppa kjólana upp
með stuttum bleiserjakka og velja
hlýrabol í skærum lit innan undir
blúndutoppinn.
„Í ár notum við líka siffon í
fermingarlínuna hjá okkur og
bjóðum upp á fallegan tvískiptan
kjól með siffonpilsi í ýmist bein-
hvítu, svörtu eða bleiku. Efripart-
urinn er þrengri meðan pilsið er
laust. Til að krydda þetta er flott
að setja stór hálsmen við og smella
sér í einn stuttan svartan jakka.
Sjöundi áratugurinn var okkur
líka hugleikinn þegar við ákváðum
fermingarlínuna og við erum með
æðislega síðerma heila siffon- og
blúndukjóla sem fást bæði í svörtu
og beinhvítu. Fermingarstelpurn-
ar hafa verið mjög hrifnar af þeim
og greinilegt að í mörgum þeirra
leynist lítill bóhem.
Í skóm hafa stelpurnar verið
að taka ökklaskó, ýmist reimaða
eða opna, í kamellitum, svörtu og
brúnu.
„Við lögðum upp með að hanna
fermingarlínu sem væri á hag-
stæðu verði og hefði mikið nota-
gildi. Kjólana er hægt að nota
áfram sem sæta sumarkjóla og
jakkana er hægt að nota allan árs-
ins hring,“ segir Guðlaug. „Við
erum líka með frábært úrval af
sokkabuxum, skarti, beltum og
ekki síst skóm, þannig að hver
og ein getur fundið eitthvað við
sitt hæfi. Það er alltaf tilhlökk-
un hjá manni eftir þessum tíma
árs; margar stelpurnar eru komn-
ar með fastmótaðar skoðanir á því
hvað þær vilja og það er gaman að
sjá nýjar kynslóðir vaxa úr grasi,“
segir Guðlaug að lokum.
Fjölbreytt tíska í anda
sjöunda áratugarins
„Við lögðum upp með að hanna fermingarlínu sem væri á hagstæðu verði og hefði mikið notagildi,“ segir Guðlaug, sem er hér
ásamt samstarfskonu sinni og fallegri fermingarstúlku.