19. júní - 19.06.1979, Page 43
Hlutir hafa aldrei átt neinn
alvöru sess í minni sál, kannski
vegna þess að mig hefur aldrei
skort neitt í þeim efnum, ég veit
það ekki. Ég nýt fallegra hluta,
nytsamra hluta, en hvort ég eign-
ast þá er mér ekki kappsmá.
Ég „puntaði“ ntig um daginn,
og fannst ég vera ofsalega fín og
sæt, og það þótti vinkonu minni
sem ég heimsótti einnig, en hún gat
ekki setið á sér að bæta við: Hvar er
nú maðurinn og flotta einbýlis-
húsið? Hún meinti vel, en mér
fannst eins og henni fyndist að það
vantaði á mig nefið.
Eg verð alltaf jafn döpur, þegar
fólki finnst gifting vera einhver
ofrávíkjanleg nauðsyn, svona eins
og þak yfir höfuðið. Að líta á karl-
mann eða maka sem „identiet“, að
finnast konan eigi að vera honum
til aðstoðar og þjónustu finnst mér
einhæft. Hjónaband er ekki sjálf-
sagður hlutur fyrir alla, það er þó
ekki þar nteð sagt að það sé
dauðadæmt. Það hljóta þó að vera
til aðrar leiðir, til að búa með fólki
— njóta félagsskapar og stuðnings,
sem við öll þurfum jú. Ekki endi-
lega þessi harði lokaði kjarni, hann
bara hentar ekki öllum. Leiðinlegt
að hús og bílar skuli enn vera
sniðin með það eitt í huga, að ég nú
ekki tali um ýmislegt annað. Við
þrjú fáum t.d. ekki fjölskylduaf-
slátt sem alltaf er verið að auglýsa
a feröum til sólarlanda.
Ég hef ekki búið með manni
síðan síðast og sakna þess ekki. Ég á
góða vini bæði karl- og kvenkyns.
Strákarnir mínir eru bráðhressir og
sleppa alveg við „plastpokagæja“.
Við lítum á okkur sem fjölskyldu.
Að ganga
í gegnum
hjónaskilnað
Að ganga í gegnum hjónaskiln-
að er nokkuð, sem fæsta langar
sennilega, að fenginni reynslu, til
að gera nema einu sinni á ævinni.
Þegar ég lít til baka til þess tíma,
er eiginmaður minn kom til mín
og sagðist vilja skilnað, þá finnst
mér núna, að sú kona, sem tók á
móti þeim tíðindum, sé ekki sú
santa og þetta skrifar. Ég var rúm-
lega þrítug, búin að vera í hjóna-
bandi í tíu ár og átti tvö börn, það
yngra ekki komið af höndum. Svo
ég segi satt og frómt frá, þá fannst
mér ég hreinlega ekki geta lifað
lengur, mér fannst mér hafnað, allt
sem, ég hafði haldið einhvers
rúst. Ég ntan að ég hlustaði á
þennan mann, sem ég hafði elskað
og elskaði, rífa niöur lið fyrir lið allt
það sem ég haföi haldið einhvers
virði og þessi kona, sem hann lýsti
og vildi losna frá var vissulega
bæði óalandi og óferjandi. En ég
kannaðist bara ekkert við hana,
sent mig. Ég fékk að heyra unt öll
framhjáhöldin og óheilindin, sem
þeim fylgja og allt var þetta eigin-
lega mér að kenna. Ég hélt að ég
væri orðin brjáluð. Var ég svona
allt öðruvísi en ég hélt sjálf. Eg
man að ég starði á manninn minn,
sem ég hafði álitið vin minn og ég
hafði trúað fyrir svo mörgu, sem
enginn annar vissi. Þessi vinur
minn var allt í einu orðinn mér
fjandsamlegur og tilveran hrein-
lega hrundi undan fótum mér.
Eftir þetta fyrsta „sjokk“ upp-
hófst hræðilegasta tímabil ævi
minnar. Hann var búinn að hugsa
málið lengi og kominn að niður-
stöðu. Hann ætlaði að fara. Mig
vantaði aðlögunartímann. Ég
hugsaði bara, hvað hefur komið
fyrir, hvað er hægt að gera til að
lækna meinsemdina. Ég komst að
jaeirri niðurstöðu, mér til stórrar
furðu, að framhjáhöldin urðu
aukaatriði, ég hreinlega tapaði öllu
„stolti“, sem kallað er. Allt vék
fyrir Jteirri hugsun einni að bjarga
hjónabandinu. Hann gerði það
fyrir mig að reyna í mánuð, það
var voðalegur tími. Ég ein tauga-
hrúga, ýmist að reyna að jtóknast
honum eða allt fór i háaloft og þá
voru mörg orð sögð, sem betur
hefðu ósögð verið. Að lokum gát-
unt við þó talað saman eins og tvær
vitibornar manneskjur og ákváð-
um að hann færi í herbergi úti í
bæ.
Þegar hann var farinn hófst nýtt
tímabil, það varð náttúrulega að
skýra málið fyrir eldra barninu. Ég
neyddi sjálfa mig til að segja:
„pabbi jjinn er sá sami og áður
gagnvart þér hvað sem öðru líður,“
Jtó mig langaði mest til að segja:
„pabbi þinn er bölvuð skepna og
við tölum aldrei við hann framar.“
Því heiftin helltist yfir mig eins og
holskefla og ég varð bitur og sam-
anherpt. Mér fannst oft að ég gæti
drepið hann með köldu blóði. Ég
hafði gefið honum bestu ár ævi
minnar, alið honum tvö börn og
allt það. Hér sat ég svo, einstæð
móðir, atvinnulaus, forsmáð og
hrjáð. Hann átti ekki skilið að lifa,
sem hafði gert mér allt þetta.
Éinhvern veginn tókst mér Jdó að
þrauka fyrsta árið, en það var eng-
41