Fréttablaðið - 24.02.2011, Page 41

Fréttablaðið - 24.02.2011, Page 41
fermingarföt ●FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2011 5 Debenhams í Smáralind býður viðskiptavinum ráðgjöf hjá stílista sem hjálpar fermingarbarninu að finna réttu fötin fyrir stóra daginn. „Þessi þjónusta kostar ekki neitt og fólk er alls ekki bundið við að versla eftir ráðgjöf- ina,“ segir Ásdís Gunnarsdóttir, stílisti hjá Debenhams, en hún aðstoðar viðskiptavini við að finna réttu fötin við hvaða tækifæri sem er. Hún segir tilvalið fyrir fermingar- börn og foreldra þeirra að nýta sér stílista til að velja föt fyrir stóra daginn. „Fólk pantar einfaldlega tíma. Til dæmis geta mæður og dætur komið saman og við hjálpum þá bæði móður og dóttur að finna á sig eitthvað fallegt fyrir daginn. Við miðum yfirleitt við einn og hálfan tíma en oft teyg- ist það upp í tvo því þetta getur líka snú- ist um að gera sér glaðan dag saman og fá kannski hugmyndir í leiðinni sem geta hjálp- að til í undirbúningnum. En ef fólk finnur síðan eitthvað sem hentar þá er það auðvitað bara frábært.“ Þegar komið er til stílista fær viðskipta- vinurinn sér sæti inni í herbergi meðan Ásdís fer um búðina og velur saman föt á slá. Síðan er tekið til við að máta. „Viðskiptavinurinn getur fengið sér hress- ingu í rólegheitum og svo hjálpumst við að við að máta og velja saman flíkur. Við spjöll- um saman og reynum að finna út snið og liti sem henta viðkomandi en við leggjum upp með að þau geti notað fötin við fleiri tæki- færi, að þetta séu spariföt en ekki bara ferm- ingarföt,“ útskýrir Ásdís. „Það skiptir líka miklu máli að smekkur og stíll fermingar- barnanna skíni í gegn svo þau verði líka ánægð með útkomuna seinna meir.“ Fermingartískuna í ár segir Ásdís vera rómantíska og fallega frekar en töff. „Við munum ekki binda okkur við hvítt, kjólarnir verða í rómantískum sniðum og mikið um blúndur, pífur og perlur. Grátt er mikið í tísku, bleikir litir og kameltónar. Einnig erum við með gott úrval af skóm.“ Ásdís segir þjónustu stílista alltaf að verða vinsælli og fólk nýtir sér þjónustu hennar talsvert fyrir uppákomur eins og árshátíðir og stórviðburði. „Oft koma hópar saman, vinkvennahópar eða vinnuhópar. Strákarnir koma líka en oftast er það þá mamman sem pantar tímann. Þessi þjón- usta er fyrir alla á hvaða aldri sem er, bæði karla og konur.“ Smekkur fermingarbarnsins skíni í gegn Ásdís Gunnarsdóttir, stílisti hjá Debenhams, aðstoðar viðskiptavini við að velja á sig föt fyrir stóra daginn. Þjónustan er ókeypis. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.