Fréttablaðið - 03.11.2010, Page 17

Fréttablaðið - 03.11.2010, Page 17
MIÐVIKUDAGUR 3. nóvember 2010 Verkefnið er styrkt af Rannsóknir sýna að ein besta forvörnin gegn fíkniefnum er Kynntu þér málið á www.forvarnardagur.is eða vertu með okkur á facebook.com/forvarnardagur að sniðganga áfengi sem lengst Miðvikudaginn 3. nóvember er forvarnardagur í öllum grunnskólum landsins. Ofangreind fullyrðing er byggð á áralöngum rannsóknum fræðimanna við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík á hegðun ungmenna og hvað skilar árangri í forvörnum. Forvarnardagurinn er samstarfsverkefni ofantaldra aðila. ÉG DREKK EKKI ÞVÍ MÉR ÞYKIR VÆNT UM HEILASELLURNAR MÍNAR“ „ ÁSLAUG ADDA SEND IÐ OKK UR LÍNU Fréttablaðið og Vísir hvetja lesendur til að senda línu og leggja orð í belg um málefni líðandi stundar. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagnorð. Tekið er á móti efni á netfanginu greinar@frettabladid.is eða á vefsíðu Vísis, þar sem finna má nánari leiðbeiningar. Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða í báðum miðlunum að hluta eða í heild. Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til að stytta efni. Sæll aftur Örn Bárður. Í svar-grein þinni til mín gerir þú lítið úr trúboði í skólum með því að segja að trúboð sé stundað víða. Þú spyrð hvort prestar séu meiri trúboðar en aðrir. Ég spyr: er Þjóð- kirkjan evangelísk – boðberi fagn- aðarerindisins? Þú talar um opið samfélag án þess að spyrja hinnar erfiðu spurningar: Hvar á að draga mörkin? Einhvers staðar hljóta þau að liggja. Tillögur mannréttinda- ráðs eru tilraun til þess að draga þessi mörk með hag skólabarna í huga. Trúboð er markaðssetning lífs- skoðana. Á heimasíðu Gídeon- félagsins má lesa að markmið þess sé „að koma orði Guðs í hendur fólks á sem flestum aldursskeiðum þess“ (gideon.is). Stundum ganga fulltrúar þeirra lengra en að dreifa Nýja Testamentinu meðal skóla- barna og höfða til trúartilfinninga þeirra og leiða þau í bæn (sjá t.d. orvitinn.com/2010/10/23/12.30). Í sumum leikskólum koma prestar í heimsókn mánaðarlega. Fyrir fáeinum árum fréttist af því að í grunnskóla einum væri ávallt farið með morgunbæn. Í mörgum skólum er dreift upplýsingum um barna- starf kirkjunnar. Ekki má gleyma tillögu sem liggur fyrir kirkju- þingi þar sem talað er um aukin tengsl kirkjunnar, bæði við leik- skóla og grunnskóla (kirkjuthing. is/mal/2010/14). Þetta er ekkert annað en trúboð. Það skýrir hin sterku viðbrögð kirkjunnar – hún er að missa spón úr aski sínum. En tryggjum við jafnræðið með því að hleypa fleiri trúboðum inn? Á eftir Gídeon gæti Imaminn dreift Kóraninum, og hvað með Mor- mónsbók? Þú spyrð hvort við viljum ekki opið samfélag? Vissulega. En hvar eiga mörkin þá að liggja? Vilj- um við að Vottar Jehóva og Aðvent- istar dreifi ritum til 10. bekkinga þar sem þróunarkenningin er dreg- in í efa? Og hvað með trúfélög sem gætu fengið opinbera viðurkenn- ingu seinna meir? Vísindakirkj- an, prýdd öllum sínum Hollywood- stjörnum, er viðurkennt trúfélag hjá frændum okkar Svíum. Mynd- um við opna fyrir þeim? Ég held ekki. Það þarf að draga skýra línu. Eina raunhæfa leiðin til þess er að tryggja að skólinn sé vettvangur fræðslu, ekki markaðssetningar. Er það mismunun að allir nema tveir fari í kirkjuferð? Er það rétt, með velferð barnanna í huga, að skilja þau frá hópnum? Hér verð- ur að hafa í huga að skólinn er opinber, lögbundinn, og fyrir alla. Auðvitað verður að vera svigrúm fyrir foreldra að fá frí við sérstak- ar ástæður. En við hljótum að vera sammála um að utanaðkomandi starfssemi trufli skólastarfið sem minnst. Þú virðist gefa þér að þjóð- kirkjufólk vilji trúboð í skólum. En það fylgir ekki sjálfkrafa. Undan- farna daga hef ég heyrt í foreldr- um sem vilja vera í Þjóðkirkjunni en eru samt andvígir trúboði í skólum. Þú virðist einnig telja að trúlausir kjósi að skilja börn sín út úr hópnum. Fólk fer ólíkar leiðir. Margir foreldrar kjósa að kyngja eigin sannfæringu og hlífa börn- um sínum við því að vera skilin frá félögum sínum verða þar með stimpluð „öðruvísi“. En eru tillögur mannréttinda- ráðs atlaga að mannréttindum meirihlutans? Hvernig má það vera þegar öllum verður áfram tryggð lögbundin fræðslu um kristindóminn samkvæmt Aðal- námskrá? Tillögurnar snúa aðeins að sjálfri iðkun trúarinnar á skóla- tíma. Ef taka ætti fyrir fræðslu um kristna trú væri það að mínu viti ekki aðeins brot á mannréttindum meirihlutans heldur einnig minni- hlutans. Sumir hafa snúið út úr trúfrelsinu þannig að það sé frelsi til trúar, ekki frá trú. En auðvitað felst líka í því rétturinn til trúleys- is. Þetta á við í hinu opinbera rými þar sem skólinn er reistur, öllum til handa. Og þetta snýst ekki um miðstýringu. Að halda því fram að mannréttindi og trúfrelsi eigi að byggjast á því hverjir ráða í hverf- um borgarinnar hverju sinni stenst ekki. Mannréttindi eru almenn og yfir slíkan hverfulleika hafin. Og hvað svo um „þöggun“? Enginn hefur talað fyrir þögg- un um kristna trú. Fyrir utan að vera óverjandi væri slíkt líka ómögulegt í ljósi Aðalnámsskrár – sem tryggir einnig að krist- in trú fái meira pláss en önnur trúarbrögð. Allt tal um þögg- un er því rangt og jafnframt vantraust á skólakerfið. Hitt er annað mál að fleira verður að koma til en kristin fræði eigi að tryggja menningarlæsi. Þræðir íslenskrar menningar eru fleiri en svo, og í besta falli umdeil- anlegt að grunnstefið sé kross- saumur og vefstóllinn úr kross- viði. Í nýlegum netpistli segir „að til að geta notið menningar- arfs þjóðarinnar og okkar heims- hluta er mikilvægt að kennslu í samfélagsfræðum, bókmenntum, myndlist, tónlist sem og trúar- bragðafræðum og öðrum tengd- um námsgreinum sé sinnt með fjölbreyttum og metnaðarfullum hætti“ (Fésbókin: Björn Kristj- ánsson: Þetta var bara misskiln- ingur!). Bætt menningarlæsi hlýtur að byggjast á þekkingu, ekki trúboði. Tölum um það sem skiptir máli. Hættum að gera öðrum upp skoðanir eins og „þöggun“. Vilj- um við að hinn lögbundni, opin- beri skóli sé vettvangur fyrir markaðssetningu trúarbragða? Viljum við að hann sé fyrir alla eða bara meirihlutann? Hér er ekki nóg að hver svari fyrir sig, eftir hverfulleika eigin þanka- gangs í sínu horni. Mannréttindi eru almenn og yfir slíkt hafin. Þess vegna þarf skýrar línur. Viljum við markaðssetningu á trú til skólabarna? Trúmál Guðmundur Ingi Markússon trúarbragðafræðingur og foreldri Það þarf að draga skýra línu. Eina raunhæfa leiðin til þess er að tryggja að skólinn sé vettvangur fræðslu, ekki markaðssetningar.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.