Fréttablaðið - 03.11.2010, Síða 17
MIÐVIKUDAGUR 3. nóvember 2010
Verkefnið er styrkt af
Rannsóknir sýna að ein besta
forvörnin gegn fíkniefnum er
Kynntu þér málið á www.forvarnardagur.is
eða vertu með okkur á facebook.com/forvarnardagur
að sniðganga áfengi
sem lengst
Miðvikudaginn 3. nóvember er forvarnardagur í öllum grunnskólum landsins. Ofangreind fullyrðing er byggð á áralöngum rannsóknum fræðimanna við
Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík á hegðun ungmenna og hvað skilar árangri í forvörnum. Forvarnardagurinn er samstarfsverkefni ofantaldra aðila.
ÉG DREKK
EKKI ÞVÍ
MÉR ÞYKIR
VÆNT UM
HEILASELLURNAR
MÍNAR“
„
ÁSLAUG ADDA
SEND IÐ OKK UR LÍNU
Fréttablaðið og Vísir hvetja lesendur til að senda línu og leggja orð í belg um
málefni líðandi stundar. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagnorð. Tekið er á
móti efni á netfanginu greinar@frettabladid.is eða á vefsíðu Vísis, þar sem finna
má nánari leiðbeiningar. Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í Fréttablaðinu eða
Vísi eða í báðum miðlunum að hluta eða í heild. Áskilinn er réttur til leiðréttinga
og til að stytta efni.
Sæll aftur Örn Bárður. Í svar-grein þinni til mín gerir þú
lítið úr trúboði í skólum með því
að segja að trúboð sé stundað víða.
Þú spyrð hvort prestar séu meiri
trúboðar en aðrir. Ég spyr: er Þjóð-
kirkjan evangelísk – boðberi fagn-
aðarerindisins? Þú talar um opið
samfélag án þess að spyrja hinnar
erfiðu spurningar: Hvar á að draga
mörkin? Einhvers staðar hljóta þau
að liggja. Tillögur mannréttinda-
ráðs eru tilraun til þess að draga
þessi mörk með hag skólabarna í
huga.
Trúboð er markaðssetning lífs-
skoðana. Á heimasíðu Gídeon-
félagsins má lesa að markmið þess
sé „að koma orði Guðs í hendur
fólks á sem flestum aldursskeiðum
þess“ (gideon.is). Stundum ganga
fulltrúar þeirra lengra en að dreifa
Nýja Testamentinu meðal skóla-
barna og höfða til trúartilfinninga
þeirra og leiða þau í bæn (sjá t.d.
orvitinn.com/2010/10/23/12.30). Í
sumum leikskólum koma prestar
í heimsókn mánaðarlega. Fyrir
fáeinum árum fréttist af því að í
grunnskóla einum væri ávallt farið
með morgunbæn. Í mörgum skólum
er dreift upplýsingum um barna-
starf kirkjunnar. Ekki má gleyma
tillögu sem liggur fyrir kirkju-
þingi þar sem talað er um aukin
tengsl kirkjunnar, bæði við leik-
skóla og grunnskóla (kirkjuthing.
is/mal/2010/14). Þetta er ekkert
annað en trúboð. Það skýrir hin
sterku viðbrögð kirkjunnar – hún
er að missa spón úr aski sínum.
En tryggjum við jafnræðið með
því að hleypa fleiri trúboðum inn?
Á eftir Gídeon gæti Imaminn dreift
Kóraninum, og hvað með Mor-
mónsbók? Þú spyrð hvort við viljum
ekki opið samfélag? Vissulega. En
hvar eiga mörkin þá að liggja? Vilj-
um við að Vottar Jehóva og Aðvent-
istar dreifi ritum til 10. bekkinga
þar sem þróunarkenningin er dreg-
in í efa? Og hvað með trúfélög sem
gætu fengið opinbera viðurkenn-
ingu seinna meir? Vísindakirkj-
an, prýdd öllum sínum Hollywood-
stjörnum, er viðurkennt trúfélag
hjá frændum okkar Svíum. Mynd-
um við opna fyrir þeim? Ég held
ekki. Það þarf að draga skýra línu.
Eina raunhæfa leiðin til þess er að
tryggja að skólinn sé vettvangur
fræðslu, ekki markaðssetningar.
Er það mismunun að allir nema
tveir fari í kirkjuferð? Er það rétt,
með velferð barnanna í huga, að
skilja þau frá hópnum? Hér verð-
ur að hafa í huga að skólinn er
opinber, lögbundinn, og fyrir alla.
Auðvitað verður að vera svigrúm
fyrir foreldra að fá frí við sérstak-
ar ástæður. En við hljótum að vera
sammála um að utanaðkomandi
starfssemi trufli skólastarfið sem
minnst. Þú virðist gefa þér að þjóð-
kirkjufólk vilji trúboð í skólum. En
það fylgir ekki sjálfkrafa. Undan-
farna daga hef ég heyrt í foreldr-
um sem vilja vera í Þjóðkirkjunni
en eru samt andvígir trúboði í
skólum. Þú virðist einnig telja að
trúlausir kjósi að skilja börn sín út
úr hópnum. Fólk fer ólíkar leiðir.
Margir foreldrar kjósa að kyngja
eigin sannfæringu og hlífa börn-
um sínum við því að vera skilin
frá félögum sínum verða þar með
stimpluð „öðruvísi“.
En eru tillögur mannréttinda-
ráðs atlaga að mannréttindum
meirihlutans? Hvernig má það
vera þegar öllum verður áfram
tryggð lögbundin fræðslu um
kristindóminn samkvæmt Aðal-
námskrá? Tillögurnar snúa aðeins
að sjálfri iðkun trúarinnar á skóla-
tíma. Ef taka ætti fyrir fræðslu um
kristna trú væri það að mínu viti
ekki aðeins brot á mannréttindum
meirihlutans heldur einnig minni-
hlutans. Sumir hafa snúið út úr
trúfrelsinu þannig að það sé frelsi
til trúar, ekki frá trú. En auðvitað
felst líka í því rétturinn til trúleys-
is. Þetta á við í hinu opinbera rými
þar sem skólinn er reistur, öllum
til handa. Og þetta snýst ekki um
miðstýringu. Að halda því fram að
mannréttindi og trúfrelsi eigi að
byggjast á því hverjir ráða í hverf-
um borgarinnar hverju sinni stenst
ekki. Mannréttindi eru almenn og
yfir slíkan hverfulleika hafin.
Og hvað svo um „þöggun“?
Enginn hefur talað fyrir þögg-
un um kristna trú. Fyrir utan
að vera óverjandi væri slíkt líka
ómögulegt í ljósi Aðalnámsskrár
– sem tryggir einnig að krist-
in trú fái meira pláss en önnur
trúarbrögð. Allt tal um þögg-
un er því rangt og jafnframt
vantraust á skólakerfið. Hitt er
annað mál að fleira verður að
koma til en kristin fræði eigi að
tryggja menningarlæsi. Þræðir
íslenskrar menningar eru fleiri
en svo, og í besta falli umdeil-
anlegt að grunnstefið sé kross-
saumur og vefstóllinn úr kross-
viði. Í nýlegum netpistli segir
„að til að geta notið menningar-
arfs þjóðarinnar og okkar heims-
hluta er mikilvægt að kennslu í
samfélagsfræðum, bókmenntum,
myndlist, tónlist sem og trúar-
bragðafræðum og öðrum tengd-
um námsgreinum sé sinnt með
fjölbreyttum og metnaðarfullum
hætti“ (Fésbókin: Björn Kristj-
ánsson: Þetta var bara misskiln-
ingur!). Bætt menningarlæsi
hlýtur að byggjast á þekkingu,
ekki trúboði.
Tölum um það sem skiptir
máli. Hættum að gera öðrum upp
skoðanir eins og „þöggun“. Vilj-
um við að hinn lögbundni, opin-
beri skóli sé vettvangur fyrir
markaðssetningu trúarbragða?
Viljum við að hann sé fyrir alla
eða bara meirihlutann? Hér er
ekki nóg að hver svari fyrir sig,
eftir hverfulleika eigin þanka-
gangs í sínu horni. Mannréttindi
eru almenn og yfir slíkt hafin.
Þess vegna þarf skýrar línur.
Viljum við
markaðssetningu á
trú til skólabarna?
Trúmál
Guðmundur Ingi
Markússon
trúarbragðafræðingur
og foreldri
Það þarf að draga skýra línu. Eina
raunhæfa leiðin til þess er að tryggja
að skólinn sé vettvangur fræðslu,
ekki markaðssetningar.