Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.02.2011, Qupperneq 75

Fréttablaðið - 24.02.2011, Qupperneq 75
FIMMTUDAGUR 24. febrúar 2011 Sértilboð 8. mars frá 79.900 Tenerife Heimsferðir bjóða einstakt tilboð til Tenerife þann 8. mars í viku. Veðurfarið er einstaklega milt og notalegt sem og allt umhverfið. Verð kr. 79.900 Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir með sköttum. Frá kr. 109.900 Vime Callao Garden *** með „allt innifalið“ Netverð á mann m.v. 2 fullorðna í íbúð með einu svefnherbergi í viku. Sértilboð 8. mars. Frá kr. 129.900 Isla Bonita **** með „allt innifalið“ Netverð á mann m.v. 2 fullorðna í herbergi í viku. Sértilboð 8. mars. Við leitum að góðu fólki Á vefnum getur þú með einföldum hætti flett í gegnum og skoðað atvinnuauglýsingar Fréttablaðsins. Þú kaupir atvinnuauglýsingu í Fréttablaðinu - öflugasta auglýsingamiðli landsins og hún birtist frítt í heila viku á einum stærsta vefmiðli landsins – og Fréttablaðið kynna nýjan og öflugan atvinnu- og raðauglýsingavef ...ég sá það á visir.is KÖRFUBOLTI Keflavík náði að fylgja eftir sigrinum í bikarkeppninni um helgina með sigri á KR í Ice- land Express-deild kvenna í gær, 63-61, en þessi sömu lið áttust við í bikarúrslitunum. Ingibjörg Jakobsdóttir gleymir seint þessum leik en hún tryggði Keflavík sigur með þriggja stiga körfu um leið og leiktíminn rann út. „Ég hef nú ekki átt margar svona körfur á ferlinum,“ sagði hún í samtali við Fréttablað- ið eftir leik og brosti. Það gekk mikið á á lokasekúndunum og henni brást ekki bogalistin þegar hún fékk boltann á ögurstundu og tók þriggja stiga skot, þó svo að tveggja stiga karfa hefði einnig dugað til sigurs. „Þetta er bara miklu flottara svona,“ sagði hún og hló. Chazny Morris hafði komið KR yfir, 61-60, með þriggja stiga körfu þegar tólf sekúndur voru eftir af leiknum en það dugði á endanum ekki til. „Það var virki- lega gaman að vinna þennan leik og við þurftum á því að halda. Það var erfitt að koma sér í réttan gír fyrir leikinn og gott að hafa náð að vinna þennan leik eftir sigurinn í bikarkeppninni,“ bætti hún við. Jón Halldór Eðvaldsson, þjálf- ari Keflavíkur, hrósaði Ingibjörgu eftir leikinn. „Hún er að koma úr erfiðum meiðslum og þetta er í raun annar leikurinn í röð gegn KR þar sem hún gerir útslagið. Þetta var því frábært fyrir hana,“ sagði hann. En Jón Halldór viðurkennir að það hafi verið erfitt að ná leik- mönnum aftur á jörðina eftir bikarhelgina. „Þetta var spennu- fall og leikurinn þróaðist nákvæm- lega eins og við báðir þjálfararn- ir áttum von á að ég tel – að þetta yrði erfitt og vesen. En sem betur fer datt sigurinn okkar megin.“ „Þetta snýst um að koma réttu hugarfari að hjá leikmönnum en þær voru enn með hugann við að hafa orðið bikarmeistarar og því var það erfitt. Ég er því mjög ánægður með sigurinn og sér- staklega var það gaman að vinna á flautukörfu – það gerist ekki oft.“ Jacquline Adamshick átti stór- leik hjá Keflavík og skoraði 31 stig auk þess sem hún tók 21 frákast. Hún átti stóran þátt í sigri liðs- ins en annars var heldur fátt um fína drætti í leiknum. Það var lítið undir og bar hann þess merki. Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR, var eðlilega súr í broti eftir leikinn. „Þetta var kaflaskiptur leikur. Við sveifluðumst á milli þess að vera hálf andlausar og yfir í að spila fína vörn, pressa vel á boltann og gera það sem við ætl- uðum okkur að gera,“ sagði hann. „Við vorum svo sem ekki búnar að leggja inn fyrir því en það var gaman að vera í þeirri aðstöðu að geta unnið leikinn. En þeim mun grátlegra að hafa ekki verið til- búnar í varnarleiknum í síðustu sókninni þeirra.“ KR er öruggt með þriðja sæti deildarinnar en Keflavík á enn tölfræðilegan möguleika á að ná toppsætinu af Hamri – sem er þó ólíklegt. eirikur@frettabladid.is Flautukarfa Ingibjargar tryggði Keflvíkingum sigur Keflavík vann KR öðru sinni á nokkrum dögum þegar liðin mættust í Iceland Express-deild kvenna í gær. Ingibjörg Jakobsdóttir tryggði Keflavík tveggja stiga sigur, 63-61, með þriggja stiga flautukörfu. Jacquline Adamshick skoraði 31 stig. FÖGNUÐUR Jón Halldór Eðvaldsson þjálfari og Ingibjörg Jakobsdóttir, til hægri, í leiknum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.