19. júní - 19.06.1986, Síða 6
Rett REKIN
JAFNRETTISBARATTA
A AÐ LEIÐA AF SER
BÆÐI KARL- OG KVENFRELSI
segir Þórarinn Eldjám rithöfundur
Þórarinn Eldjárn cr einn fárra karl-
manna sem hei'ur lítið sem ekkert
tekið þátt í hinu hefðbundna atvinnu-
lífi, þess í stað er hann eigin vinnuveit-
andi eins og tíðkast meðal rithöfunda.
Vinnustaður hans er nú sem stendur
heima í kjallara hússins á Asvallagöt-
unni þar sem hann býr ásamt konu
sinni og þremur sonum. Fjórði sonur-
inn, sá næstelsti, er þroskaheftur og
dvelst á Kópavogshæli. Þórarinn er til-
tölulega nýbúinn að koma sér fyrir
þarna, en áður var hann með vinnu-
herbergi út í bæ, og gekk til vinnu
sinnar eins og aðrir, en vinnutíminn að
vísu mun sveigjanlegri. Auk ritstarfa
hefur Þórarinn jöfnum höndum tekið
þátt í uppeldi sona sinna, segist alltaf
vera tilbúinn með mat handa þeim í
hádeginu, þegar móðir þeirra er að
vinna, og það sé ákveðið öryggi fyrir
syni hans að vita af því að hann sé svo
til alltaf heima. Strákarnir eru í skóla
fyrir hádegið, sá yngsti í leikskóla, en
Þórarinn segir þau hjón hafa samstarf
við aðra fjölskyldu um barnapössun
eftir hádegið og passa börnin til skipt-
is tvo til þrjá eftirmiödaga í viku.
(Ljósm. Anna Fjóla Gísladóttir)
IEf einhver hefði sagt við mig
þegar ég var 15 ára að eftir H ár
yrði ég farinn að þvo bleyjur og
elda mat hefði mér fundist það
fáránlegt og allískyggilegar
framtíðarhorfur.
6