Fréttablaðið - 03.11.2010, Side 26
Gerður Kristný, rithöfundur og skáld, leggur
af stað í ferðalag til Norður-Úganda í Afríku á
laugardag. Hún slæst þar í för með starfsmönn-
um Barnaheilla - Save the Children á Íslandi
sem eru með verkefni í landinu sem miðar
að því að að auka skólaaðgang og bæta gæði
menntunar yfir 30.000 barna í Pader-héraði
fram til ársins 2011.
„Við ætlum að heimsækja skóla þarna úti og
sjá hvernig börnin hafa það. Síðan ætla ég að
lesa upp úr barnabókum mínum, Mörtu smörtu
fyrir eldri börnin en Jóladýrunum fyrir yngri
börnin og sýna þeim myndirnar í henni eftir
Brian Pilkington. Svo segi ég krökkunum
aðeins frá börnunum á Íslandi,“ útskýrir Gerð-
ur og getur þess að hennar hlutverk verði auk
þess að skrásetja það sem fyrir augu ber í ferð-
inni. „Ég ætla að halda úti bloggi á Eyjunni og
mun setja inn nýjar færslur á hverjum degi.
Fyrsta færslan birtist reyndar strax í gær.“
Mikil stríðsátök hafa verið í Norður-Úganda
síðastaliðna tvo áratugi, sem hafa leitt til
umtalsverðra hörmunga, mannfalls og eyði-
leggingar. Þúsundir manna eru eða hafa dvalið
í flóttamannabúðum og hreinlætisaðstaða, heil-
brigðisstarf og menntun er verulega ábótavant
í landinu. Í Pader-héraði einu er til að mynda
einn kennari fyrir hver rúmlega 100 börn og
aðeins 30 prósent nemenda ljúka grunnnámi,
eða 17 prósent stúlkna og 43 prósent drengja.
Spurð hvort hún kvíði fyrir ferðinni, segist
Gerður Kristný hafa litlar áhyggjur af eigin
öryggi þar sem hún muni ferðast í hópi með
þaulreyndu fólki, Jakobi Halldórssyni kvik-
myndatökumanni og Petrínu Ásgeirsdóttur
og Helga Ágústssyni, framkvæmdastjóra og
formanni Barnaheilla – Save the Children á
Íslandi. „Ég er fyrst og fremst forvitin að sjá
hvernig börnin hafa það. Sjálf veit ég lítið um
Norður-Úganda og þegar ég ætlaði að afla mér
upplýsinga kom mér verulega á óvart hvað lítið
er til af bókum um landið. Það er greinilega
ekki mikil ástæða til að gefa út bækur um það
fyrir ferðamenn.“
Þetta er í fyrsta skipti sem Gerður Kristný
kemur til Afríku og kveðst hún því hlakka
mikið til fararinnar. „Ég er ákaflega spennt,
þar sem ég þekki marga sem ferðast hafa um
álfuna og snúið aftur alveg heillaðir, haldnir
eins konar Afríkusýki,“ segir hún og útilokar
ekki að ferðin eigi eftir að veita sér innblást-
ur við ritstörfin. „Ég þykist viss um að ferðin
muni birtast með einhverjum hætti í verkum
mínum í framtíðinni.“
Eins og áður sagði leggur hópurinn af stað
á laugardag og snýr svo aftur heim til Íslands
14. nóvember. roald@frettabladid.is
Heimsækir stríðshrjáð börn í Úganda
Starfsmenn á vegum Barnaheilla – Save the Children á Íslandi leggja af stað til Norður-Úganda á laugardag en samtökin eru þar með verk-
efni sem miða að því að auka skólaaðgang. Með í för verður skáldið Gerður Kristný sem ætlar að kynna sér aðstæður úganskra skólabarna.
Gerður Kristný segist vera forvitin að sjá hvernig skólabörn í Norður-Úganda hafa það. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Breski blaðamaðurinn Gavin Con-
way frá The Sunday Times setti á
dögunum heimsmet, þegar hann
ók Volkswagen Passat BlueMotion
á einum tanki eða 72 lítrum hvorki
meira né minna en 2.459 kíló-
metra. Þetta er hið lengsta sem
fjöldaframleiddur bíll hefur farið á
einum eldsneytistanki.
Conway ók bæði í borgum og
á hraðbrautum í Suður-Frakklandi,
en vegalengdin samsvarar því að
ekið sé frá New York til Los Ang-
eles eða frá London til Malaga
á einum eldsneytistanki. Meðal-
eyðslan hjá Conway var 3,13 lítrar
á hverja hundrað kílómetra.
Eftirlitsaðili frá Heimsmeta-
bók Guinness var með í förinni og
hefur metið verið staðfest.
Bifreiðin sem Conway ók var af
Volkswagen Passat BlueMotion
með 1,6 TDI 105 hestafla dísilvél.
Volkswagen í
Heimsmetabók
Guinness
BLAÐAMAÐUR FRÁ THE SUNDAY
TIMES SETTI Á DÖGUNUM HEIMS-
MET MEÐ ÞVÍ AÐ AKA HEILA 2.459
KÍLÓMETRA Á EINUM TANKI.
Bílasýningin í Los Angeles fer fram 17. nóvember næstkomandi, en
hún nýtur vaxandi vinsælda meðal bílaáhugamanna um allan heim. Þar
eru evrópskir og japanskir bílar algengastir og verða tuttugu nýjar gerðir
bifreiða frumsýndar að þessu sinni. Sjá www.laautoshow.com.
Aðalfyrirlesarar föstudaginn 5. nóvember, kl. 14–17:
Guðrún Pétursdóttir félagsfræðingur
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir framhaldsskóla-
kennari
Kristín Vala Ragnarsdóttir forseti Verkfræði- og
náttúruvísindasviðs HÍ
Ólöf Þórhildur Ólafsdóttir framkvæmdastjóri hjá
Evrópuráðinu
Rósa Gunnarsdóttir sérfræðingur í mennta- og
menningarmálaráðuneytinu
Stefán Jökulsson lektor við Menntavísindasvið HÍ
Milli kl. 17 og 19 verður gestum boðið að þiggja veitingar
í tilefni af fimm ára afmæli Samtakanna.
Laugardaginn 6. nóvember verða málstofur, smiðjur og
vinnufundir með fjölbreyttum viðfangsefnum
Sérstakur gestur:
Pascale Mompoint-Gaillard höfundur bókarinnar
How All Teachers Can Support Citizenship and Human
Rights Education
Ný stefna í menntamálum
Hvernig hrindum við henni í framkvæmd?
Ársþing Samtaka áhugafólks um skólaþróun
í Sjálandsskóla 5.–6. nóvember 2010
Læsi
Jafnrétti
Menntun til sjálfbærni
Skapandi starf
Lýðræði
Nánari upplýsingar og skráning á
www.skolathroun.is
Samtök áhugafólks um skólaþróun hafa staðið fyrir fjölmörgum ráð-
stefnum og þingum um skólastarf í leik-, grunn– og framhaldsskóla.
Meðal málefna: Einstaklingsmiðun, lýðræði, útikennsla, námsmat,
starfendarannsóknir, leikurinn sem náms- og kennsluaðferð, lestur -
og lesskilningur, veganesti nemanda á 21. öldinni, skólabragur og
samskipti nemenda, listir og sköpun í skólastarfi, starfshættir tóm-
stundaheimila, þemakennsla og samþætt verkefni.