19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1986, Qupperneq 16

19. júní - 19.06.1986, Qupperneq 16
vitað langbesta hrukkukremið fyrir konu sem komin er um fimmtugt að finna það helst daglega að hún er ennþá kynvera í augum karlmanna. Og nú vil ég taka það skýrt fram að alveg það sama gildir um karlmenn. Þarna er engin kyngreining. Ef full- orðið fólk ætlar að halda sér unglegu, þá er stórt atriði að það finni að það veki athygli hins kynsins sem kynver- ur. Fólk ætti að leggja áherslu á mun- inn og njóta hans. í kennslu minni legg ég áherslu á að sjálfsvitund fólks hverfi ekki fyrir ver- aldlegum hlutum og veraldarvafstri. Fólk þarf að finna sjálft sig, vera sjálfu sér trútt og koma fram eins og það er í raun og veru. Tísku og snyrtingu má nota til þess að létta sér lífið á erfið- leikatímum. Við eigum ekki að snyrta okkur og klæða fyrir aðra, heldur fyrst og fremst fyrir okkur sjálf. Ég veit að starf mitt er stundum álitið hégómi, en ég get ekki undirstrikað það nógu mikið hvað það getur samt verið stór liður í hreinni og beinni sáluhjálp og mér finnst það jákvæðara en tísku- bundna fegurðarímyndin sem við töl- uðum um áðan. Við erum öll falleg. Við erum jafn falleg og við gerum okkur og okkur finnst við vera. Ég gæti vel hugsað mér að vinna á geð- deildum og skyldum stofnunum við að byggja upp sjálfstraust fólks, sem á í andlegum erfiðleikum. Margir hafa þurft að vera á slíkum stofnunum af því að sjálfsmatið var of lágt.“ Aukin karlréttindi - Telur þú að jafnréttisumrœða síð- ustu ára hafi haft áhrif á sjálfsímynd karlmanna? „Mikið hefur verið skrifað um það að amerískum karlmönnum, til dæmis, finnist sér ógnað sem kynver- um. Getuleysi eykst og áhugi á eðli- legu kynlífi minnkar, af því að karl- maðurinn fær ekki að vera sterki aðil- inn gagnvart konunni lengur. Ég tel að ástandið sé nú ekki eins slæmt hér á landi en samt held ég að votti fyrir þessu. Ég er hlynntur kvennabaráttu og allri jafnréttisbaráttu, en það þarf að fara varlega. Við eigum okkur visst kynmynstur. Karlmaðurinn er líkam- lega sterkari, hann verndar þá konu sem hann elskar og það er hluti af kyn- lífi. Karlmenn líta á kynlíf og kynmök sem framkvæmd, það að standa sig og standa sig í stykkinu. Hjá konum teng- 16 ist kynlífið tilfinningum miklu meira. Við skulum hugsa okkur ungan mann sem les grein um kynlíf í erlendu blaði. Greinin fjallar um kröfur kvenna til kynlífs, sem er eitthvað nýtt fyrir ungum íslenskum pilti. Hann er ekki alinn upp við slíkar hugmyndir þvi mamma hans og amma hafa aldrei talað um kröfur sínar til kynlífs. Því er ekki ólíklegt að pilturinn láti sig síga niður í stólinn og hugsi: Guð minn góður, þetta þori ég ekki. Enn í dag hafa margar eldri konur þá skoðun að kynlíf sé fyrst og fremst skylda hjóna- bandsins. En þessi sterka kynvakning kvenna á undanförnum árum hefur valdið svo miklum breytingum að inargir karlmenn eru hræddir og mikil efatilfinning hefur vaknað hjá þeim. A heimilissýningu í Laugardalshöii. I stólnum situr fíjarkey Magnúsdóttir, kona Heiðars. Hið aldagamla lífsmynstur hefur breyst karlmönnum nokkuð í óhag andlega. En á hinn bóginn hafa karl- réttindi einnig aukist, t.d. í sambandi við fæðingarorlof. Það finnst mér vera forréttindi, því ég þurfti að standa í harðri baráttu til þess að fá viku frí frá störfum til að gæta bús og barna þegar þriðja barnið mitt fæddist. Föðurrétt- urinn er einnig orðinn sterkari en hann var, og ekki er lengur hægt að ættleiða óskilgetið barn án leyfis föðurins. Við erum þannig lagalega betur settir gagnvart börnum okkar en áður og þarna hefur áreiðanlega orðið viss vakning vegna kvennabaráttunnar." Ég hefverið sjálfum mér samkvæmur - Heiðar, mér finnst það stórkostlegt hvernig þér hefur tekist að skapa þér atvinnu á þínu áhugasviði. „Já, ég hef verið andskoti fylginn mér, ekki get ég neitað því, og ég er líka í rauninni svolítið stoltur af sjálfum mér vegna þess að ég hef verið sjálfum mér samkvæmur í öllu því mótlæti sem ég hef lifað við á því sviði sem ég hef verið að vinna. En það hefur hjálpað mér mikið að vera vel giftur og hamingjusamur í einkalífi. Ég væri náttúrlega ekki það sem ég er í dag hefði ég ekki eignast þann lífs- förunaut sem ég á. Hún Bjarkey, konan mín, á stærsta þáttinn í því hvernig ég hef getað haldið mínu striki þrátt fyrir allt. Heima hjá mér er miklu sterkara batterf heldur en þau sem auglýst eru í sjónvarpinu og ég get alltaf sótt minn styrk til hennar. Hún er fullkomlega óstressuð og hún furðar sig á þegar ég á það til að stressa mig út af alls kyns uppákomum. Henni finnst það allt jafn fyndið. Þegar eitthvað óþægilegt gerist, þá tapa ég alltaf and- litinu og reyni að forða mér eða segja eitthvað til að bjarga málunum, en hún sér alltaf spaugilegu hliðarnar." - Hvernig mótlœti hefurðu orðið fyrir? „Ég hef orðið fyrir talsverðri gagn- rýni og furðulegustu kjaftasögur hafa verið í gangi. Til dæmis get ég ekki haft nafnið mitt í símaskránni, því ég hef orðið fyrir svo miklu ónæði og fengið upphringingar á öllum tímum sólarhrings frá drukknu fólki. Ég veit ekki hvers vegna fólk lætur svona. Kannske er ég svona sætur! En að öllu gamni slepptu þá viðurkenni ég, að ég er áberandi og hef sjálfsagt gefið tilefni til þessara ofsókna með því að haga mér og klæða mig oft öðruvísi en flestir karlmenn. Það hefur vakið heiftarleg viðbrögð hjá vissu fólki. Margir virðast halda að ég sé hommi og erlendis hef ég oft orðið lyrir því að karlmenn leituðu á mig, en miklu minna hér á landi. Mér hefur aldrei þótt það óþægilegt og ég held að ég hafi í flestum tilfellum tekið það sem gullhamra.“ Lífsfylling Að lokum spyr ég Heiðar um vœnt- ingar hans í sambandi við börnin og fjölskylduna. „Draumur okkar hjónanna er ekki í fermetrum og bílum eða í neinum veraldlegum hlutum. Minn draumur er fólginn í lífshamingju fjölskyldu minnar. Konan mín var heima í 11 ár
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.