19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1979, Qupperneq 61

19. júní - 19.06.1979, Qupperneq 61
Fréttir frá Jafnréttisráði Rætt við Bergþóru Sigmundsdóttur Blaðamaður 19. JÚNÍ leit inn á skrifstofu Jafnréttisráðs að Skóla- vörðustíg 12 í Reykjavík og leitaði fregna af starfinu þar. Bergþóra Sigmundsdóttir, þjóðfélagsfræð- ingur, framkvæmdastjóri ráðsins, hefur með höndum daglegan rekstur skrifstofunnar, sem er opin á venjulegum skrifstofutíma. Símaviðtalstími framkvæmda- stjórans er kl. 10— 12 í síma 27420. Bormaður Jafnréttisráðs er Guð- nán Erlendsdóttir, lektor við laga- deild Háskóla Islands. Bergþóra sagði, að daglega bær- ust margvísleg erindi og málaleit- anir til ráðsins og margir kæmu til viðtals. Ljóst væri, aö fólki þætti eftirsóknarvert að hafa slíkan stað að leita til, en flest málefni snertu vinnumarkaðinn að einhverju leyti. Algengt er, að eyðublöð ýmiss konar og skilríki eru send til skrif- stofunnar með þeim athugasemd- um, hvort ráðið ætli ekki að hlutast til um breytingu. Hér er einkum um að ræða form, sem gefur til kynna, að aðeins annað kynið eigi hlut að máli s. s. eins og útfylling- arblað fyrir eitt stéttartalið, þar scm einungis var spurt um afana en ekki hirt um ömmurnar. Fólk er greinilega farið að vakna lil vit- undar um að ekki má mismuna fólki eftir kynferði þess. Einnig er tnjög áberandi hversu fólk gengur eftir því að starfsheiti, sem samið er um i kjarasamningum, séu virt. Siðan gat Bergþóra um nokkur mál, sem eru á döfinni hjá ráðinu og má þar helst nefna: Fundur var haldinn um skóla- mál og jafnrétti þ. 11. mai 1978. Til fundarins var boðið m. a. námsstjórum grunnskólans og þeir skýrðu í stuttu máli frá hverri námsgrein fyrir sig með tilliti til jafnrar stöðu karla og kvenna. Erani kom, að námsefni er i endur- skoðun, m. a. með hliðsjón af j^essu atriði og var upplýst, að t. d. hefði nokkurs misréttis gætt í greinum á borð við stærðfræði. Lokið er end- urskoðun á því námsefni fyrir 1. — 7. bekk og verið að endurskoða fyrir efstu bekkina. Ráðið hefur fengið handrit af námsefni til yfirlestrar, gert ábendingar og þær verið teknar til grcina. Upplýst var, að i tónmennt er ekki gert upp á milli kynjanna, enda gefur námsefnið ekki tilefni til þess. í mynd- og handmennt endurspeglar námsefnið víða mis- munandi og hefðbundna hlut- verkaskiptingu karla og kvenna. Endurskoðun á því efni hófst laust eftir 1970 og hafa verið gerðar til- lögur til breytinga og er talið að 2—4 ár taki að koma þeim breyt- ingum á. Kennarar telja sig mjög afskipta með tima i þessu fagi. Kennaraháskólinn hefur ekki sérstaka endurmenntun, þar sem jafnréttismál eru tekin til umfjöll- unar, en i sögu og þjóðfélagsfræði cru jsessi mál höfð til hliðsjónar. Þess skal getiö, að i Svíþjóð er sér- stakur kennarastóll við tvo háskóla um jafnrétti kynjanna og er hægt að taka alls 40 einingar í þessum fræðum [:>ar. Þann 13. febrúar s. 1. efndi Jafn- réttisráð til fundar með áhuga- mannasamtökum um stöðu jafn- réttismála og störf ráðsins. Þann fund sóttu 25 manns, j). á. m. fulltrúar stjórnmálaflokkanna. Þar kom fram, að frá stofun ráðsins i júlí 1976 og til þess tíma hafa 28 mál verið afgreidd frá ráðinu, ým- ist með sáttum, kærum eða vísað frá, ef athugun leiddi í ljós að þau brjóta ekki i bága við lög nr. 78/ 1976 um jafnrétti kvenna og karla. Ráðið starfar eftir þessum lögum og á að sjá um að þeim sé fram- fylgt. Mál til umfjöllunar hjá Jafnréttisráði nú eru milli 15 og 20. Jafnréttisráð hélt ráðstefnu með aðilum vinnumarkaðarins þ. 18. maí s. 1. og sóttu hana um 100 manns. Þar voru flutt 9 framsögu- erindi og starfshópar fjölluðu siðan um efni þeirra. Niðurstöður ráð- stefnunnar hafa verið kynntar í fjölmiðlum. Dagana 5.—16. júní var uppi sýning í Norræna húsinu. Sýningin kallaðist „Framtíðarumhverfi“ og var um skipulag byggðasvæða með tilliti til jafnrar stöðu karla og kvenna. Hún var byggð á hug- myndum er komu fram í sam- keppni, sem sænska arkitektafélag- ið SAR gekkst fyrir, ásamt 90 þús. manna sveitarfélagi í des. 1977. Jafnréttisráð efndi til kynningar- og umræðufundar um sýninguna 11. júní s. 1. Það mál, scm flestir munu kann- ast við frá Jafnréttisráði, er svo- kallað Sóknarmál, en það er fyrsta og eina málið, sem ráðið hefur hafiö málssókn út af. Samkvæmt 11. gr. laga nr. 78/1976 er Jafnréttisráði heimilt í samráði við hlutaðeig- andi aðila aö höfða mál í umboði hans til viöurkenningar á rétti hans. Ráðiö hefur farið þessa leið í máli, er skotið var til þess frá 59
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.