Fréttablaðið - 03.11.2010, Side 51
MIÐVIKUDAGUR 3. nóvember 2010 31
FÓTBOLTI Stórleikur kvöldsins í
Meistaradeildinni er viðureign AC
Milan og Real Madrid. Þessi tvö
lið hafa verið afar farsæl í þessari
keppni. José Mourinho snýr líka
aftur á sinn gamla heimavöll en
hann er reyndar ekki að mæta lið-
inu sem hann þjálfaði áður.
AC Milan tapaði fyrri leiknum á
Spáni en Zlatan Ibrahimovic, leik-
maður Milan, segir að liðið hafi
lært af fyrri leiknum.
„Við þurfum að gera allt sem
við gerðum ekki á Spáni til þess
að vinna. Þeir voru miklu betri á
meðan við vorum hægir og ekki
nógu grimmir. Ef við spilum okkar
leik þá munum við vinna þá og
sýna við við erum með betra lið,“
sagði Zlatan sem talar yfirleitt í
fyrirsögnum.
Chelsea verður án Florents
Malouda í kvöld er það fær rúss-
neska liðið Spartak Moskvu í heim-
sókn. Chelsea hefur unnið alla þrjá
leiki sína í riðlinum og tryggir sig
áfram í sextán liða úrslitin með
sigri í kvöld.
Chelsea verður ekki bara án
Malouda í kvöld því Frank Lampard
er enn meiddur. José Bosingwa er líka veikur en Brasilíumaðurinn
Ramires er klár í bátana.
Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea,
segir að Malouda sé ekki alvarlega
meiddur og hann reiknar með því
að Malouda leiki gegn Liverpool
um helgina. Lampard gæti einnig
snúið til baka í þeim leik.
„Það eru margir erfiðir leik-
ir fram undan hjá okkur og ég
vil ekki taka neina áhættu með
Malouda,“ sagði Ancelotti en
Malouda hefur leikið eins og eng-
ill í vetur fyrir Chelsea.
Arsenal á erfitt verkefni fyrir
höndum er það sækir Shaktar Don-
etsk heim í Úkraínu. Ekki bætir
úr skák að Cesc Fabregas getur
ekki spilað leikinn vegna meiðsla.
Arsene Wenger, stjóri Arsenal,
er líkur Ancelotti að því leyti að
hann vill ekki taka áhættu með
Fabregas.
„Þó svo hann spili ekki þenn-
an leik eru góðar líkur á því að
hann geti spilað gegn Newcastle á
sunnudaginn,“ sagði Wenger.
Fabregas er ekki eini leikmað-
ur Arsenal sem glímir við meiðsli
þessa dagana því Alex Song,
Andrei Arshavin og Denilson eru
allir tæpir fyrir leikinn. - hbg
Leikir kvöldsins
E-riðill:
CFR Cluj - FC Bayern
FC Basel - AS Roma
F-riðill:
Chelsea - Spartak Moskva Sport 4
MSK Zilina - Marseille
G-riðill:
AC Milan - Real Madrid Sport + HD
Auxerre - Ajax
H-riðill:
Partizan Belgrad - Braga
Shaktar Donetsk - Arsenal Sport 3
Fjórða umferð Meistaradeildar Evrópu klárast í kvöld með átta leikjum:
Milan er betra en Real Madrid
AFTUR Á ÍTALÍU José Mourinho mun stýra liði í fyrsta skipti á San Siro í kvöld síðan
hann fór frá Inter. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
Á siminn.is sérðu hvort þitt heimili hefur aðgang að Sjónvarpi Símans.
Til að ná Sjónvarpi Símans þarf að hafa ADSL tengingu hjá Símanum.
Mesta úrval landsins
heima í stofu
Það er
Fyrir aðeins 790 kr. á mánuði færðu opnu, íslensku stöðvarnar og þrjár
erlendar. Einnig færðu SkjáBíó þar sem þú getur leigt þér þúsundir bíómynda
og auk þess séð sjónvarpsþætti og úrval efnis á 0 kr.
Fáðu þér Sjónvarp Símans í 800 7000, siminn.is eða í næstu verslun.
Sjónvarp Símans
Sími
Netið
Sjónvarp
Bíldshöfða - Sími 585 7220 - OPIÐ ALLA DAGA
12 ga – fyrir 25 skot.
Verð: 3.490
Riffilskot. Verð: 1.090 – 50 stk.
FÓTBOLTI Það hefur verið þrálát-
ur orðrómur um að Chelsea ætl-
aði sér að kaupa framherjann
Fernando Torres frá Liver-
pool í janúar.
Carlo Ancelotti, stjóri
Chelsea, hefur nú sleg-
ið á sögusagnirnar með
því að lýsa því yfir að
hann ætli sér ekki að
kaupa Torres. Það sem
meira er þá ætlar Ancelotti
ekki að láta til sín taka á leik-
mannamarkaðnum í janúar.
„Ég hef alltaf sagt að Torres
sé ekki í framtíðarplönum
okkar því við höfum mikla
trú á ungu strákunum
sem eru fyrir hjá félag-
inu,“ sagði Ancelotti við fjöl-
miðla í gær.
„Svo erum við með frá-
bæra framherja í Didier
Drogba, Nicolas Anelka
og Salomon Kalou. Fyrir
utan bíða strákar eins og
Daniel Sturridge og Gael
Kakuta. Þess vegna þurf-
um við ekki framherja.“
Ancelotti segir að þess
utan sé hópur liðsins nógu
stór til þess að berjast um
bikara á öllum vígstöðvum.
- hbg
Chelsea ætlar ekki að versla er markaðurinn opnar:
Chelsea mun ekki kaupa
Torres frá Liverpool
EKKI TIL CHELSEA Torres mun
ekki spila í bláum búningi
Chelsea. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES