19. júní - 19.06.1986, Side 4
7Æ Frá rttstjóra Wa
Að þessu sinni höfum við í riínefnd 19.júnísnúið við
blaðinu frá því sem tíðkast hefur og beinum sjónum
okkar fyrst og fremst að karlmönnum. Fram að þessu
hefur umræða um jafnréttismál og stöðu kvenna hér í
blaðinu nœr eingöngu miðast við forsendur kvenna
sjálfra. Nú er hins vegar tímabœrt að staldra við og reyna
að komast að því hver viðhorf karlmanna eru tilþeirra
breytinga sem orðið hafa á þjóðfélaginu síðustu 15 ár
eða svo, breytinga sem beinlínis má rekja til frelsisvakn-
ingar meðal kvenna. Ohœtt er að fullyrða að þœr hafa
umturnað hinu daglega lífi sem lifað var hérá landifram
undir lok 7. áratugarins. Heimilislíf er orðið gjörbreytt,
hugmyndir umfyrirvinnu, um ábyrgðforeldra, umhlut-
verk og samspil kynjanna, um möguleika kvenna og
karla til náms og starfa, allt hefur þetta tekið ótrúlega
stórstígum breytingum á skömmum tíma.
Við konur höfum - að eigin frumkvæði og knúnar af
innri þörf - verið uppteknar af að skilgreina sjálfar
okkur að nýju og reyna að aðlagast breyttum kröfum.
Verið uppteknar af því hvernig hœgt sé að sameina þrí-
þætt hlutverk móður, eiginkonu og fyrirvinnu með öllu
sem því fylgir. En við höfum eiginlega gleymt að spyrja
karlmennina hvað þeim finnst um jafnréttið, hvernig
þeim gengur að laga sig að nýjum tímum, já, nýju karl-
hlutverki, sem hinar nýjuforsendur okkar kvenna í raun
og veru útheimta. Við höfum gleymt að spyrjaþá og ein-
beitt okkur að því sem okkur hefur sýnst réttmœtar
kröfur ogsanngirnismál ogþví verður ekki neitað að við
höfum náð langt á mörgum sviðum. En sannleikurinn er
sá að þótt konur hafi breytt viðhorfum sínum og mark-
miðum í lífinu, eru karlar oft eins og mörgum skrefum
á eftir - með heiðarlegum undantekningum að sjálf-
sögðu.
Af þessum sökum kveður nú víða við nýjan tón í
umrœðunni um jafnrétti kynjanna, bœði vestan hafs og
austan. Á skömmum tíma hefur hún tekið stefnu á
karlmenn, á tilfinningalíf þeirra og upplifun í sam-
skiptum við konur, á viðhorf þeirra til kvenna í nýju
hlutverki og áföðurhlutverkið, svo eitthvað sé nefnt. Eg
held að það sé rétt sem nú er haldið fram að næsti áfangi
jafnréttisbaráttunnar byggist á því að karlar endurmeti
kynhlutverk sittfrá grunni og geri sér grein fyrir að þeir
þurfi líka aðfrelsast. Peirþurfa að karlfrelsast.
Um það fjallar 19.júní í ár.
Jónína Margrét Guðnadóttir.
cr
SENSITIVE
Sensitive kremlínan
er sérstaklega ofnæmisprófuð
fyrir viðkvæma húð.
SENSITIVE
wý&Ycr
I SENSITIVE Jk&Ýct SENSITIVE Gt* i htstonic
R Tagesc«em« . SkmToníc . Tanique
SENSITIVE Naclitaeme rid«is etrnAnaUJxf H*ui 1 . bosond«*s.