19. júní


19. júní - 19.06.1979, Síða 31

19. júní - 19.06.1979, Síða 31
I eftirfarandi grein mun ég leitast við að draga fram þá mynd af því umhverfi sem hin islenska fjölskylda lifir í. Til afmörkunar þessa hugtaks mun ég skorða efnið við fjölskyldulif í borgarsamfélagi og minnast á hina helstu áhrifa- valda sem mótað hafa núverandi ástand. Ég tek það fram að margt hér er alhæfing og hlutlægt mat mitt og ber ekki að líta á þetta sem visindalegt innlegg í umræðu um umhverfismál. I gegnum aldirnar hefur mannlíf hér á norðurhveli jarðar mótast af Itarðindum, almennri fátækt og landfræðilegri einangrun frá hinum stóra umheimi. Stöðnunar eða mjög hægfara þróunar bændaþjóðfélagsins gætti allt fram á þessa öld. Um og eftir aldamót fór hjól atburðanna að snúast örar og er nú, er hér er komið sögu farið að snúast nokkuð ört. Allar þær breytingar sem við höfum tekið upp hafa fengið tiltölulega stuttan aölögunartíma og hafa þær ómelt- ar orðið að víkja fyrir öðrum breytingum. Sumar hverjar hafa ílengst og dagað uppi sem nátttröll i breyttum aðstæðum. Hraðalög- mál lífsins er nú annað en áður var. Istöðuleysis almennings vegna hraðans gætir og glundroði í mörkun stefnu á okkar helstu málum er afleiðing hans. Þegar litið er á þessa þróun i ljósi sög- unnar þá skyldi engan furða að við getum ekki líkt okkur við ýmiss nágrannalönd okkar, þar sem við höfum stiklað yfir mörg þróunar- stig sem aðrar þjóðir hafa stigið á mörgum öldum. Þéttbýlismynd- unar fór fyrst að gæta eftir síðustu aldamót og hin fyrsta borgarakyn- slóð er senn að kveðja. Borgar- mennings, ef svo mætti að orði komast, er að slíta sínum fyrstu barnaskóm. I taumlausu kapphlaupi um hin veraldlegu gæði reynum við að fsera okkur í nyt tækniþekkingu annarra þjóða án þess þó að grundvallaratriðin séu gjörkönn- uð. Töluvert skortir á að við getum beitt fullkomnum tækniútbúnaði jDannig að um verulega vinnuhag- ræðingu sé að ræða. Markviss vinnubrögð eru því miður ekki þau aðalsmerki sem við getum státað af. Niðurstöðurnar láta heldur ekki á sér standa og er hægt að lesa þær út úr efnahagsmálum þjóðarinnar. Hvert sem litið er inn í hina ýmsu atvinnuvegi getur að lita á|3ekk skipulagsvinnubrögð. Við virð- umst eyða litlu til rannsóknar- starfa í sambandi við vinnuhag- ræðingu. Að hvaða framleiðslu við eigum að vinna og síðast en ekki síst að hvaða markmiði við erum að stefna? Kaupmáttur almenn- ings hefurekki aukist í hlutfalli við fjölda vinnutíma og jiurfa allflest- ar fjölskyldur að vinna töluverða aukavinnu til að halda uppi jDeim lífsstíl sem þær vilja hafa. Skipulag borga og bæja hefur auðkennst hér að undanförnu af þeirri stefnu að skilja frábrugðnar athafnir í sundur og ætla þeim ákveðin svæði. Þessa skipulags- stefnu tókum við eins og margt annað ómelt að láni frá öðrum Jojóðum og útfærðum í íslenskt landslag. Áhersla var lögð á að at- hafna- og iðnaðarsvæði væru sem lengst frá íbúðarsvæðunum svo óþægindi af umhverfismengun hlytist þar ekki af. Verslunar- og þjónustumiðstöðvar fengu sinn stað af sömu ástæðum. Án þess að almenningur hafi áttað sig á, hafa verið reist einhæf byggðarsvæði sem oftast eru líflaus og andlaus. Við staðarval nýrra byggðar- svæða hefur „hreppapólitík“ ráðið mjög ferðinni og lítt verið hugað að Jijóðhagslega hagkvæmari upp- byggingu sem kæmi íbúunum til góða. Þannig er til dæmis þétt- býlissvæði suðurlandsins, um- hverfis höfuðborgina ömurleg af- leiðing hagræðingarleysis. Af- leiðingin er stóraukið umferðar- kerfi sem bæði er dýrt og tímafrekt. Þetta dregur úr vinnuafköstum og saxar á þann tíma sem annars mætti verja til venjulegs fjöl- skyldulífs. í stað þess að stytta vegalengdir höfum við verið að dreifa byggðinni og tekist að mynda staka smákjarna sem samanstanda oft af einhæfri íbúðarbyggð. I gerð híbýla, sem byggð hafa verið á síðustu áratugum er varla um neina stökkbreytingu að ræða, nema hvað við leyfum okkur mun stærra húsnæði með bættari kjör- um. íslendingar eyða mun meiri tima innandyra en suðlægari Jojóðir og leggja þess vegna meira upp úr góðu húsnæði. Er þetta rökrétt afleiðing þeirrar veðráttu sem við búum við. Breiðholtin sem byggð hafa verið upp í Reykjavík á síðastliðnum tíu árum eru ekki orsök fólksfjölgunar heldur mun fremur orsök aukinna þarfa á hús- rými. Við þurfum í dag næstum |)ví helmingi fleiri fermetra hús- næðis en fyrir tveim áratugum. Oll þessi viðbótar aukning hefur hins vegar ekki aukið hagræðingu húsnæðisins verulega. í grund- vallaratriðum ríkir sami hugs- unarháttur og í skipulagsmálum að við aðgreinum vel mismunandi athafnir fjölskyldulífsins með sér- stökum herbergjum. Að koma sér upp eigin húsnæði er hér á landi brýn nauðsyn þar sem réttur leigj- enda er nánast enginn, en jafn- framt mun erfiðara en hjá öðrum þjóðum, J)ar sem lánafyrirgreiðslur eru hér mun takmarkaðri. Margir hella sér út í húsagerð án þess að gruna út í hvaða ævintýri þeir eru að fara. Með auknu vinnuálagi fjölskyldufyrirvinnunnar, sem í flestum tilfellum eru bæði foreldr- in, tekst þetta þó að lokum en með ærnum fórnum á kostnað fjöl- skyldulífsins. Það skal tekið fram að hér er ekki verið að hallmæla öllu amstri og öllum athöfnum sem menn leggja á sig, heldur er verið að 29

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.