19. júní


19. júní - 19.06.1975, Page 8

19. júní - 19.06.1975, Page 8
t m •Jafiilauiiaráft kafli úr iitvarpsrrindi, srm i'lutt var 22. apríI 1975 eitir Sólveijfu Olafsdóttiir Með lögum nr. 60/1961 um launajöfnuð kvenna og karla, var mikilsverðum áfanga náð í íslenzkri laga- setningu á grundvelli jafnlaunasamþykktarinnar frá 1951. Ekki var þó að öllu leyti gengið tryggilega frá hnútum í þeim lögum. Ennfremur varð löng bið á þvi, að samþykktin frá 1958, sem ísland fullgilti 1964, fengi lagastoð. Á því varð veruleg bót ráðin með lögum nr. 37/1973 um Jafnlaunaráð. Voru þau lög samþykkt á grundvelli þingmannafrumvarps frá Svövu Jakobsdóttur. I 1. grein laganna segir, að kon- um og körlum skuli greidd jöfn laun fyrir jafnverð- mæt og að öðru leyti sambærileg störf. I lögunum frá 1961 var hins vegar kveðið á um launajöfnuð kvenna og karla fyrir sömu störf. Það er ljóst, að í fjölmörgum starfsgreinum vinna konur eingöngu, og eru því ekki við sömu störf og karlmenn, en 'hins vegar geta þau verið jafnverðmæt. Hér er þvi um að ræða fyllri staðfestingu á jafnlaunasamþykktinni, sem gerir ráð fyrir starfsmati við ákvörðun launa. 2. grein laganna um Jafnlaunaráð á rætur að rekja beint til Alþjóðasamþykktarinnar frá 1958 en í grein- inni segir, að atvinnurekendum sé óheimilt að mis- muna starfsfólki eftir kynferði. Gildi það ekki aðeins um launagreiðslur, heldur um hvers konar greinar- mun, útilokun eða forréttindi vegna kynferðis. Enn- fremur er óheimilt að skerða jafnrétti kynjanna til atvinnuráðningar og skipunar í starf, hlunninda, vinnuskilyrða og hækkunar í starfi. 3. greinin fjallar svo um að setja skuli á stofn Jafnlaunaráð, sem hafi aðsetur í Reykjavík, en starfs- svið þess er landið allt. Ráðið skal skipað 5 mönnum til þriggja ára í senn. Hæstiréttur skipar formann, sem skal hafa embættispróf í lögum, félagsmálaráð- herra skipar einn mann að fengnum tillögum Náms- brautar í alm. þjóðfélagsfræðum við Háskóla Islands, og síðan skipa Bandalag starfsmanna rikis og bæja, Alþýðusamband Islands og Vinnuveitendasamband íslands einn mann hvert. Verkefni Jafnlaunaráðs er að vera ráðgefandi gagnvart stjórnvöldum, stofnunum og félögum í mál- eínum er varða jafnrétti með konum og körlum í kjaramálum og við ráðningu eða skipun til starfs. Það á að fylgjast með þjóðfélagsþróuninni sem varða þessi mál og gera tillögur til breytinga til samræmis við tilgang laganna. Jafnlaunaráði ber að stuðla að góðri samvinnu við samtök atvinnurekenda og launa- fólks og aðra þá, sem kjaramál snerta, svo að mark- miði laganna verði náð með sem eðlilegustum hætti. Ráðið skal taka til rannsóknar af sjálfsdáðum hver brögð kunna að vera að misrétti í kjaramálum að því leyti er lög þessi varðar, og ber opinberum stofnunum og félagssamtökum að veita hvers konar upplýsingar í þvi sambandi. Siðast en ekki sízt skal Jafnlaunaráð taka við ábendingum um brot á ákvæðum laga þess- ara og rannsaka málið af því tilefni og senda að rannsókn Jokinni málsskjöl til þeirra aðila, sem mál- ið snertir. Þetta ákvæði er mjög mikilvægt, þvi að hér getur hver sem er, einstaklingur jafnt sem félag, gefið slíkar ábendingar og fengið málið rannsakað. Telji Jafnlaunaráð að starfskjör tiltekins starfsmanns fari i bága við fyrirmæli laganna, beinir það tilmæl- um um breytingar til viðkomandi atvinnurekanda. Fallist atvinnurekandinn ekki á tilmæli ráðsins er því heimilt í samráði við starfsmanninn, að höfða mál í umboði hans fyrir almennum dómstólum, til að freista þess að hann nái rétti sínum. 6 19. júní

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.