Fréttablaðið - 03.11.2010, Page 50
3. nóvember 2010 MIÐVIKUDAGUR30
sport@frettabladid.is
GUNNAR KRISTJÁNSSON samþykkti í gær að skrifa undir tveggja ára samn-
ing við FH líkt og Fréttablaðið sagði að hann myndi gera. Gunnar kemur til félagsins
frá KR en þar fékk hann fá tækifæri og var því lánaður til FH um mitt síðasta sumar.
Honum líkaði greinilega vistin vel fyrst hann verður áfram í Krikanum.
Meistaradeild Evrópu:
A-RIÐILL:
Tottenham-Inter 3-1
1-0 Rafael van der Vaart (18.), 2-0 Peter Crouch
(61.), 2-1 Samuel Eto´o (79.), 3-1 Roman
Pavlyuchenko (89.)
Werder Bremen-Twente 0-2
0-1 Nacer Chadli (81.), 0-2 Luuk de Jong (84.)
STAÐAN:
Tottenham 4 2 1 1 12-8 7
Inter 4 2 1 1 11-8 7
Twente 4 1 2 1 6-7 5
Werder Br. 4 0 2 2 3-9 2
B-RIÐILL:
Benfica-Lyon 4-3
1-0 Alan Kardec (20.), 2-0 Fabio Coentrao (32.),
3-0 Javi Garcia (42.), 4-0 Fabio Coentrao (67.),
4-1 Yoann Gourcuff (74.), 4-2 Bafetimbi Gomis
(85.), 4-3 Dejan Lovren (90.).
Hapoel Tel Aviv-Schalke 0-0
STAÐAN:
Lyon 4 3 0 1 9-5 9
Schalke 4 2 1 1 5-2 7
Benfica 4 2 0 2 6-7 6
Hapoel 4 0 1 3 2-8 1
C-RIÐILL:
Bursaspor-Man. Utd 0-3
0-1 Darren Fletcher (48.), 0-2 Gabriel Obertan
(73.), 0-3 Bebé (77.).
Valencia-Rangers 3-0
1-0 Roberto Soldado (33.), 2-0 Roberto Soldado
(71.), 3-0 Alberto Costa (90.).
STAÐAN:
Man. Utd 4 3 1 0 5-0 10
Valencia 4 2 1 1 8-2 7
Rangers 4 1 2 1 2-4 5
Bursaspor 4 0 0 4 0-9 0
D-RIÐILL:
Rubin Kazan-Panathinaikos 0-0
FCK-Barcelona 1-1
0-1 Lionel Messi (31.), 1-1 D. Claudemir (32.)
STAÐAN:
Barcelona 4 2 2 0 9-3 8
FCK 4 2 1 1 4-3 7
Rubin Kazan 4 0 3 1 1-2 3
Panathinaikos 4 0 2 2 1-7 2
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
3
7
5
5
FÓTBOLTI Tottenham sendi út skýr
skilaboð í Evrópuboltann í gær
þegar liðið vann sannfærandi sigur
á Inter á heimavelli. Gareth Bale
var maðurinn sem Inter réð ekki
við. Hann skoraði síðast þrennu
gegn Inter og lagði upp tvö mörk í
gær og gerði varnarmönnum Inter
lífið leitt.
Leikur Spurs og Inter byrj-
aði með miklum látum og bæði
lið sóttu af krafti. Fyrri leikur
liðanna var bráðfjörugur, mikið
skorað og fátt sem benti til annars
en að þessi leikur yrði ákaflega
skemmtilegur.
Mikið var rætt og ritað um Gar-
eth Bale fyrir leikinn en hann
skoraði þrennu í fyrri leik liðanna.
Hann byrjaði af krafti en það var
Króatinn Luka Modric sem lagði
upp fyrsta markið.
Þá átti hann magn-
aða stungusendingu á
Hollendinginn Rafa-
el van der Vaart
sem var sam-
síða varnarmönn-
um Inter. Hann
afgreiddi skotið
af stakri snilld og kom
Spurs yfir á 18. mín-
útu. Spurs hélt áfram
að byggja upp hættu-
legar sóknir og Peter Crouch fékk
sannkallað dauðafæri á 25. mínútu
eftir frábæran undirbúning Bale.
Skot Crouch var misheppnað og fór
fram hjá markinu.
Spurs hélt áfram að spila leiftr-
andi sóknarbolta og það var ótrú-
legt að fylgjast með Walesverj-
anum Bale gera grín að hinum
frábæra brasilíska bakverði,
Maicon. Hann fór hvað eftir
annað illa með Brassann og Bale
lagði upp annað mark Spurs þegar
klukkutími var liðinn af leiknum.
Hann átti þá frábæra sendingu
fyrir markið sem Crouch kom yfir
línuna.
Spurs var með öll tök á
leiknum en ellefu mín-
útum fyrir leikslok
skoraði Samuel Eto´o
fyrir Inter með hnit-
miðuðu skoti fyrir utan
teig. Markið kom upp
úr þurru og hleypti
spennu í lokamínút-
ur leiksins. Maður
leiksins, Gareth Bale,
gerði aftur á móti út
um vonir Inter er hann
lagði upp þriðja mark Spurs fyrir
Pavlyuchenko.
Man. Utd var lengi vel í vand-
ræðum með Bursaspor í Tyrk-
landi en steig upp í síðari hálfleik
og skoraði þá þrjú góð mörk. Unit-
ed er því í afar vænlegri stöðu í
sínum riðli.
FCK, lið Sölva Geirs Ottesen,
stóð sig frábærlega þegar það tók
á móti Barcelona á Parken.
Eftir að hafa lent marki undir
jafnaði FCK um hæl og hélt jafn-
tefli. Sölvi Geir sat á bekknum
allan tímann.
henry@frettabladid.is
Bale sá um Evrópumeistarana
Walesverjinn Gareth Bale fór aftur á kostum gegn Inter þegar Spurs skellti Evrópumeisturunum í Inter,
3-1. Hann lagði upp tvö mörk og niðurlægði Maicon allan leikinn. Man. Utd er í fínum málum eftir sigur í
Tyrklandi. Sölvi Geir Ottesen og félagar í FCK eru líka í fínum málum eftir frækið jafntefli gegn Barcelona.
Á SKOTSKÓNUM Messi
fagnar marki sínu í gær sem
dugði ekki til. NORDIC PHOTOS/
GETTY IMAGES
FÖGNUÐUR Rafael van der Vaart náði að spila fyrri hálfleikinn fyrir Spurs í gær og
hann braut ísinn með góðu marki. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES