Fréttablaðið - 03.11.2010, Blaðsíða 19
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
skrifar
Samið hefur verið við Ólaf Torfason, hótelstjóra á
Grand Hóteli í Reykjavík, um rekstur fjórtán til sex-
tán hæða hótels með þrjú hundruð herbergjum, sem
fyrirhugað er að rísi á Höfðatorgsreitnum í Borgar-
túni á næstu þremur árum.
Verktakafyrirtækið Eykt, sem séð hefur um fram-
kvæmdir á Höfðaborgarreitnum, mun byggja hótelið.
Fyrirtækið á nú í viðræðum um fjármögnun verksins.
Pétur Guðmundsson, stjórnarformaður Eyktar, vildi
ekki tjá sig um gang mála þegar eftir því var leitað.
Skipulag á Höfðaborgarreitnum var kynnt fyrir
um fjórum árum. Þá var gert ráð fyrir þremur turn-
um og sex sjö til níu hæða húsum ásamt tengibygg-
ingum á reitnum. Eftir því sem næst verður kom-
ist hefur einn turnanna verið settur í salt ásamt
nokkrum bygginganna. Einn turn stendur nú
á reitnum ásamt skrifstofuhúsnæði við
Skúlagötu. Eins og sjá má á teikn-
ingu af reitnum er áætlað að hótelt-
urninn rísi vestan megin við skrif-
stofuhúsnæðið. Hann er grænn á
myndinni.
Ólafur Torfason er þrautreynd-
ur í hótelrekstri. Hann hefur rekið
Hótel Reykjavík við Rauðarárstíg
frá 1992 og festi kaup á Holiday
Inn, nú Grand Hótel, af Íslandsbanka
þremur árum síðar. Þá rekur hann Hótel
Reykjavík Centrum í miðbænum. Hót-
elin eru rekin undir merkjum Reykja-
vík Hotels.
Óbyggða hótelið hefur fengið vinnu-
heitið Fosshótel Reykjavík, en Ólaf-
ur hefur síðastliðin tvö ár látið til sín
taka í rekstri Fosshótelanna.
Ólafur segir rekstur hótela al-
mennt ganga ágætlega nú um stund-
ir. Þó verði að kynna landið betur á er-
lendum vettvangi. „Ef við gerum það vel
hef ég engar áhyggjur,“ segir hann.
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
9
Skott Belsky
Skipulag skiptir
sköpum
4
Skattar
Ísland á
öðru róli
6-7
Veffang: visir.is – Sími: 512 5000
H E L S T Í Ú T L Ö N D U M
Miðvikudagur 3. nóvember 2010 – 11. tölublað – 6. árgangur
Ryanair græðir
Írska lággjaldaflugfélagið Ryanair
skilaði rúmlega 450 milljóna evra
hagnaði á fyrri hluta ársins, og er
það 17 prósent meiri hagnaður en
fyrirtækið aflaði sér fyrri hluta
síðasta árs. Fargjöld hafa hækk-
að um 14 prósent og flugferðum til
Spánar, Portúgal og Möltu hefur
fjölgað.
Kína kaupir þotur
Flugvélaverksmiðjur reikna með
töluvert meiri sölu á þotum til Kína
næstu árin og áratugina. Nú hafa
Boeing-verksmiðjurnar breytt
söluspám sínum og búast við að
til ársins 2029 kaupi kínversk flug-
félög 4.330 þotur, en á síðasta ári
hljóðaði spáin upp á 3.770 þotur.
Evrópsku Airbus-verksmiðjurn-
ar hugsa sér einnig gott til glóðar-
innar, og það gera einnig flugvéla-
framleiðendur í Rússlandi, Brasil-
íu, Japan og Kanada.
Málningu slett
Rauðri málningu var skvett á
Mary Harney, heilbrigðisráð-
herra Írlands, þegar hún hugð-
ist opna nýja geðheilsudeild í
Dublin á mánudag. Írska stjórnin
hefur sætt harðri gagnrýni fyrir
áform um að draga harkalega úr
útgjöldum til heilbrigðismála.
Ólafur stýrir turnhót-
elinu við Höfðatorg
Í bígerð er að reisa allt að sextán hæða hótel við
Höfðatorgið. Stefnt er á að rekstur geti hafist þar eftir þrjú
ár. Hótelstjórinn segir erfitt að spá fyrir um horfur.
ÓLAFUR TORFASON Fyrirhugað er að fjórtán til sextán hæða
hótel undir merkjum Fosshótela rísi við Höfðatorg á næstu þremur
árum. MARKAÐURINN/GVA
Mundu að panta posa fyrir
jólaverslunina!
Hagnaður BankNordik, eða Fær-
eyjabanka, óx um rúmar 40 millj-
ónir danskra króna milli fjórð-
unga, samkvæmt afkomuspá IFS
Ráðgjafar.
Hlutabréf bankans hækkuðu um
13 prósent í október eftir að banka-
umsýsla Danmerkur yfirtók Eik
banka í lok september. Í dag er
hver hlutur Færeyjabanka met-
inn á 159 danskar krónur.
Áætlun IFS gerir ráð fyrir að
bankinn skili hagnaði upp á 490
milljónir danskra króna í ár, fyrir
skatta, og hyggjast eigendur greiða
út 30 prósent af hagnaði ársins,
eftir skatta, út í arð. - þj
Betra útlit hjá
Færeyjabanka
Seðlabankinn hefur veitt íslensk-
um eigendum hlutabréfa í Össuri
hf. heimild til að flytja bréf sín yfir
í kauphöllina í Kaupmannahöfn og
fá þau samhliða skráð í dönskum
krónum.
Þetta kemur fram í Markaðs-
punktum greiningardeildar Arion
banka, en þar er vísað í fréttatil-
kynningu Össurar. Þar segir að
Seðlabankinn hafi veitt hluthöf-
um leyfi til að flytja eign sína af
íslenska markaðnum yfir á þann
danska, hafi þeir eignast bréfin
fyrir 1. nóvember síðastliðinn.
Þykir þessi ákvörðun heyra til
tíðinda þar sem verið sé að „gera
ákveðnum hópi fjárfesta kleift að
koma fjármunum sínum úr landi,“
eins og segir í Markaðspunktum.
Mega skrá eign
í Danmörku
Leiðtogar G20
Kreppan kemst
á nýtt stig