19. júní - 19.06.1979, Qupperneq 22
Tvær sögur
af
Stef án i
Þórunn Guðrún H.
Sigurðardóttir. Sederholm.
Tvær sögur af Stefáni nefnist
lítil bók sem Bókaútgáfan Örn og
Örlygur gaf út í vor. Þar segir frá
tveimur Stefánum, sem lífið fer
ólíkum höndum um. Höfundur
bókarinnar er Guðrún Helga
Sederholm og er þetta hennar
fyrsta bók. Við fengum leyfi til að
birta niðurlagskaflana í frásögn-
unum af Stefáni I og Stefáni II og
ræddum stuttlega við höfundinn.
Guðrún Helga er yfirkennari í
Breiðholtsskóla en áður kenndi
hún m.a. í skóla í Kaupmanna-
höfn.
„Báðir Stefánarnir mínir hafa
oft orðið á vegi mínum. Þeir til-
heyra fjölmennum hópum barna,
sem flestir kennarar kannast við.
Astæðan fyrir því að ég skrifaði
þessa bók á fyrst og fremst rætur að
rekja til reynslu minnar sem kenn-
ara. Börnin sem ég kenndi í Kaup-
mannahöfn bjuggu við mjög erfið-
ar aðstæður og þótt ástandið sé
hvergi svo slæmt í Breiðholtsskól-
unum, kvíði ég þeirri þróun sem
þar á sér stað. Kveikjan að bókinni
er það réttindaleysi og þær
hörmulegu aðstæður sem allt of
mörg börn vaxa upp í.“
„Átt þú börn?“
„Nei, mér hefur ekki fundist ég
hafa nægan tima til þess. Það er
svo mikið til af börnum sem lítið er
sinnt um. Mér finnst það gífurleg
ábyrgð að eiga og ala upp börn, og
mér finnst fólk ekki gera sér nægi-
lega vel grein fyrir því. Ástæðurnar
fyrir því að fólk eignast börn eru
oft óljósar og jafnvel eigingjarnar.
Og mikið af vandamálunum skap-
ast vegna þess að fólk hugsar meira
um að skapa börnunum efnahags-
legt viðurværi, en tilfinningalegt.“
20
„Hefðirðu skrifað þessa bók, ef
ekki væri barnaár?“
,Já, ég var byrjuð á henni löngu
fyrr. Og ég vona líka að þetta verði
ekki mín síðasta bók,“ sagði Guð-
rún.
Með þessu stutta spjalli birtum
við, auk kaflanna úr bókinni,
krossaprófið af baksíðu bók-
arinnar. Líklega rekur einhvern í
rogastanz yfir þessu skrýtna prófi.
Hvaða svar skyldu allir hinir ný-
bökuðu foreldrar gefa? Því nýbak-
aðir foreldrar eru óvanalega
margir á Islandi um þessar
mundir. Eftir margra ára kyrr-
stöðu og jafnvel afturför í fólks-
fjölgunarmálum Islendinga, virð-
ist barnaárið ætla að snúa þróun-
inni við, þvi þótt 1979 sé hvergi á
enda runnið, leynir sér ekki á
tölum, að nú er þjóöinni farið að
fjölga aftur. Einhver sagði að það
væri vegna þess að nú er barnaár,
annar sagði að það væri vegna
batnandi hags og sá þriðji að fólk