19. júní - 19.06.1975, Qupperneq 30
hýsa myndar miðbæinn. Argentínumenn nefna hana
perlu Atlantshafsins, og er hún af mörgum talin feg-
ursta borg Suður-Ameríku. Þar er spilavíti, sem
Argentinumenn segja stærst í heimi, og dregur
það mjög að sér fólk, skreppa menn gjaman frá
Buenos Aires til Mar del Plata um 'helgar til að
spila í rúllettunni, en flestir ganga slyppir frá þeim
leik. Það er til marks um spilafíkn manna, að um
páskana 1974 var þriggja daga velta sem svarar
180 milljónum króna á núverandi gengi, af því komu
um 25% í hlut stofnunarinnar, sem rekin er af rík-
inu, og er ágóðanum varið til reksturs sjúkrahúsa.
Það er sérkennilegt við borgina, að þar liggja allar
götur hornrétt hver á aðra og er alls staðar jafnlangt
milli götuhoma, 100 metrar. Slíkt skipulag er algengt
í Argentínu, einkum í nýrri borgum og bæjum, og
hefur það til síns ágætis, að auðratað er fyrir ókunn-
uga.
Vel gekk að fá húsnæði, við leigðum lítið ein-
býlishús í úthverfi á rólegum stað. Elzti sonurinn
byrjaði skólagöngu i marz 1969, þá orðinn altalandi
á spönsku sem og hinir tveir, vom synimir sýnu
fljótari en foreldrarnir að ná fullkomnu valdi á mál-
inu og ósparir á að leiðrétta vitleysurnar, sem við
létum okkur um munn fara til að byrja með. Böm
byrja sex ára gömul að ganga í skóla, og skólakerfið
er nokkuð gott. Þó finnst útlendingi fullmikil áherzla
lögð á sögu Argentínu, það er byrjað að kenna krökk-
unum sex ára gömlum, hvað þessir gömlu leiðtogar
FAO inenn á ferð á Eldlandi. Höfundnr lengst til vinstri.
28
t
Fiskibátar í liiifn í Mar del I’lata.
þeirra hafi verið fullkomnir og miklar hetjur. I þeim
skóla, sem okkar strákar gengu í, var lögð mikil
áherzla á, að börnin lærðu að vinna sjálfstætt, og
fannst okkur árangurinn ágætur.
Konan var fljót að komast upp á lag með að verzla,
og eftir stuttan tíma vorum við eins og heima hjá
okkur. Mataræði Argentínumanna er nokkuð ein-
hæft, nautakjöt í flesta mata, alltaf nýtt, og græn-
meti og ávextir eftir árstíðum. Síðustu árin hefur
neyzla nautakjöts numið um 90 kg á ibúa á ári, en
á sama tíma eru étin aðeins 3 kg af fiski. Kindakjöt,
svínakjöt og kjúkhngar em einnig á matseðlinum,
en í augum Argentínumanna er nautakjötið það eina,
sem raunverulega getur talizt matur, hitt er svona
til uppfyllingar, og er auðvelt að fallast á þá kenn-
ingu, eftir að hafa kynnzt þvi.
Veðurfar við Atlantshafsströnd Argentínu norðan-
verða er nokkuð svipað því, sem við eigum að venjast
hér suðvestanlands, mjög umhleypingasamt, en að
visu hlýrra. í Mar del Plata er meðalhiti í janúar,
sem er heitastur, 21 stig á Celsíus, en svalastur í júlí
með tæp 8 stig. Þá fer hiti oft niður fyrir frostmark
um nætur. Raki er mikill í lofti, er þvi oft napurt,
og kvefsótt herjar mjög á fólk. Einstaka sinnum gerir
haglél, helzt þegar líða tekur á vorið. Gera þau mik-
inn usla á gróðri og skemma jafnvel bíla. Eitt slíkt
gerði í desember 1971, þá var talið að um 5000 bílar
liefðu skemmzt í borginni, þar af voru tveir þeirra
fjögurra, sem við FAO-menn höfðum til umráða.
19. JÚNÍ