Fréttablaðið - 24.02.2011, Page 40

Fréttablaðið - 24.02.2011, Page 40
24. FEBRÚAR 2011 FIMMTUDAGUR4 ● fermingarföt Í Outfitters Nation hefur sala á fermingarfötum farið vel af stað. Strákar velja fjólublátt og svart, á meðan stelpurnar mæta í búðina til að fá innblástur, skoða úrvalið og taka svo af skarið. „Svo virðist sem fólk sé snemma á ferðinni í ár og við höfum tekið eftir því hugarfari að fólk vill klára þetta af í tíma,“ segir Ármann Lloyd Brynjarsson aðstoðarversl- unarstjóri í Outfitters Nation. „Við eigum von á nýrri sendingu á næstu dögum með fleiri fermingar - vörur, en þær sem við höfum núna hafa verið að fara vel.“ Aðspurður segir Ármann tískuna hjá strákunum í ár vera jakkafatajakka með glansáferð og dökkar gallabuxur við. „Bux- urnar eru þá alveg dökkar, þar á meðal saumarnir, og með smá glansáferð einnig. Ekki skemm- ir að þær kosta ekki nema 7.500 krónur. Jakkarnir hafa verið að seljast vel og velja strákarnir oft dökkfjólubláa skyrtu við þá. Fjólublátt er einmitt vinsælasti liturinn í ár að því er virðist, en svart hefur líka heillað,“ segir Ármann og bætir við að skyrturn- ar séu á 6.990 krónur. „Við þetta hafa strákarnir svo verið að taka slaufur, sem við eigum í alls konar litum, og þykir mörgum að loks fái þær þann virðingarsess sem þær eiga skilið. Auk þess eru klass- ísku jakkafötin alltaf vinsæl og aðsniðin svört jakkaföt hafa verið að seljast vel hjá okkur á rúmar 19.000 krónur.“ Strákarnir virðast hafa fastmót- aðri hugmyndir er þeir leggja af stað í fatakaupin. „Þeir eru með ákveðnar hugmyndir, sem oft breytast þegar þeir fara að máta og sjá að hægt er að krydda aðeins upp á það sem þeir höfðu ákveðið.“ Stelpurnar koma aftur á móti inn í búð með opnari hug og frekar í þeim hugleið- ingum að fá innblástur frá því sem þær sjá á slánni. „Við erum með gott úrval af kjólum frá 5.990 til 9.500, en svo er vinsælt að púsla ýmsum öðrum flík- um saman við þá, til dæmis leggings og svoköll- uðum bóleróum. Það er mik- ilvægt fyrir okkur að hafa þetta góða úrval til að verða við þessum óskum og það fer engin óánægð héðan út.“ Sjálfur fermdist Ármann í hefðbundnum jakkafötum. „Ég myndi fara öðruvísi að þessu í dag og vera töluvert djarfari,“ segir Ármann og hlær. ,„En maður velur bara það sem maður er ánægður með þá og þegar. Það er fyrir öllu.“ Kjóll 6.990 krónur Bindi 1.990 krónur. Skyrta 6.990 krónur. Vesti 5.990 krónur. Buxur 6.990 krónur. Blazer 12.900 krónur. Kjóll 9.500 krónur. Strákarnir eru ákveðnari Ýmislegt er hægt að gera öðruvísi hvað varðar fermingarhlaðborðin og gaman er að prófa eitthvað nýtt og koma stórfjölskyldunni á óvart. Þeir sem elska flóknar og íburðar- miklar veislur og hafa tök og tíma til að framreiða slíkar taka margir fermingarveislum með tilhlökkun. Það þarf þó ekki að vera leiðinlegt að halda veislu þótt hún innihaldi ekki sautján sortir af snittum og heilgrillaðan grís. Hér eru nokkr- ar uppástungur að skemmtilegum fermingarveisluþemum: ● Tíðarandi 9. áratugarins er sér- stakur og skemmtilegur þar sem veislurnar lituðust af einföldum brauðtertum, heitum aspasréttum, snakki með og nógu af gosi. Heit- ir saumaklúbbsréttir eru nokkuð sem öllum finnst gott, er þægilegt að útbúa með góðum fyrirvara, geyma í ísskáp og hita upp fyrir veisluna. Slíkar veitingar kosta heldur ekki mikið og hægt er að gera góðri veislu skil með því að hafa alls kyns slíka rétti á boðstól- um og hafa tilbrigðin þá með mis- munandi tegundum af kjötáleggi, grænmeti og ostum. ● Sé fermingarveislan í hádeginu getur verið mikil stemning að gera hana að stórri kjötsúpuveislu. Til þess að það gangi þarf að fá lán- aða stærstu pottana innan stórfjöl- skyldunnar og aukaleg helluborð. Þá er eftirleikurinn hins vegar ekki flókinn enda íslensk kjötsúpa þægileg og einföld í matreiðslu, fyrir utan það að vera hátíðleg og bragðgóð. ● Þeim sem langar að hafa „landaþema“ í veislunni er bent á Ítalíu og Mexíkó. Ítölsk pastasalöt má útbúa í stórum skömmtum og hafa með heitt hvítlauksbrauð og salat. Mexíkanskar veitingar eru líka þægilegar í framleiðslu. Hægt er að gera ódýra og góða bauna- rétti, framreiða nachos, salsa og heitar ostasalatsósur með í mótum. ● Mörgum finnst engin ferming- arveisla vera án kransaköku. Þeim hinum sömu er bent á að það þarf alls ekki að vera flókið að útbúa slíka köku og sniðugt er að fá til þess lánuð réttu mótin sem fylgja með sumum hrærivélum. Heima- bökuð kransakaka er bæði pers- ónuleg og ódýrari. Kökuhlaðborð þurfa ekki að svigna undan ótal tegundum – tvær til þrjár tegund- ir af kökum eru nóg og hægt að skreyta með snakki og konfekti. Matarþema veislunnar Fermingarhlaðborðið þarf ekki að vera flókið – einfaldar veitingar og færri tegundir eru ekki síðri kostur. ● AÐ ALLIR FÁI AÐ NJÓTA SÍN Unga fólkið sem fermist á þessu vori hefur um margt að velja í sambandi við klæðnað. Það finnur vonandi allt eitthvað í búðunum sem hæfir efnahag og persónu- leika, eða hefur önnur úrræði. Kannski saumar það eitthvað sjálft og státar af eigin hand- verki á stóra deginum, eða á myndarlega að sem sjá um þá deild. Það er fleira en fatnaðurinn sem setur svip á útlitið. Fylgi- hlutir eru í miklu úrvali í versl- unum og fallegt hárskraut eða spangir fyrir stúlkurnar og nettir skartgripir svo sem hálsmen og armbönd hæfa vel tilefninu. Drengirnir setja gjarnan upp slaufur og bindi á þessum merkisdegi og stinga vasaklút- um í brjóstvasann. Nú eru litir í boði í slíkri smávöru en þeir sem vilja halda sig við hið klass- íska eiga líka margra kosta völ. Það sem máli skiptir er að hverjum og einum líði vel í fermingarfötunum og að allir njóti sín.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.