19. júní - 19.06.1979, Page 32
A vordegi
draga fram þær hugleiðingar að ef
við viljum styrkja fjölskyldubönd-
in verðum við að hagræða gjörðum
okkar þannig að við höfum tíma til
að sinna þeim skyldum sem fjöl-
skyldan útheimtir. Ef við viljum
aðhafast margt þjóðfélaginu til
góða, verðum við að velja þær
leiðir sem útiloka ekki eðlilegt fjöl-
skyldulíf. Fjölskyldan er jú vaxtar-
broddur samfélagsins og uppeldis-
málum á ekki að sinna sem hverj-
urh öðrum tómstundum. Ef við
ætlum börnum okkar það hlut-
skipti að leysa vandamál framtíð-
arinnar þá verðum við að vanda
vel til uppeldismála. Sú stefna
uppeldisfræðinga að lýðræðislegt
og jákvætt uppeldi leiði til betri
árangurs en ofverndað og strangt
þá ber að hafa það hugfast að
meira umburðarlyndi og meiri
tima verður að gefa sér í það. Það
er ekki nóg að láta götuna og af-
skiptaleysið ráða ferðinni.
Það vandamál sem háþróaðar
tækniþjóðir eiga við að glíma í dag
eru tómstundir fólks almennt.
Vinnutíminn er óðum að styttast
og þarfir fólks til tómstundariðk-
ana aukast sífellt. Þessi mál eru nú
mikilvægur þáttur í skipulagi
borga og bæja.
Hér á íslandi er brýn þörf á að
gefa þessum málum mun meiri
gaum en áður og leggja megin-
áherslu á þá þætti og athafnir þar
sem öll fjölskyldan getur tekið þátt í.
Hver fjölskyldumeðlimur hefur þörf
fyrir afþreyingu og leitar að útrás
eftir því sem hugur stendur til.
Fjölskyldumeðlimir sem eyða frí-
tímum sínum ævinlega hver í sinu
horni stuðla ekki að tryggari fjöl-
skylduböndum. Okkur ber að
stefna að því að koma upp meiri
fjölbreytni í tómstundariðkunum
fyrir alla fjölskylduna í íslensku
landslagi og sem hentar í íslenskri
veðráttu. Við þurfum að skapa
okkur þá aðstöðu og það umhverfi
sem gerir okkur kleift að lifa með
fjölskyldum okkar og annast jafn-
framt þjóðfélagslegar skyldur.
í sumarbústaðnum
Við lögðum af stað kl. 10 einn
fallegan sunnudagsmorgunn. Við
sóttum ömmu og afa síðan lögðum
við af stað yfir heiðina við keyrðum
framhjá Hveragerði beygðum inn
hjá Ingólfsfjalli og keyrðum fram-
hjá Þrastalundi og þegar við kom-
um uppí sumarbústað fórum við
að laga til í garðinum týna lauf og
svoleiðis. Pabbi hjálpaði afa að
byggja sólskýli og þegar við vorum
búin lögðum við af stað heim og
stoppuðum í Þrastalundi keyrðum
í Hveragerði og keyptum tómata
og agúrkur síðan yfir heiðina og við
keyrðum afa og ömmu heim og
síðan fórum við heim og horfðum á
barnatímann. Hundurinn minn og
kötturinn minn voru fegin að sjá
okkur því þau höfðu verið ein allan
daginn.
Edda Ragna Davíðsdóttir
9 ára.
1.
Einu sinni var ég uppi í rúminu
mínu og var að velta því fyrir mér
hvaða bíltegund færi framhjá, kom
mamma og sagði við mig: farðu að
klæða þig við ötlum að kaupa ís.
2.
Eitt sinn fór ég á „Esjuberg“ og
fékk mér bakka, hníf og gaffal. Svo
pantaði ég minn vanalega skamt
hamborgara og franskar.
Ólafur Hrólfur Gestsson
9 ára.
Ég hef lengi íhugað það hvernig
ég er kominn hingað í þessa fjöl-
skyldu og sérstaklega í seinni tíð.
Ég velti því fyrir mér af hverju litla
systir mín þurfti að fæðast því fyrir
þann tíma hafði ég verið einka-
barn. Síðan hún fæddist fyrir
rúmum 4 árum, þá grætur hún og
lætur man aldrei í friði. Á morgn-
ana fer ég i skólan og líka oft eftir
hádegi en þar sem sumarfrí er
byrjað ætti ég að vikja að öðru. Ég
get engan veginn skilið afhverju
við megum ekki hafa hunda og
ketti í húsinu. Það er algjörlega
bannað af hálfu Pabba og
Mömmu Afa og Ömmu. Fyrir
þremur árum fluttum við til ís-
lands frá Þýskalandi. Þar var ekki
bannað að hafa húsdýr og lifðum
við í hálfgerðum dýragarði. Ég
mun bráðlega heimsækja þær
slóðir aftur.
Ólafur Kristinsson 11 ára.
Pabbi seigðu skrítna sögu
Pabbi var búinn að seia margar
sögur
þegar kom ein findin og pabbi
hætti þá
sagði litlasstir viltu lesa meir
þá seir pabbi eina í viðbót
7 ára barn úr Ævingaskólanum.
30