19. júní


19. júní - 19.06.1975, Side 28

19. júní - 19.06.1975, Side 28
ustu svo og við framleiðslustörfin. En sterkust voru þau rök fyrir aðgerðum í skattamálum hjóna að ekki væri sæmandi fyrir löggjafann að vinna gegn hjónaböndum. Svo var það loks árið 1956 að þáverandi fjár- málaráðherra, Eysteinn Jónsson, skipaði nefnd til að „athuga lög um skattamál hjóna og gera tillögur um þau mál.“ 1 nefndinni voru Karl Kristjánsson þáverandi alþingismaður, formaður, Adda Bára Sig- fúsdóttir, Guðmundur Þorláksson, Magnús Guðjóns- son og Valborg Bentsdóttir. Við konumar í nefndinni komum auðvitað brynj- aðar rökum og útreikningum, sem KBFf hafði aflað ámm saman, um það hvemig hjón væm leikin af skattalögum, ef konan hefði sértekjur. Okkar ágætu samstarfsmenn kynntu sér málið rækilega og vom því sammála að ekki væri rétt að íþyngja hjónum umfram þá sem ekki hirtu um að gifta sig og fengju skattgjald sem einstaklingar. Með tilliti til þágildandi slíattalaga komst nefnd- in að þeirri niðurstöðu, sem byggðist á grandgæfileg- um útreikningum, að ef tekjur konu væru helming- aðai og helmingur lagður við skattatekjur eigin- mannsins myndu þau samanlagt ekki bera hærri skattabyrðar gift en ógift. Með þessu vom einungis jöfnuð metin milli hjóna og tveggja einstaklinga. En þessi heimili fengu ekki þau friSindi, sem giltu um önnur heimili, sem höfÖu skattfrjálsa vinnu konu heima. f þessari lagabreytingu var gert ráð fyrir, að ef hjón vildu telja fram hvort i sínu lagi væri það 'heim- ilt, og áttu þau að skattleggjast sem tveir einstakling- ar. Auk þess var lögleiddur sérstakur frádráttur vegna heimila sem einstætt foreldri stæði fyrir. Sá frádráttur var miðaður við persónufrádrátt, sem er breytilegur. En misvitur nefnd, sem athugaði skatta- lögin tveim ámm síðar breytti því ákvæði í ákveðna fjárhæð, sem svo fylgdi ekki eftir vaxandi dýrtið. Svo sú réttarbót var stórskert strax tveim ámm eftir að lögin tóku gildi. Ennfremur á sú sama endurskoð- unarnefnd sök á þvi, að hjón gátu ekki, án skaða, talið fram sitt í hvom lagi, því persónufrádráttur hjóna var gerður lægri en tveggja einstaklinga. Síðan þessi lög voru samin hafa allmiklar breyting- ar orðið í þjóðfélaginu. Góðu heilli hefur það aukist, að konur fengju sæmileg laun fyrir störf sín og hálaunakonur em farnar að fyrirfinnast, þó enn séu karlmenn fleiri, sem við það borð sitja. Og þegar frá líður og gleymt er það ófremdarástand, sem ríkti í skattamálum meðan hægt var að benda á að lög- gjafinn virtist andvígur hjónaböndum, fara að koma fram raddir með öfundartón. 50% frádrátturinn er fríðindi, sem þær giftar konur einar hafa sem vinna úti. Hvers vegna gilti þetta ekki um allar konur? En mér er spurn. Er hægt að hafa meiri fríðindi en að hafa alla vinnu sína skattfrjálsa? Ef 50% reglan er orðin of hagstæð með breyttum skattstiga og bættum launakjörum kvenna er hægt að stinga upp á því að meta hvers virði hin skatt- frjálsa vinna er. Ekki til að skattleggja hana heldur til að hafa viðmiðun til að meta hvers heimili missa, sem ekki hafa konu, sem vinnur heima. Við getum varla farið lægra í mati en að miða við aðkeypta húshjálp. T. d. hefur Reykjavíkurborg konur í slíkri vinnu til að annast aldraða og sjúka. Væri þá komið nær jöfnuði en að hafa vissan hundraðshluta af tekj- um skattfrjálsan. Mælti þá ætla öllum heimilum skattfrjálst jafnvirði vinnu konu á heimili, ef um fulla vinnu væri að ræða, og hlutfallslega, ef ekki væri unnið heilan dag. Og svo kæmu til greina ýmis afbrigði, sem auðvelt ætti að vera að leysa t. d. ef kona er óvinnufær ætti heimilið að sjálfsögðu að njóta sömu skattfríðinda. Flogið hefur fyrir, bæði fyrr og síðar sú furðu- lega hugmynd, að það eitt væri réttlátt gagnvart heimilum að leggja saman tekjur hjóna, deila með tveimur og láta hjón greiða skatt af 'hálfu hvort. Við getum til gamans og vonandi gagns lífca reikn- að eitt slíkt dæmi. Við getum kallað vinnutekjm- húsföður X, vinnutekjur konu utan heimilis Y og vinnutekjur heimakonu O. Dæmin yrðu þá X + O X + Y 2 Og svo setjum við tölur inn í hin tilteknu dæmi. Við getum til gamans látið húsbóndann hafa jafn- virði ráðherralauna eins og þau eru reiknuð nú í april. Ég tel fullvíst að allmargir karlmenn hafi nú- orðin ámóta laun. Til að hafa konuna sæmilega laun- aða gætum við tekið laun alþingismanns. Að visu er það sjaldgæfara að konur hafi það há laun, en þess munu þó dæmi, og konur eru til á þingi þó fáar séu. Heimakonan hefur engar framtalsskyldar tekjur svo þar kæmi ekkert til viðbótar. Til hagræðis nota ég þann skattstiga sem boðaður er i frumvarpi tíl laga um efnahagsmál og læt brúttótekjur gilda sem hreinar tekjur. Mér skilst að 50% reglan væri þá úr sögunni og miða ekki við hana. tJt úr dæmunum fékk ég það að í fyrra dæminu 26 19. JÚNÍ

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.