19. júní - 19.06.1975, Page 46
ófullnægjandi aðbúnaði og harkalegum þvingunar-
aðgerðum, sem beitt var til að aga fangana.
Hér á undan hefur verið birtur inngangur og fjög-
ur nákvæm dæmi, sem fylgja skrá, sem Amnestry
Intemational gaf út í marz 1975, yfir konur, sem
fangelsaðar hafa verið vegna skoðanna sinna í ýms-
um löndum. En skipting kvennanna á milli landa er
þessi: Bangladesh, þrjár konur; Brasilía, þrettán kon-
ur; Bulgaría, tvær konur; Cameroun, ein kona; Chad,
ein kona; Chile, þrettán konur; Cuba, átta konur;
Egyptaland, ellefu konur; Þýzka Alþýðulýðveldið,
tultugu og fimm konur; Haiti, þrjár konur; Indó-
nesia, sextíu konur; Iran, tvær konur; Malaysía,
þrjár konur; Malí, ein kona; Paraguay, fjórar konur;
Rhodesía, tvær konur; Singapore, tvær konur; Suður-
Afrika, ellefu konur; Spánn, þrjátíu og átta konur;
Umguay, sex konur; Tanzania, ein kona; Stóra-
Bretland, sjö konur; Sovétríkin, þrettán konur; Norð-
ur-Vietnam, ein kona; Suður-Vietnam, tuttugu kon-
ur.
Lauslega þýtt
Sigriður A. Valdimarsdóttir
Framhald af bls. 37
KRFÍ leggur áherslu á þá meginstefnu félagsins að í öllum
lögum. reglum og framkvæmd þeirra sé jafnrétti í heiðri haft,
svo takast megi að útrýma hverskonar misrétti einstaklinga.
Ályktun frá janúarftindi 1975
Fyrsti fundur Kvenréttindafélags Islands á alþjóðlega kvenna-
árinu 1975 beinir þeirri áskorun til islenskra kvenna og karla
að gera nú verulegt átak í baráttunni gegn hverskonar launa-
misrétti.
Að vinna að þvj að konur verði virkari félagar en áður i
starfsmannafélögum með beinni aðild að stjómum félaganna og
með þátttöku í samningagerðum. Ennfremur að konur séu ekki
sniðgengnar i stjórnskipaðar nefndir og ráð.
KRFl leggur áherslu á, að þjóðfélagið taki fullt tillit til
móðurstarfsins, með þvi meðal annars að konur í öllum at-
vinugreinum fái 3ja mánaða fæðingarorlof.
Að dvalarkostnaður kvenna á fæðingarheimilum við bams-
burð verði greiddur á sama hátt og venjuleg sjúkrahúsdvöl svo
konur fái fæðingarstyrkinn óskertan eins og upphaflega var
til ætlast.
Að farið verði að greiða öðru foreldri fyrir að vera heima
fyrstu ér bamsins til að annast það.
FæSingarorlofiS
Frumvarp Ragnhildar Helgadóttur, alþingismanns, um fæð-
ingarorlof kvenna, var samþykkt á nýloknu Alþingi og öðlast
gildi þ. 1. janúar 1976. Skulu þær njóta atvinnuleysisbóta i 90
daga samfleytt.
íslcnzk kona vclstjóri
Guðný Lára Petersen, Reykjavik 18 ára gömul, tók ágætispróf
við fyrsta stig Vélskóla Islands, nú í vor. Með því hefur hún
lilotið réttindi, sem vélstjóri á bát með vél undir 500 hestöflum.
Nám við Vélskóla Islands tekur 4 ár. 19. júní óskar Guðnýju
Láru alls góðs við námið, sem eftir er.
MaUorca
SÓL
SJÓR
SANDUR
FEROASKRIFSTOFAN
URVALMJjr
Emskipafélagshúsinu.simi 26900
44
19. JÚNÍ