Fréttablaðið - 24.02.2011, Síða 75
FIMMTUDAGUR 24. febrúar 2011
Sértilboð 8. mars
frá 79.900
Tenerife
Heimsferðir bjóða einstakt tilboð til Tenerife
þann 8. mars í viku. Veðurfarið er einstaklega
milt og notalegt sem og allt umhverfið.
Verð kr. 79.900
Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir með sköttum.
Frá kr. 109.900
Vime Callao Garden *** með „allt innifalið“
Netverð á mann m.v. 2 fullorðna í íbúð með einu
svefnherbergi í viku. Sértilboð 8. mars.
Frá kr. 129.900
Isla Bonita **** með „allt innifalið“
Netverð á mann m.v. 2 fullorðna í herbergi í viku.
Sértilboð 8. mars.
Við leitum að
góðu fólki
Á vefnum getur þú með einföldum hætti
flett í gegnum og skoðað atvinnuauglýsingar
Fréttablaðsins. Þú kaupir atvinnuauglýsingu
í Fréttablaðinu - öflugasta auglýsingamiðli
landsins og hún birtist frítt í heila viku á
einum stærsta vefmiðli landsins –
og Fréttablaðið kynna
nýjan og öflugan atvinnu-
og raðauglýsingavef
...ég sá það á visir.is
KÖRFUBOLTI Keflavík náði að fylgja
eftir sigrinum í bikarkeppninni
um helgina með sigri á KR í Ice-
land Express-deild kvenna í gær,
63-61, en þessi sömu lið áttust
við í bikarúrslitunum. Ingibjörg
Jakobsdóttir gleymir seint þessum
leik en hún tryggði Keflavík sigur
með þriggja stiga körfu um leið og
leiktíminn rann út.
„Ég hef nú ekki átt margar
svona körfur á ferlinum,“ sagði
hún í samtali við Fréttablað-
ið eftir leik og brosti. Það gekk
mikið á á lokasekúndunum og
henni brást ekki bogalistin þegar
hún fékk boltann á ögurstundu og
tók þriggja stiga skot, þó svo að
tveggja stiga karfa hefði einnig
dugað til sigurs.
„Þetta er bara miklu flottara
svona,“ sagði hún og hló.
Chazny Morris hafði komið
KR yfir, 61-60, með þriggja stiga
körfu þegar tólf sekúndur voru
eftir af leiknum en það dugði á
endanum ekki til. „Það var virki-
lega gaman að vinna þennan leik
og við þurftum á því að halda. Það
var erfitt að koma sér í réttan gír
fyrir leikinn og gott að hafa náð
að vinna þennan leik eftir sigurinn
í bikarkeppninni,“ bætti hún við.
Jón Halldór Eðvaldsson, þjálf-
ari Keflavíkur, hrósaði Ingibjörgu
eftir leikinn. „Hún er að koma úr
erfiðum meiðslum og þetta er í
raun annar leikurinn í röð gegn
KR þar sem hún gerir útslagið.
Þetta var því frábært fyrir hana,“
sagði hann.
En Jón Halldór viðurkennir að
það hafi verið erfitt að ná leik-
mönnum aftur á jörðina eftir
bikarhelgina. „Þetta var spennu-
fall og leikurinn þróaðist nákvæm-
lega eins og við báðir þjálfararn-
ir áttum von á að ég tel – að þetta
yrði erfitt og vesen. En sem betur
fer datt sigurinn okkar megin.“
„Þetta snýst um að koma réttu
hugarfari að hjá leikmönnum en
þær voru enn með hugann við
að hafa orðið bikarmeistarar og
því var það erfitt. Ég er því mjög
ánægður með sigurinn og sér-
staklega var það gaman að vinna
á flautukörfu – það gerist ekki oft.“
Jacquline Adamshick átti stór-
leik hjá Keflavík og skoraði 31 stig
auk þess sem hún tók 21 frákast.
Hún átti stóran þátt í sigri liðs-
ins en annars var heldur fátt um
fína drætti í leiknum. Það var lítið
undir og bar hann þess merki.
Hrafn Kristjánsson, þjálfari
KR, var eðlilega súr í broti eftir
leikinn. „Þetta var kaflaskiptur
leikur. Við sveifluðumst á milli
þess að vera hálf andlausar og yfir
í að spila fína vörn, pressa vel á
boltann og gera það sem við ætl-
uðum okkur að gera,“ sagði hann.
„Við vorum svo sem ekki búnar
að leggja inn fyrir því en það var
gaman að vera í þeirri aðstöðu að
geta unnið leikinn. En þeim mun
grátlegra að hafa ekki verið til-
búnar í varnarleiknum í síðustu
sókninni þeirra.“
KR er öruggt með þriðja sæti
deildarinnar en Keflavík á enn
tölfræðilegan möguleika á að ná
toppsætinu af Hamri – sem er þó
ólíklegt. eirikur@frettabladid.is
Flautukarfa Ingibjargar
tryggði Keflvíkingum sigur
Keflavík vann KR öðru sinni á nokkrum dögum þegar liðin mættust í Iceland
Express-deild kvenna í gær. Ingibjörg Jakobsdóttir tryggði Keflavík tveggja stiga
sigur, 63-61, með þriggja stiga flautukörfu. Jacquline Adamshick skoraði 31 stig.
FÖGNUÐUR Jón Halldór Eðvaldsson þjálfari og Ingibjörg Jakobsdóttir, til hægri, í
leiknum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN